Faxi - 01.05.1979, Blaðsíða 18
SUÐURNESJAMENN
SNÚUM BÖKUM SAMAN
OG VERNDUMSJÁ VARÚTVEGINN
í hinni miklu umræðu um ástand nytjastofna á íslands-
miðum, ásamt síauknum stjórnunaratriðum varðandi fisk-
veiðarnar, og þá sérstaklega hvað áhrærir veiðar á þorski,
hefur almenningur ekki komist hjá því að staldra við þessi
mál, enda er það svo að aldrei hafa jafn margir kvatt sér
hljóð um málefni sjávarútvegsins að undanförnu.
í allri þessari miklu umræöu hef-
ur mörgum þótt áskorta haldgóöar
upplýsingar um hvaö hefur gerst
og er aö gerast, hvaö snertir hag-
nýtingu og tegundarskiptingu fisk-
aflans, og þá m.a. í einstökum
landshlutum, ásamt fjölmörgum
öörum þáttum útvegsins.
Þaö er í samræmi við þetta aö ég
vildi mega veita lesendum Faxa
nokkrar upplýsingar hvaö áhrærir
þetta mikilvæga mál. Og ekki síöur
vegna þeirrar nauösynjar aö Suöur-
nesjamenn, allir sem einn, snúi
bökum saman um aö vernda þá
atvinnugrein, sjávarútveginn, sem
á aldanna rás hefur dugað bezt til
uppbyggingar blómlegum
byggöum Suöurnesja.
feSSiáihfr
Þorskurinn er sú fiskitegund,
sem mest munar um í sjávarvöru-
framleiöslunni, og sem dæmi um
þaö má nefna, aö áriö 1977 nam
gjaldeyrir vegna afuröa úr þorski
tveimur fimmtu hlutum af öllum
gjaldeyristekjum þjóöarinnar. Þaö
segir sig því sjálft, aö þegar þorsk-
magniö minnkar í sjávarvörufram-
leiöslunni þá hefur þaö gífurlega
slæmar afleiöingar, í efnahagslegu
tilliti, ekki aöeins fyrir þjóöfélags
heildina, heldur miklu frekar fyrir
einstaka byggöir. Þaö er einmitt
þessi staöreynd, sem blasir viö
íbúum Suöurnesja og raunar íbúum
á öllu suöur og suövesturkjálka
landsins.
Af eftirfarandi töflu má sjá hve
ofboösleg sveifla hefur átt sér
staö, i þessu máli. Og taflan sýnir á
ótvíræöan hátt megin orsök hins
mikla vanda er sjávarútvegur Suö-
urnesja hefur átt viö aö stríöa um
nokkurt skeiö.
Það hefur ekki fariö framhjá
mönnum, aö í allri þeirri miklu um-
ræöu, sem átt hefur sér stað aö
undanförnu, um takmarkanir á
sókn í þorskinn, aö málsmetandi
menn af Vestfjörðum og Noröur-
landi hafa látiö sér um munn fara
all hvatvíslegar fullyröingar um aö
sjávarútvegsfólk á Suöurnesjum og
suöurlandi stæöi helst í þvi aö
handfjatla lélegt hráefni, hvaö
þorsk snertir.
Eftirfarandi tafla sýnir þorsk-
magn, verðmæti og meðalverö,
veröur að geta þess aö í því er inni-
falin svonefnd kassauppbót, sem
nemur 12% pr. kg. en hún er aö
langstærstum hluta á Vestfjöröum
og Noröurlandi.
Þorskmagn, verðmæti og meöalverð 1977.
Tonn. Þús/kr. Medalv. pr. kg.
Suðurland . . . 27163 1977071 72,78
Suðurnes . . . 51149 3689716 72,14
Rvík, Kópav. Hafnarfj. . . . . . . 30390 2107158 69,34
Vesturland . . . 35117 2550698 72,63
Vestfirðir . . . 56937 4191812 73,62
Norðurl. vestra . . . 21982 1505771 68,50
Norðurl. eystra . . . 59125 4125009 69,77
Austfiröir . . . 41928 3002177 71,60
TAfla 1.
Þá hefur því veriö haldið fram aö
Suöurnesjamenn verkuöu þorskinn
í salt og herslu og jafnvel aö þeir
keyröu svo og svo miklu magni af
þorski í Gúanó, umfram aöra lands-
menn.
Eftirfarandi tafla sýnir verkunar-
skiptingu þorsksins á hinum ýmsu
svæöum áriö 1978.
Keyrt i
Suöurland . . . .
Suðurnes . . . .
Kópav. Hafnarfj. .
Vesturland . . . .
Vestfirðir ........
Norðurland vestra
Norðurl. eystra
Austfiröir . . . .
Fryst Saltað Herzla Innanl.n. Gúanó.
16291 12135 27 57 3
14654 21244 466 22 8
16663 8133 2125 134 3
16852 17354 249 7 4
56234 5012 466 226 14
18856 1981 253 97 14
38050 22405 2050 455 88
24193 16510 148 5 10
Hagnýturþorskur.
Unnið úrskýrslum Fiskifélags íslands.
Lagt fram á fundi í útvegsmannafélagi Suðurnesja, 14. apríl 1979.
Án Sudurnes Grindav./ Vogar. Hafnarfj. Kópav./ Reykjavík: Vesturl. Akranes/ Stykkish.: Vestf. Patreksfj./ Hólmavík: Norðurl. vestra Hvamms- tangi/ Siglufj.: Norðurl. eystra Ólafsfj./ Þórsh.: Austf. Bakkafj./ Höfn: Suðurl. Vest- m.eyjar/ Þor- láksh.:
1969 61.012 38.796 29.859 32.375 16.624 34.665 28.693 34.808
1970 65.998 44.238 34.715 41.177 10.810 31.898 27.513 33.198
1971 53.730 30.308 33.403 34.754 11.468 30.787 27.158 26.134
1972 53.187 24.814 36.701 27.488 8.242 26.495 24.467 20.937
1973 58.433 23.690 34.750 33.769 10.265 30.956 25.601 14.766
1974 43.564 18.250 34.741 36.701 13.881 40.107 24.358 21.647
1975 43.837 24.669 36.271 47.177 17.440 41.191 29.680 23.008
1976 47.383 26.965 34.790 52.725 17.582 43.367 31.972 25.122
1977 51.149 30.390 35.117 56.937 21.982 59.176 41.928 27.763
1978 FAXI — 18 36.394 27.057 34.466 61.952 21.201 63.048 40.866 28.514
Tafla 2.
Af framansögöu má öllum vera
Ijóst aö á Vestfjöröum, Noröurlandi
og Austfjöröum hafa menn stór-
aukiö sókn í þorskinn á sama tíma
og fiskifræóingar hafa gert tillögur
um verulega minnkaöa sókn. Menn
í þessum landshlutum hafa brugó-
ist ókvæóa viö þegar nú eru sett
ákveðin skeröingar ákvæöi, og þaö
þótt þessir sömu menn séu bezt
búnir skipum allra landsmanna til
aö sækja í vannýtta stofna.
Ég vil taka sérstaklega fram aö
þótt ég nefni hér ákveöna lands-
hluta þá er þaö ekki hnútukast af
minni hálfu, heldur er hér um aö
ræða svo miklar staðreyndir, sem
ekki er hægt aö ganga framhjá.
Ef þær upplýsingar, sem hér
hafa komið fram mega veröa til
þess aö auövelda lesendum alla
umræöu um þetta mál þá er betur
af stað fariö en heima setiö.
Ingólfur A rnarson.
framkv.stj. Útvegsm.fél. Suðurnesja.