Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1979, Blaðsíða 19

Faxi - 01.05.1979, Blaðsíða 19
Utvegsmannafundur í Stapa, DEILDU Á ÞINGMENN FYRIR SINNULEYSI — og tödlu fráleitt að skerða sókn Suðurnesjabáta Laugardaginn 14. apríM979 hélt Útvegsmannafélag Suöurnesja fund í Stapa. Fundarefni var ráóstafanir stjórnvalda um takmarkanir þorsk- veiða. Um eitt hundrað útvegsmenn sóttu fundinn og þar að auki sjávar- utvegsráðherra, Kjartan Jóhanns- son, alþingismennirnir Matthías Á. Mathiesen, Geir Gunnarsson, Gils Guðmundsson, Ólafur G. Einars- son, Oddur Ólafsson og Ólafur Björnsson. Ennfremur komu á fundinn form. L.I.Ú., Kristján Ragn- arsson og formaður Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Albert K. Sanders. Miklar umræður urðu á fundin- um og í upphafi bent á, að Suöur- nesjamenn heföu ávallt viljað taka aðvaranir fiskifræöinga um sókn f þorskinn af alvöru. Töldu fundar- menn þær ráöstafanir, sem nú hefðu verið gerðar, um takmarkanir á sókn í þorskinn á þessu ári, þær raunhæfustu, sem enn hefðu verið gerðar i þessum efnum. Sýnt var fram á aöstööumun til uppbyggingar í sjávarútvegi og taliö að Suðurnesin og raunar öll byggðarlög, er byggðu afkomu sína á útgerö báta, heföu búiö við skaröan hlut. Þá töldu ræðumenn fráleitt að skerða, sem nokkru næmi, sókn bátanna á yfirstandandi vertíð, umfram það, sem þegar hefði verið gert og lögöu áherzlu á, að þeir fengju að Ijúka vertíöinni án veru- legra skerðinga. Bentu þeir jafn- framt á, að allar viðmiðanir um aflabrögð bátanna á yfirstandandi vertíð og þeirri eindæma lélegu ver- tíö 1978, væru í hæsta máta ósann- gjarnar, ef vegna þess ætti að stööva bátana nú. í framhaldi af þessu var lögð fram á fundinum skýrsla um hag- n-ýttan þorsk í hinum ýmsu lands- hlutum s.l. 10 ár. Nokkuö var deilt á þingmennina og m.a. sagt að þótt þeir hefðu marga hluti vel gert, þá hefðu þeir sýnt sinnuleysi, þegar um málefni sjávarútvegsins hefði verið að ræða, — og ætti þetta raunar við alla þingmenn á Suöur- og Suðvest- urkjálka landsins. í ræðu sjávarútvegsráöherra kom fram að hann teldi ráöstafanir um takmarkanir þorskveiðanna vera að mestu í samræmi við tillög- urfiskifræðinganna. Ráöherrann hvatti til þess að togara- og bátamenn hættu öllum metingi og sagöi, að báðar grein- arnar ættu fullan rétt á sér. Þá vildi ráðherrann ekki, við þetta tækifæri, upplýsa hverjar ráöstafanir væru á döfinni varð- andi netaveiöar það sem eftir er vertíðar. Að lokum var einróma samþykkt ályktun, sem lögð hafði verið fyrir fundinn. (Ályktun hjálögð). F.h. Útvegsmannafél. Suðurnesja, Ingólfur Arnarson. f Ályktun Almennur fundur í Útvegsmannafélagi Suðurnesja, var haldinn í Stapa 14. apríl 1979, samþykkir svofellda ályktun, varðandi ákvörðun stjórnvalda um takmarkanir á þorsk- veiðum. Fundurinn fagnar því að loksins virðist eiga að gera raun- hœfar ráðstafanir til þess að takmarka sókn í þorskstofn- inn. Jafnframt vekur fundurinn athygli á því, að fáranlegt vœri að miða við það aflahrun, sem varð á síðustu vertíð á