Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1979, Blaðsíða 11

Faxi - 01.05.1979, Blaðsíða 11
Minning: Sæmundur G. Sveinsson F. 29. júní 1898 — D. 11. febr. 1978 Útför Sœmundar G. Sveins- sonar fór fram frá Keflavíkur- kirkju 2. febr. s.l., en hann lézt íBorgarspítalanum 11. s.m. Sæmundur Guðjón, en svo hét hann fullu nafni, var fædd- ur á Oddgeirshöfða í Hraun- gerðishreppi 29. júlí 1898 og varð því 80 ára á síðastliðnu sumri. Foreldrar hans voru þau hjónin Gíslína Sœmundsdóttir frá Uppsölum í Hraungerðis- hreppi og Sveinn Pálsson frá Ferjunesi í Villingaholtshreppi. Sœmundur var þvíÁrnesingur í báðar œttir. Á fyrsta aldursári fluttist hann með foreldrum sínum til Stokkseyrar og þar átti hann heima, þar til hann fluttist til Keflavíkur 1930. Kona Sœmundar var Júlíana Jónsdóttir, Pálssonar frá Litla- bœ í Keflavík, og voru þau hjónin bræðrabörn. Þau eign- uðust tvö börn, Jóhönnu, gift Valdimar Gunnarssyni og eiga þau 4 syni, og ber sá elzti nafn Sœmundar, — hitt er Sveinn, trésmíðameistari í Keflavík, kvœntur Ön.nu Vilhjálmsdótt- ur, þau eiga tvö börn. Júlíana, kona Sœmundar, féll fyrir aldur fram rúmi ári eftir að þau fluttu til Keflavík- ur. Þau höfðu á þessu rúma ári byggt húsið, við Vallargötu 25 og aðeins búið í því í nokkra mánuði, þegar hið sviplegafrá- fall Júlíönu bar að. Nœstu árin bjó Sæmundur með foreldrum sínum, sem flutzt höfðu með þeim hjónun- um frá Stokkseyri, og þar ólust börn þeirra upp, Jóhanna og Sveinn. Eftir að börnin komust upp bjó Sœmundur með Þui íði Eggertsdóttur, þar til hún missti heilsuna og flutti á elli- heimili. Síðustu árin átti Sæm- undur heimili í húsi sínu að Vallargötu 25. Þar var hann að mestu út af fyrir sig, en naut allrar umönnunar hjá dóttur sinni og tengdasyni, sem bjuggu á neðri hœð hússins. Undi hann þar vel hag sínum meðan heilsan var þolanleg. En síðustu árin var hann að mestu rúmliggjandi og þá oft þreyttur á hlutskipti sínu, sem auðvelt er að skilja, því hér var sérstak- lega vinnufús maður, þar sem Sœmundur var, er aldrei féll verk úr hendi meðan heilsan leyfði. A sínum fyrri árum, þegar síldin veiddist fyrir norður- landi, starfaði Sœmundur oft á sumrin utan Keflavíkur. Hann var 20 sumur á Siglufirði og 3 sumur á Ólafsfirði. Vann þá oftast við beykisstörf. Á „Keflavíkurmyndinni“, sem á að sýna okkur, meðal annars, athafnalífið í Keflavík fyrr og nú, má sjá, að Sœmundur kunni handtökin við að slá botnin úr og í tunnuna. Sœmundur var bókelskur tnjög og átti gott bókasafn. Naut hann þess mjög hin síðari ár, einkum síðustu misserin. Sœmundur var alla tíðfélags- lyndur maður, á Stokkseyri var hann mjög virkur í ungmenna- félaginu þar, og á sínum fyrstu árum hér í Keflavík, tók hann mjög virkan þátt í verkalýðs- baráttunni. Var hann oft í samninganefndum, og var þar jafnan tillögugóður. Var aðgœtinn, kunni vel að meta aðalatriðin, en var þó fastur fyrir, þegar því var að skipta. I Alþýðuflokksfélagi Keflavíkur starfaði hann einnig á löngu tímabili. Þar sézt handbragð hans á fundargerðarbókum félagsins, því hann var lengi rit- ari þess. Hann ritaði mjög glöggar og greinargóðar fund- argerðir, sem geyma munu ókomnum tíma skýrar myndir af þeim viðfangsefnum, sem við var að glíma á þeim tíma í bœjar- og þjóðlífinu. Hann sat mörg ár þing Alþýðuflokks- ins og var þar jafnan ritari. Hann átti sœti í síðustu hrepps- nefnd Keflavíkur 1946—50. Auk þess, sem Sœmundur ritaði enfislega glöggar fundar- gerðir, þá skrifaði hann fagra hönd, fastmótaða, jafna og áferðarfallega. Og þegar ég hugsa um skriftina hans Sœ- mundar, rifjast upp fyrir mér, er ég fyrir mörgum árum síðan var staddur heima hjá Bjarna M. Jónssyni, námsstjóra, sem nú er látinn, þá sýndi hann mér nokkur eintök af handskrifuðu blaði, sem á sínum tíma var gefið út á Stokkseyri. Voru rit- stjórarnir, mjög ungir menn