Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1979, Blaðsíða 8

Faxi - 01.05.1979, Blaðsíða 8
O Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík Ritstjóri: Magnús Gíslason Blaðstjórn: Jón Tómasson, Helgi Hólm, Ragnar Guðleifsson Auglýsingasljóri: Jón Pétur Guðmundsson Setning: Acta hf. Umbrot, filmuvinna og prentun: Prisma IÐNAÐAR- FRÍHÖFN Fyrir nokkru lagði ég fram á Alþingi tillögu til þingsálykt- unar um tollfrjálst iðnaðarsvæði viö Keflavíkurflugvöll. Hlutverk tollfrjáls iónaðarsvæðis er í því fólgið að gefa fyrirtækjum jafnt innlendum, sem erlendum, kost á að framleiða hér eöa Ijúka framleióslu tækja véla o.s.frv., sem síðan yrðu flutt á markað _t.d. í löndum tollbandalaganna EFTA og EBE. Hagsmunir Islendinga yrðu hins vegar í því fólgnir aó njóta atvinnunnar er þessi starfsemi skapaði. Þá er hugsanlegt að erlend fyrirtæki gætu notað svæðið sem vörugeymslu. Vegna legu sinnar á flugleiðum Atlands- hafsins er Keflavíkurflugvöllur ákjósanlegur staður til þess að geyma iðnaðarvörur og dreifa þeim síðan austur og vestur. Ávinningurinn af því að geyma vörur í tollfrjálsu iðnaðarsvæði væri aðallega sá, að ekki er nauðsynlegt að tollafgreiða í innflutningsland fyrr en raunverulega þarf á vörunni að halda. Árið 1959 var tollfrjálst iönaðarsvæði sett á stofn við Shannon flugvöll á írlandi. Það fyrirtæki hefur vaxið risa- skrefum og átt verulegan þátt í iðnþróun á írlandi. írar áttu við svipuð vandamál að stríða og við. Þeirra höfuðatvinnu- vegur hefur verið landbúnaður, en vegna samdráttar í þeirri grein skapaðist mikið atvinnuleysi og fólksflótti til annarra landa. Því hófu þeir skipulagt átak til varnar. Nú hafa þús- undir manna atvinnu við tollfrjálsa iðnaðarsvæðiö á Shannon. Afkoma þeirra er þar vinna er mun betri en annarsstaðar á írlandi. Horfa írar úr einangrun fyrri atvinnu- vega, — sótt á brattann og unnið umtalsveröa sigra. Það er vonandi að tillaga mín veröi samþykkt á Alþingi því einskis má láta ófreistaö til að skapa ný atvinnutæki- færi hér á Suóurnesjum. Því verður ekki neitað að atvinna á Keflavíkurflugvelli hefur veriö afar þýðingarmikil á undanförnum árum. Nú starfa þar um 2000 manns. Líklegt er að margt væri ööruvísi hér á Suðurnesjum ef þessa atvinnuþáttar hefði ekki notið við. Það er hinsvegar fráleitt aö byggja til frambúðar á varnarliðinu. Breytingar hjá varnarliöinu geta átt sér stað skyndilega og óvænt, — án þess að við getum við ráðið. Það er hinsvegar hyggilegt aö gera ráð fyrir breytingum. Búa sig sem best í þeim efnum. Tollfrjálst iðnaðarsvæði getur átt þýðingarmiklu hlutverki að gegna við sköpun fjöl- breyttari atvinnutækifæra og gera okkur óháðari hervinn- unni, en fyrr. Það er og íhugunarvert hvað skuli gera ef eða þegar varnarliöiö fer héöan. Þá losnar gífurlega mikið hús- næði, sem nota mætti við umrætt iönaöarsvæði, — húsnæði, sem annars yrði að mestu óarðbært. Athugun þessara mála þolir enga bið. Það veröur að gera allt, sem hugsanlegt er til aó fjölga