Suðurnesjum, eigi að vera viðmiðun um hlutfall fyrir báta- flotann, en metafli síðasta ár í öðrum landshlutum við- miðun fyrir þá. Fundurinn bendir á, að togarar hafa flœtt inn í landið þrátt fyrir ofveiði á þorski. Það hlýtur því að vera sanngjörn krafa að þeim sé nú beint í vannýtta stofna, með öllum tiltœkum ráðum, meðan þorskstofninn er byggður upp. Fundurinn vill ítrekað vekja athygli á því að á Suður- nesjum hefur þorskafli hrunið niður í helming af því, sem hann var fyrir nokkrum árum, á sama tíma hefur þorskafli víða margfaldast. Þá vill fundurinn minna á, að eftir því sem fleiri fisk- vinnslustöðvar loka á Suðurnesjum, vegna aflabrests, er í vaxandi mœli sótt eftir fólki úr öðrum heimsálfum til þess að yinna fisk víða um land. I framhaldi af framansögðu telur fundurinn engin rök mœla með því að bátaflotanum sé ekki gefinn kostur á að Ijúka yfirstandandi vertíð án frekari stöðvana. Fundurinn lýsir yfir fullum vilja um samstöðu við sjávar- útvegsmenn á hinum hefðbundnu vertíðarsvæðum báta- flotans um hvaðeina, er varðar sameiginlega hagsmuni. Að lokum lýsir fundurinn furðu sinni á þeim linnulausa áróðri, sem rekinn er í fjölmiðlum gegn þessu svæði og bátaflotanum í heild, og í vaxandi mœli kemur fram í um- rœðum á Alþingi ífurðulegustu myndum. Úrvalsfólk á einni plötu, Keflavík í Poppskurn Keflavíkurkaupstaður átti 30 ára afmæli fyrir skömmu. Hátíöabrigði voru engin að undanskildu því að fánar voru dregnir í hún í tilefni dagsins, bæði hjá einstaklingum og hinu opin- bera. Einn aðili minnist þó tímamót- anna oörum fremur, útgáfu fyrirtækið Geimsteinn, sem gaf út vandaða hljóm- plölu af þessu tilefni. Var það mjög vel til fundið af Rúnari Júlíussyni, hljóm- listarmanni og söngvara, en hann er jafnframt eigandi Gcimsteins, að safna saman á eina plötu, úrvalsfólki í söng og hljóöfæraleik, ásamt Ijóðahöfund- um, og lagasmiöum, en eins og flestum er kunnugt er ótrúlega stór hluti þeirra sem hæst ber á skemmtanahimninum í dægurlagadónlist, úr Keflavik og ná- grenni. Taka má undir orð hins fjöl- hæfa listamanns Þorsteins Eggerts- sonar, á plötukápunni, þar sem hann ritar. „Nú er Keflavík oröin þrítug, með nærri 7000 þúsund íbúa. Fyrir utan að vera gamalfræg verstöð og skrásett á alþjóölegum landakortum vegna flugvallarins, er Keflavik þekkt fyrir óvenju marga skemmtikrafta og músíkanta (höfðatalan fræga, júnó) og þess vegna timi komin til að gefa út a.m.k. eina hljóplötu með úrvali kefl- viskra skemmtikrafta. En það var úr vöndu að ráð. Hverjir af öllum skaran- um áttu að vera á hljómplötunni?" Ekki er annað að heyra en að valið hafi tekist alhliða mjög vel og Suður- nesjamcnn ættu því ekki að láta „Keflavik í poppskrun", fram hjá sér fara. emm Eyjólfur Guðjónsson varð 75 ára 17. október s.l. Hann vinnur nú verzlunar- störf á Keflavíkurflugvelli og er líklega elstur starfandi í þeirri grein. Hann hefur unnið mikið að leiklista- og íþróttamálum og var meðal annars fyrsti formaður K.F.K. FAXI — 19

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.