Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1979, Blaðsíða 9

Faxi - 01.05.1979, Blaðsíða 9
Hreggviður Bergmann F. 13. febr. 1911 — D. 22. des. 1978 Aðfaranótt þess 22. des. s.l. and- aðist að heimili sínu að Hagamel 46, Reykiavík, Hreggviður Berg- mann útgeröarmaður. Hann var Keflvíkingur að ætt og uppruna, fæddur 13. febr. 1911, sonur hjón- ana Guðlaugar Bergsteinsdóttur og Stefáns Bergmanns, sem stundaði útgerð og bifreiðaakstur I Keflavlk, auk þess sem hann fékst við Ijósmyndagerð og var allmikil- virkur á því sviði. Þarna ólst Hreggviður upp I hópi mannvænlegra systkina og tók ásamt þeim virkan þátt i athafnallfi föður síns. Þegar hann fór að sjá um sig sjálfur, gekk hann að allri algengri vinnu og þótti dugmikill að hverju sem hann gekk. Einkum fékkst hann þó framan af við bif- reiðaakstur, eða þar til hann ásamt nokkrum öðrum festi kaup á h/f Keflavík og hófst þá handa um út- gerð með vaxandi umsvifum. Síðar gerðist Hreggviður forstjóri þessa fyrirtækis, sem óx og dafnaði I höndum hans, enda þótti stjórnun hans bera vott um hagsýni og mikla ráðdeiidarsemi, er var til hreinnar fyrirmyndar. Hreggviður kvæntist 1934 eftir- lifandi konu sinni, Karitas Karls- dóttur. Voru foreldrar hennar Marla Magnúsdóttir og Karl Guðmunds- son sjómaður Keflavík. Eignuðust þau Hreggviður og Karitas 3 dætur og eru 2 þeirra, Guðlaug og María búsettar I Keflavík, en sú yngsta, Marta, býr I húsi foreldra sinna héri Reykjavík. Karitas bjó manni sinum hlýtt og aðlaðandi heimili og reynd- ist honum tryggur og góður lífs- förunautur. Einkum hefir á það reynt nú siðustu árin, eftir að heilsa Hreggviðs tók að gefa sig, en þá var hún hjálp hans og stoð, þrátt fyrireigin vanmátt. Öll árin, sem ég bjó i Keflavík, þekkti ég nokkuð til þessarar fjöl- skyldu, t.d. kenndi ég dætrum þeirra hjóna og kunni skil á at- hafnamanninum Hreggviöi, snyrti- mennsku hans í öllu er viðkom út- gerð og áreiðanlegheitum varðandi rekstur og fjárreiður fyrirtækisins, h.f. Keflavlk. Um þau mál var Hreggviður vakinn og sofinn. Hann var stakur reglumaður, neytti hvorki vlns né tóbaks og orð hans stóðu eins og stafur á bók. Þetta vissu allir, sem til þekktu, enda gekk engum betur en Hreggviði að manna skip sín og vinnslustöðvar góðu fólki. Kynni okkar Hreggviðs urðu þó ekki að neinu ráði fyrr en eftir að við fluttum báðir til Reykjavíkur, en þangaö komum við um svipað leyti. Svo einkennilega vildi þá til, að við uröum eigendur að sama húsinu hér — sinum helmingnum hvor, án þess að vita hvor um annan, fyrr en um það leyti, sem gengið var frá kaupunum. Oneitanlega var þetta býsna kynleg tilviljun. Þótt margur héldi Hreggvið hraustbyggðan mann og innviða- sterkan, sem hann og var framan af ævi, var honum sjálfum Ijóst, er árunum tók að fjölga, að heilsan var farin að láta sig og vinnuþrek og kjarkur þurru aö sama skapi. En hann var dulur maður og lítió fyrir að bera áhyggjur sínar á trog. Samt mun þessi vitneskja hafa leitt til þeirrar ákvöröunar, að réttast mundi aó rifa seglin og hægja á ferðinni meðan tími ynnist. Sú mun hafa verið ástæðan fyrir bústaðar- skiptum hans. Og þrátt fyrir ýmis konar aösteðjandi vandamál taldi Hreggviður fyrirtæki sitt sæmilega I stakk búið og fjárhagslega nokkuð vel á vegi statt. Hans hægri hönd þar til margra ára var tengda- sonur hans, Kristján Pétursson, maður Maríu, hinn ágætasti maður, sem var honum styrk stoö i starfi og geröi honum þessa lífs- háttabreytingu mögulega. Ályktun Hreggviðs gat að þessu leyti stað- ist en hitt sást honum yfir, að þrátt fyrir breytta búsetu, var hugur hans og starfslöngun áfram I Keflavik og þangaö var ekið hvern virkan dag til fullra starfa, a.m.k. fyrstu árin. Siöar seldi hann hlut sinn í h.f. Keflavik og fóru þá rólegri dagar í hönd. Vera kann að það hafi veriö framkvæmt of seint, þvl hinna KEFLVÍKINGAR Fasteignagjöld Við minmim á að seinni hluti fast- eignagjalda er 15. maí n.k. Eindögun hefur orðið hjá þeim sem enn hafa ekki greitt fyrri hlutann og eru þeir minntir á að gera full skil strax. rólegu daga naut hann aðeins skamma stund, heilsan var á förum og nú síðustu misserin hefir hann af og til þurft að dveljast á sjúkrahúsum, en þar undi hann sér illa, þráði alltaf að mega vera heima, þvi þar var hugur hans og hjarta. Eins og aö er vikið fyrr i þessum minningarorðum, var Hreggviður fremur dulur, en hann var trúaður maðurog hugsaði mikið um andleg mál, t.d. var hann i Guðspekifélagi islands og sótti þar reglulega fundi meðan heilsan leyfði. Hann var i hvívetna drengur góður, hjálpfús og velviljaður. Á sambúð okkar hér á Hagamel 46 féll aldrei skuggi, þar ríkti ætíð vinsemd og góðhugur. Sem dæmi þar um má geta þess, aö þó atvikin bæru okkur hér saman svo til ókunnuga, þá kom síðar svo málum, að við fengum okkur sumarbústaðaland i tún- brekku á yndislegum stað austur i Hreppum, þar sem við hjálpuðumst að við að byggja okkur lítil sumar- hús sem standa þar hlið við hlið. Þar höfum við notið margra góðra stunda i hreinu fjallaloftinu og dýrð hins íslenska sumars við hjarta landsins. Þar undi Hreggviður hag sínum vel og fékk hug og hönd verk að vinna við ýmiss konar ræktunar- og gróörarstörf. Hann hafði mikiö yndi af útivist, var laxveiðimaður af llfi og sál og feröagarpur, enda mátti hann telj- ast býsna viðförull, bæði innan- lands og utan. Hann var gæddur góðu feguróarskyni og naut því I rlkum mæli þess besta, sem fyrir augun bar. Nú er Hreggviður lagður upp i langa, óræða för, þá för, sem við hin öll eigum ófarna. Við hjónin vottum eiginkonu hans og öðrum ástvinum okkar innilegustu samúð. Blessuð sé minningin um Hreggviö Bergmann. Hallgrimur Th. Björnsson. .... Innheimta Keflavíkurbæjar

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.