Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1979, Blaðsíða 7

Faxi - 01.05.1979, Blaðsíða 7
Leikféiag Keflavíkur. LÍNA LANGSOKKUR Höfundur: Astrid Lindgren. Leikstjóri: Edda Þórarinsdóttir. Þaó var mjög virðingarvert framtak hjá Leikfélagi Kefla- víkur, að taka til meðferðar barnaleikrit. Það er fátítt að áhugamannaleikfélög ráðist í slíka framkvæmd. Uppfærsla barnaleikrita er að jafnaði umfangsmikil og kostnaðarsöm og því hæpió að sýningarnar skili nægum hagnaði til að standa undir útlögðum kostnaði. Ég hygg að margra ára samstarf formanns L.K., Hilmars Jónssonar, við börn og ungmenni Keflavíkur og skilningur hans á þörfum þessara aldursflokka hafi ráðið nokkru um verkefnavalið. Fullorðna fólkið — jafnvel foreldrar hafa það alltof sjaldan í huga hvers viröi það er fyrir alla framtíð barnsins og unglingsins aö temja sér menningarlegar stundir. Fagurfræóilega séð er L(na Langsokkur sjálf ekki að öllu leyti úrvals fyrirmynd, en nokkur % áhorfenda íhugar persónugerðina og fær af þvi ávinning og efnivið til eigin sköpunar — áttar sig á upp- eldisskorti og óæskilegu hömlu- leysi Línu. Einnig er þetta hörð ádeila á hagsmunakapphlaupið, sem krefst þess að mæður séu á vinnumarkaðnum, hlaupa frá uppeldis hlutverki sínu og skilja börn sín eftir umhirðulaus og ráð- vilt, næstum dæmd til óknytta og misheppnaöar framtíöar. Hinsvegar hafa ungir og gamlir skemmtun af tiltektum Línu, sem eru græskulausar, án frekari bolla- legginga um ástæður er liggja að baki slíkri skaphöfn. Sjálfsagt er spaugið llka megin tilgángur leiksins. Höfundurinn, Astrid Lindgren, sem er víðkunnur barna- bókahöfundur og leikstjórinn, Edda Þórarinsdóttir, gera í þessu efni hvor annari betur. Lindgren lagði brautina en Edda tók hana á fullri ferð, meö stóran hóp barna, sem aldrei höfðu komiö á svið ásamt nokkrum eldri leikurum úr L.K. Eddu fer þetta vel úr hendi, hnökra- laust er skeiöið runnið frá byrjun til enda, oft með ágætum. Þegar upp er staðið verða spaugilegustu þættirnir efst í huga — ber það hæst viöureign lögg- unar við Llnu, bráð skemmtilegt og vel leikið atriði. Einnig var innbrot umrenninganna vel leikiö en ekki eins skemmtilegt. Kennslustund og skógarferð barnanna var kannske full hófleg, miöað við annaö. Vafalaust þó rétt mat hjá leikstjóranum. I kaffiboðinu voru sterkir „kontrastar", slúðurmas og ofboð frúnna, uppvaösla Línu og siðprýöi heimabarnanna. Lokaatriðið — hápunktur leiks- ins — þegar átrúnaðargoðið, villi- mannakóngurinn úr svörtustu Afríku, faðir Línu, kemur heim, var vel gert. Aöalpersónuna L(nu Lang- sokk lék LILJA MÖLLER. Það er mikil þolraun fyrir barnungan byrj- anda að leika L(nu, sem er allan tímann á sviðinu og það með sKkum ósköpum og ofurmennsku, sem vera ber til að halda stemn- ingu í salnum. Lilja var vandanum vaxin. Hún gerði þessa óeðlilegu persónu heilsteypta. Rödd, lát- bragð og sviösstaöa, allt fór saman og Lilja fyllti alveg út í rammann. Já, ramminn utan um lista- verkið — Línu Langsokk — voru nánast allir hinir leikararnir. Allt eru það fremur Ktil hlutverk, en náðu þó góðum árangri og gerðu heildar myndina skoplega, eins og til erætlast og léku vel. Ég var á annari sýningunni. Húsið var troöfult, líklega um 500 manns, að mestum hluta börn. Þau kunnu vel að meta gáskann í sam- skiptum Línu við lögguna, sem þeir Eggert Olafsson og Hilmar Jóns- son léku af mikilli innlifun og spör- uðu sig hvergi. Sama má segja um flakkarana, sem leiknir voru af Jóni Sveinssyni og Jóni Sigurössyni. Gerfi þeirra og látbragö var ágætt og þeir fengu hæfilegan skell fyrir óheiöarlegheitin, mátti heyra af undirtektum áheyrenda. Frúrnar í kaffiboðinu léku þær Dagný Haraldsdóttir, Einarína Sigurjónsdóttir og Rósamunda Rúnarsdóttir. Þær voru allar í essinu sínu og sýndu óblandna fyrirlitningu á vesalings einstæö- inginum Línu og uppeldi hennar. Vildu bara fá ósómann fjarlægö- ann. Til mótvægis við framangreind hlutverk, sem öll narta í Línu, kemur svo kennslukonan, leikin af Hjördísi Árnadóttur. Hún gerði virö- ingarveröa tilraun til að kenna og siðbæta Línu, en án árangurs. Hjördís lék vel og fékk samúð barn- anna í salnum, sem mörg skildu erfiöa aðstöðu hennar. Börnin, vini Llnu, léku Dröfn Gústafsdóttir og Gísli Gunnarsson. Þau voru sannir vinir þrátt fyrir afbrigðilegheit Lfnu og sýndu það með sannfærandi leik. Skólabörn voru leikin af Herði Hilmarssyni, Jens Hilmars- syni, Ragnheiði Gunnarsdóttur og Þórdlsi Jónsdóttur. Þau voru öll taþmikil og eölileg og tóku hlutverk sín alvarlega. í leikslok kemur svo Eiríkur, faðir Línu, villimanna kóng- urinn, sem Þór Helgason lék. Hann er æði villimannslegur í míni strá- pilsi einu klæöa og alvopnaöur. Fagnaðarfundir þeirra eru ósviknir og ævintýrið er á enda. Flestir skólar héraðsins sýndu þessari tilraun góðann skilning og stóðu fyrir hópferðum á sýningar félagsins, ánæjulegt samstarf, sem ber aö þakka. Það er vafalaust von flestra hér á Suöurnesjum, að góð aðsókn á þetta leikrit örfi leik- félögin hér syðra til að taka barna- leikrit oftar til meöferðar en veriö hefur. Jón Tómasson NJARÐVIK Fasteignagjöld Síðasti gjalddagi fellur í eindaga 15. maí n.k. Eftir þann tíma reiknast 3% dráttarvextir fyrir hvern byrjaöan mánuö. Greiðið reglulega til aö forðast kostnað og frekari innheimtuaðgerðir. Bæjarstjóri FAXI — 7

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.