þá, þeir Sœmundur G. Sveins- son og Sigurður Z. ívarsson, sem seinna varð frœgur fyrir vísurnar og Ijóðin í Speglinum forðum, undir nafninu Sig- urður Z. Bjarni M. Jónsson hélt mjög upp á þessi hand- skrifuðu blöð, sérstaklega vegna skriftarinnar og snyrti- mennskunnar. Var hann ákveðinn, að blöðin skyldu varðveitt í safni og vona ég að svo hafi orðið. Sæmundur sagði mér á s.l. vori, er við rœddum um þetta blað, að þeir hefðu fljótlega orðið að hœtta útgáfunni, vegna þess að eftirspurnin var svo mikil. Blaðið var hand- skrifað og þeir höfðu engan veginn undan. — Þetta blað er sennilega eina blaðið á íslandi sem orðið hefur að hœtta út- gáfu á, vegna þess að eftir- spurnin varð of mikil. Þótt Sœmundur hafi verið góður og gegn Keflvíkingur, þá átti hann álvat sterkar taugar til Stokkseyrar. Hann var því áhugasamur félagi í Árnesinga- félaginu hér. Hann var einn af stofnendum þess og starfaði þar meðan hann mátti. Fyrir öll liðin samstarfsár færum við hjónin Sæmundi innilegar þakkir, er leiðir skilja, og flytjum börnum hans, tengdabörnum og barna- börnum samúðarkveðjur. Ragnar Guðleifsson. Hvað hugsa blessuð mál- lausu dýrin? Tvær stuttar sannar sögur um læður. Síðastliðinn vetur var oft grimdar- gaddur og blindbylur. Þannig veður var umræddan eftirmiðdag og nóttin fór að. Inni í stofu var notalegur hiti frá hitaveitunni. Við fullorðna fólkið ræddum um veðurhaminn og þá vesal- inga- menn og málleysingja, sem hvergi áttu skjól gegn slíku veðurfari. Börnin léku sér við tvo næstum full- vaxna kettlinga á gólfinu en kisa gamla kúrði á mjúkum púða úti í horni og hreyfði sig lítt, enda alveg komin að því að gjóta. Þar, sem ég var gestur hugðist ég halda heim þar að veður virtist fara versnandi. Ég kvaddi og gekk til dyra. En er ég opnaði dyr að forstofu hlupu kettlingarnir fram viðbúnir að viðra sig ef útidyr opnuðust. Eldsnöggt þaust þá sú gamla að þeim kettinum, sem virðist vera heldur meiri fyrir sér (frakkari) glefsaði í hnakkadrambið og dró hann inn. Hann reyndi engan mótþróa en lét þá gömlu bisa sé inn og hinn kom sneypulegur á eftir. Það var eins og móðirin vildi segja við afkvæmin — þið hafið ekkert að gera út í svona veður — farið ykkur bara að voða. Eða kanski hefur hún haft hugboð um það sem koma varð og því viljað hafa börnin sín hjá sér — nokkrum klukkutímum síðar fæddi hún 7 andvana kettlinga. Villikötturinn þakkláti. Kona heyrði ókennilegt hljóð við tröppurnar hjá sér. Þegar hún gætti að sá hún ámátlegt kattar kvikindi skjót- ast fram og aftur í fönninni. Hún sinnti því ekki að sinni, en endurtekin armæðuhljóð kattarins vöktu konuna til meðaumkunar. Hún setti eitthvað matarkyns á skái út á tröppurnar. Kisa var mjög varkár en kom loks og át það sem framreitt var. Það leyndi sér ekki að þetta var villi- köttur, læða, komin langt á leið. Hún kom síðan dag hvern, stundum oftar en einu sinni. Hún gildnaði nú óðum. Reyndi þá frúin að lokka kisu með matargjöfum að skjóli í kjallarakompu. Það gekk ekki of vel, enda ganga villikettir ógjarnan í gildru. En þegar fæðing nálgaðist lét hún þó til leiðast, enda kom þá tvennt til — úti voru veður vond og aðhlynning og matargjöf konunnar fóru vaxandi. Svo kom að því að kisa gaut — og ást hennar á afkvæmunum, vernd og um- hyggja var augljós. Vinátta villikattar- ins og konunnar virtist aukast með degi hverjum. Bati kom í veðurfarið og kettlingarn- ir döfnuðu vel og fóru að sjá. Konan annaðist sængurgjafimar af natni — færði fjöldskyldunni góðar matargjafir og hlúði að henni. Einn morguninn þegar konan kom með morgunmatinn greip hún í tómt — og þó, fallegasti kettlingurinn var einn eftir i hreiðrinu. Gamla kisa kom aldrei framar í heim- sókn. J.T. P.S. Sendið Faxa dýra sögur og annað efni til skemmtunar og fróðleiks. J.T. FAXI — 11

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.