Faxi - 01.10.1980, Blaðsíða 2
GUÐMUNDUR A. FINNBOGASON:
r
Séra Arni Helgason, héraðsprófastur og
r
biskup í Görðum á Alftanesi
Þeir eru orðnir eðimargir bæði lerðir og leiknir, er frá ómunatíð
hafa stefnt heimför sinni að kirkjustaðnum og bendabýlinu í
Innri-Njarðvík og gengið þar um garða meðan þar var búið að hinni
fomu venju, fram yfír miðja þessa öld. Þangað komu fátekir föru-
menn, vel efnaðir stórbændur og allt þar á milli. Vanvita vesalingar,
vel lærðir embættismenn og valdsmenn. Þar var einagt á móti mönnum
tekið þó misjöfn væri staða og stétt. Margur kom þangað svangur,
kaldur og þreyttur en fór þaðan aftur saddur og hlýr, oft eftir nætur-
hvíld.
I þessari frásögn verður lítillega sagt frá einum þeirra mörgu gesta
er áttu erindum að gegna við kirkjubændurna í Innri-Njarðvík á fyrri
helmingi 19. aldarinnar. Var sá maður úr prestastétt og talinn einn
hinn merkasti og mikilvirkasti í sínu embætti, einnig afreksmaður í
fræðslu og menningarmálum sinnar tíðar.
Maður þessi hét Arni Helgason, prestur og prófastur i Görðum á
Alftanesi, biskup að nafnbót, hafði tvívegis gegngt því embætti alls um
þriggja ára skeið.
Árni Helgason var fæddur
þann 27. okt. 1777. Dáinn 14.
desember 1869. Foreldrar hans
voru séra Helgi Einarsson, síð-
ast á Eyri við Skutulsfjörð, og
hans kona Guðrún Árnadóttir
fastur Kjalarnesþings árið 1821
og hélt því embætti til ársins
1856. Einnig var hann stiftpró-
fastur. Séra Árni tók við af fyrir-
rennara sínum séra Markúsi
Magnússyni frá Vatnsfirði er
var prestur í Görðum frá 1782-
1821. Markús prófastur virðist
ekki hafa lagt mikla rækt við að
heimsækja krikjur sínar á Suð-
urnesjum, svo var að vísu með
kirkjuna í Innri-Njarðvík, að
með vissu frá því um aldamót-in
1800 og fram til þess að hann
hætti sem prófastur 1821 vísiter-
aði hann aldrei kirkjuna þar.
Þegar séra Árni Helgason sest
að sem prestur og prófastur,
fyrst í Breiðholti svo í Görðum,
verður mikil breyting á. Hann
tekur fljótlega til að heimsækja
kirkjuna, vísitera hana, fylgjast
með starfsemi hennar, viðhaldi
og afkomu. I prófaststíð sinni
sem var í þrjá og hálfan áratug,
kom Árni prófastur 11 sinnum
til að vísitera kirkjuna, í fyrsta
sinn 13. júní 1822 og svo næst
14. júlí 1825.
Á þessum árum var séra
Pétur Jónsson á Kálfatjörn og
einnig sóknarprestur Njarðvík-
inga. Bændur í Njarðvíkursókn
höfðu árið 1826 farið fram á við
prestinn sinn að fjölgað yrði
messudögum í sókninni. Varð-
andi þá beiðni og vegna hennar
er eftirfarandi bréf frá Árna
Helgasyni prófasti:
Samkvæmt herra biskupsins
boði innfærist hér fylgjandi -
Þann 12ta þ.m. hefir herra bisk-
upinn tilskrifað mér svoleiðis:
Þareð presturinn séra Pétur
Jónsson á Kálfatjörn í bréft til
mín af I. nóvember f.á. fyrir bón
og samþykki helstu bænda án
mótsagnar kirkjubóndans í Innri-
Njarðvík og eftir sannsýni með
tilliti til fólksfjölda og nauðsyn-
legrar barna uppfræðingar, heftr
sótt um að mega fjölga messu-
dögum á annexíunni, svo gefst
honum hér með leyfi til, eftir-
leiðis að framflytja heilaga þjón-
ustugjörð í Innri-Njarðvíkur
kirkju, þriðja hvern helgan dag á
sumrum, en fjörða hvörn á vetr-
um, þá undireins er áskilið, að
Njarðvíkur sóknar menn, sam-
kvæmt þeirra loforði, sjái kirkju-
bóndann á Njarðvík skaðlausan á
þeim átroðnings auka, sem af
messudaga fjölguninni, fram yftr
það sem verið hefur, orsakast
kynni.
Þetta mitt leyfi, vildi herra
stiftprófastur A. Helgason til-
senda velnefndum sóknarpresti,
sem heftr að auglýsa það, og
síðan innfæra í Njarðvíkurkirkju
bók, viðkomendum til eftirrétt-
ingar, hvörri herra biskupsins
skipun, að svo miklu leyti sem
mig áhrœrir, hér með gjörist
fullnusta.
Görðum 17da febr. 1827
Á. Helgason
rétt afskrifað, vitnar
P. Jónsson
Næst vísiterar Árni prófastur
23. júlí 1829 svo ogaftur 3. sept-
ember 1831 ogennþann 14. júní
1833. í lok þeirrar vísitasíugerð-
ar segir prófastur: Tveggja ára
vísitaríulaun eru mér borguð
með 1 ríkisdal Sölv.
Á þessum árum var Ari Jóns-
son kirkjubóndi í Innri-Njarð-
vík. Ari var seinni maður Guð-
rúnar Oddsdóttur ekkju Egils
Sveinbjarnarsonar (ríka). Ari
lét byggja timburkirkju 1827,
kostaði hún 476 ríkisdali og 56
skildinga.
Ari skrifaði ásamt prófasti
undir alla vísitasíugerðir með-
an hann var uppi. Ari Jónsson
dó í Innri-Njarðvík 17. júlí 1835,
54 ára að aldri.
Næst er Árni prófastur á ferð
þann 19. september 1835 til að
yfirlíta kirkjuna og það er henni
tilheyrir. Þá er Bjarni Péturs-
son kirkjubóndi þar á staðnum,
síðar bóndi í Hákoti, faðir hins
merka bónda, Péturs Bjarna-
sonar í Hákoti. Og enn er Árni
Helgason á vístasíuferð í Innri-
Njarðvík þann 15. júlí 1837. Þar
segir prófastur í stuttri grein-
argerð: Kirkjan er í góðu standi
og heldur öllu sínu, á nú til góða
39 ríkisdali og 12 skildinga.
Undirskrifa ásamt prófasti:
Bjarni Pétursson og
Olafur Ásbjörnsson
(faðir Ásbjarnar hreppstj.)
Næst vísiterar prófastur að
Innri-Njarðvík 27. ágúst 1839
og svo tveimur árum síðar þann
prests í Gufudal Ólafssonar.
Séra Árni Helgason varð pró-
Árni Helgason, prófastur og biskup
FAXI - 118