Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1980, Blaðsíða 18

Faxi - 01.10.1980, Blaðsíða 18
Kirkjukór Innri-Njarðvíkur óskar eftir söngfólki í allar raddir. Ragnheiður Guömundsdóttir sér um raddþjálfun. Hafið samband við Jakob Snælaugsson í síma 6036 eða Helga Bragason í síma 3701 Loftpressa Tek aö mér múrbrot, fleygun og borun fyrír sprengingar. Geri föst ^erötilboö SÍMI 3987 Sígurjón Matthiasson Brekkustig 31 c - Y-Njarövík Dagvistun barna á einkaheimilum í Keflavík Athygli er vakin á því, að samkvæmt 35. gr. reglu- gerðar um vernd barna og unglinga, eróheimilt að taka barn/börn í dagvist á einkaheimilum gegn gjaldi nema viðkomandi heimili hafi verið veitt leyfi til slíkrar starfsemi frá viðkomandi barna- verndarnefnd. Félagsmálafulltrúi Keflavikurbæjar Auglýsingasími Faxa er 1114 Knattspyrnufélag Keflavíkur 30 ára Laugardaginn 4. okt. sl. var haldin í Félagsheimilinu Stapa afmælishátíð KFK. Var þar veriö að halda upp á 30 ára afmæli fé- lagsins. Formaður þess, Sigurö- ur Steindórsson, flutti afmælis- ræðu og minntist ýmissa tíma úr sögu félagsins. Félagið var stofnað af miklum áhugamönnum um knattspyrnu og var Ársæll Jónsson þar fremstur í flokki, og er enn í dag ötull þátttakandi í starti félags- ins. Fyrsti formaður var Eyjólfur Guðmundsson og gjaldkeri Kristinn Danivalsson. Félagiö lét fljótlega aörar íþróttagreinar til sín taka, m.a. frjálsar íþróttir og sund. Knatt- spyrnan hefur þó alltaf skipaö heiðurssess í starfinu og marga hildi hefurfélagiöháöviðhöfuð- andstæðinginn. Ungmennafé- lag Keflavíkur. Forráðamenn annarra íþrótta- félaga Keflavíkurfluttu ávörp og færðu félaginu gjafir í tilefni dagsins. Bæjarstjórn Keflavíkur færði félaginu að gjöf 1 milljón krónur, sem örlítinn viröingar- vott fyrir starf þess í þágu æsku bæjarins. Það er fastur liður í starfi fé- lagsins ð heiðra þá félaga sem á einn eöa annan hátt skara fram úr í leik og starfi. Að þessu sinni hlutu eftirfarandi menn silfur- merki KFK: Óli Þór Magnússon, Ragnar Margeirsson og Ingvar Guð- mundsson fyrir leiki meö ungl- ingalandsliölnu, og gullnælu fyrir landsliösleiki hlutu Óskar Færseth, Sigurður Björgvins- son og GuðmundurGuömunds- son, rannsóknarlögreglumaður, en hann starfaöi áöur fyrr með miklum dugnaði og var valinn í B-landslið. Þá hlaut Jón Ólafsson farandgrip sem veitturerþeim af yngri félögum sem best þykir hafa unnið á árinu, en Bjarni Ástvaldsson fyrir störf í hóp hinna eldri. Sævar Halldórsson, formaöur æskulýósráös og handbolta- maður með meiru, sýndi þann rausnarskap aö ánafna hand- knattleiksráöi IBK andvirði þriggja happdrættisvinninga sem honum hlotnaðist, en þeir voru að verðmæti um 300 þús. Siguröur Steindórsson hefur veriö formaður KFK um langt skeiö og er öllum aö góóu kunnur fyrir það starf sitt. Lýsti hann því yfir að hann hyggöist draga sig í hlé á næsta aöalfundi félagsins. Voru honum af öllum viöstöddum þökkuð hans ómetanlegu stört aö íþróttum í Keflavík. Faxi óskar KFK til hamingju á þessum tímamótum og óskar félaginu langra og giftudrjúgra Iffdaga. H.H. Garöar Oddgeirsson, formaöir (BK, þakkar Siguröi Steindórssyni fyrir mikiö og gott starf í þágu íþrótta og æsku Keflavíkur, og óskar honum til hamingju meö afmælið og afhendir honum fallega gjöf. Ljósm : s Liiiiendahi FAXI - 134

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.