atvinnutækifærum hér syðra. Þaö dugir ekki lengur að tala um iönaö og iönþróun. Nú verður að hefjast handa. Bæði Iðnþróunarfélag og stofnun lönaðarfríhafnar gætu markað þáttaskil í þessum efnum. K.St. G. Framkvæmdir við Landshöfnina Framkvæmdir við Landshöfnina vöktu athygli manna. Faxi hringdi á hafanrsímann og náði þar tali af Halldóri Ibsen, for- manni hafnarnefndar og fékk eftirfarandi upplýsingar. Á fundi stjórnar Landshafnar Kefla- vík — Njarövík, þann 15. mars 1979, var tekin ákvörðun um skiptingu á fjárveitingu til hafnarinnar á milli þeirra verkþátta, sem eru taldir hvað brýnastir af þcim verkum, sem vinna þarf að, við höfnina í ár. Fjárveitingin var 100 milljónir króna af Fjárlögum 1979. Á þennan fund mættu frá Vita- og Hafnarmálastofnuninni þeir Aðal- steinn Júlíusson, hafnamálastjóri og Steingrímur Arason verkfræöingur. Einhugur ríkti um að eftirtalin verk- efni hefðu forgang: 1. Að áfram verði haldið við byggingu vöruskcmmu, sem byrjað var á fyrir fjórum árum, og er það verk nú þegar hafið. 2. Dýpkunar- skipið Grettir verði fengiö til að gera könnun á botnlagi í fjöruborðinu vest- ast í höfninni framan við hús Saltsöl- unnar og innundir Fiskiðjuna h.f., með fyrirhugaða byggingu á viðlegukanti og samsetningu hafnanna fyrir augum. Hófst þessi vinna 24. apríl og vakti hún óskipta athygli bæjarbúa, sem eru bún- ir aö berjast fyrir þessum tveim verk- þáttum um langan tíma. 3. Grettir verður síðan látinn fara í Njarðvík og hreinsa þar til i botni hafnarinnar. Einhugur ríkti um að eftirtalin verk- efni hefðu forgang: 1. Að áfram verði haldið við byggingu vöruskemmu, sem byrjað var á fyrir fjórum árum, og er það verk nú þegar hafið. 2. Dýpkunarskipið Grettir verði fcgnið til að gera könnun á botnlagi á fjöru- borðinu vestast í höfninni framan við hús Saltsölunnar og innundir Fiskiðj- una h.f., með fyrirhugaða byggingu á viðlegukanti og samtengingu hafnanna fyrir augum. Hófst þessi vinn a 24. apríl og vakti hún óskipta athygli bæjarbúa, sem eru búnir að berjast fyrir þcssum tveim verkþáttum um langan tíma. 3. Grettir verður síðan látinn fara f Njarðvík og hreinsa þar til í botni hafn- arinnar. 4. Malbikaöar verði þekjur á þcim hlutum hafnargarðanna i Njarðvík, sem ekki hefur áður verið gengið endanlega frá. Þetta er það helzta, sem er á döfinni hjá Landshöfn Keflavík — Njarðvík, en að sjálfsögðu eru önnur smærri verkcfni á döfinni, scm heyra undir daglcgan rekstur hafnarinnar. FLUTT Á AFMÆLI ALBERTS K.SANDERS, 50 ÁRA, ( STAPANUM ÞANN20. MARS, 1979. Til hamingju Albert, heillþú og stár, þótt holrýsi valdasjórinn. Hálfnaður ert þú meö hundrað ár, hœstvirtur bœjarstjórinn. L Ákveðin gerðu Albert minn, okkur til gagns og þrifa. Taka nú sjötta tuginn þinn, tilbúinn hann að lifa. Guðmundur A. Finnbogason. 1 Frá htegri til vinstri, hristast mátt, hvort sem þú villt eða ekki. Lýðurinn svona þig leikur grátt, löngum ég brögðin hans þekki. FAXI — 8

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.