Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1980, Blaðsíða 11

Faxi - 01.10.1980, Blaðsíða 11
Kjartan Ólafsson héraðslæknir - Sextugur Eins og við mátti búast og i fullu samræmi við vinsældir Kjartans Ólafssonar hóraðs- læknis, heimsótti fjöldi manns hann á sextugsafmælinu og veitti honum margháttaða virð- ingu og vináttuvott. Fluttar voru margar ræður, þar á meðal for- seti bæjarstjórnar Keflavikur, Tómas Tómasson, og bæjar- stjórinn i Grindavik, Eirikur Alexandersson, sem færðu honum þakkir fyrir langt og giftudrjúgt starf að heilbrigðis- þjónustu í héraðinu, þökkuðu einnig persónuleg kynni og vin- áttu á liðnum árum og árnuðu honum heilla á ókomnum árum. Undir þær óskir tóku margir, m.a. sóra Jón Árni Sigurðsson, sem flutti honum eftirfarandi Ijóð: MEÐ VIRÐINGU OG ÞÖKK TIL KJARTANS ÓLAFSSONAR' héraðslæknis, á sextugsafmæli hans, 11. 9. 1980 Að lækna mein og lina þraut, það lifsstarf kaustu þór. Þú gengið hefur gæfubraut, Guðs á vegum hór. Veikra hefur vitjað þú, og vinarhönd þeim rótt. Glætt hjá mörgum gleði og trú, og gagnleg boð þeim sett. Holl hefur verið höndin þin, holl og góð þin ráð. Lifðu heill, unz dagur dvin, Drottins studdur náð. Jón Árni Sigurðsson Kjartan Ólafsson hóraðslækn- ir i Keflavikurlæknishóraði, er sextugur i dag. Kjartan hefur gegnt hór hóraðslæknisstarfinu frá 1. janúar 1958, þ.e. i nær 23 ár. Hvað eru margar starfsstundir i 23 ára starfi hóraðslæknis? Flestir lifa við 8-10-15 stunda starfsdag, en læknirinn i fjöl- mennu og stóru læknishóraði má vera tilbúinn að gegna kalli á nóttu sem degi og frá sjúkrabeð- inu fylgja lækninum oft óhyggjur um batahorfur. Hvild- erstundirnar verða þvi vissulega oft fáar en andvökustundirnar margar. í móðurætt er Kjartan Ólafs- son ættaður úr Hrunamanna- hreppi i Árnessýslu. Amma hans, Valgerður, var systir Jóns Bjarnasonar bónda i Galtafelli, fööur Einars Jónssonar mynd- höggvara. Kristin móðir Kjart- ans, dóttir Valgerðar, og Einar Jónsson myndhöggvari voru þvi systkinabörn. Ólafur faðir Kjart- ans var Vestfirðingur. Annaðist hann barnakennslu i Hruna- mannahreppi á þessum árum, trúlofaðist hann Kristinu á Efra- Seli. Er stundir liðu fluttist Kristín með unnusta sinum til Þingeyrar og hófu þau þar búskap. Lengst af munu Grindviking- ar hafa notið næsta litillar lækn- isþjónustu. Byggðarlagið var löngum mjög úr þjóðbraut, ein- angrað frá aðalbyggðakjarna Reykjanessins af illfærum apal- hraunum sv'o óhægt var um öll samskipti við önnur byggðar- lög, aðdrætti alla og ekki sist læknisþjónustu. Löngum sat aðeins einn læknir i læknishór- aðinu fjölmennu og vegalausu. Árið 1918 var einangrunin rof- in. Þó var lokið við að leggja ak- færan veg til Grindavikur. Hvilik umskipti, meðal annars varð nú auðvelt að ná til læknis, jafnvel koma sjúkum á sjúkrahús et þess var talin þörf. Árið 1929 verður jafnan talið merkisár i heilbrigðisþjónustu vi6 Grindvikinga. Hinn nýskip- aði héraðslæknir, Sigvaldi Kaldalóns, settist að i Grindavik vegna húsnæðisleysis iKeflavik. Þegar svo stóð á brugðu Grind- vikingar skjótt við og byggðu vandað hús yfir lækninn. Var héraðslæknirinn nú sestur að i Grindavik og sat þar allmörg ár uns heilsa hans bilaði og hann flutti til Reykjavikur. Siðan hefur læknir ekki setið i Grindavik. Ullu hefur samt þokað i eðlilega átt. Nú tekur læknir á móti sjúklingum á lækninga- stofu i Grindavik og annast vitj- anir fimm daga i viku hverri, en auk þess hafa læknar frá Kefla- vik reynst einstaklega fljótir að bregða við hafi skyndilega legið á lækni. Tel óg nú all vel séð fyrir heil- brigðisþjónustu i byggðarlag- inu og mun héraðslæknirinn Kjartan Ólafsson eiga þar drýgstan hluta að, hversu vel hefur til tekist. Hefur hann jafn- an af einhug og viðsýni unnið að þvi að nú njóta flest eða öll byggðarlögin i læknishóraðinu ágætrar heilbrigðisþjónustu. En starfsárunum fjölgar. Sem lækni man óg Kjartan best er hann sinnti heilbrigðisþjónustu í grunnskólanum, hversu mikillar hlýju og varfærni þeir nutu er veilir voru. Bak við góð læknis- ráð var jafnan hinn velviljaða og hugsandi mann að finna. Enn verður mór þvi að segja, ersjúkir rekja vandkvæöi sin um hægan bata: ,,En hefurðu talað viðhann Kjartan Ólafsson hóraðslækni?" Ég þakka Kjartani læknis- störfin og persónuleg kynni á liðnum árum, vona að læknis- hóraðið megi enn um mörg ár njóta hæfileika hans og ágætra krafta. Honum og fjölskyldu hans árna óg allra heilla og blessunar i framtið. Einar Kr. Einarsson Hinn 11. september varð Kjartan Ólafsson héraðslæknir sextugur. Hingað fluttist hann frá Vest- fjörðum 1958. Föður hans, Ólafi Ölafssyni, skólastjóra frá Dýra- firöi, kynntist óg fljótt eftir að hann kom hingað suðurtil sonar sins. Ólafur var um margt sór- stæður og stórmerkur maður. Siöan hefi óg oft lagt leið mína á Kirkjuteiginn og notið gestrisni þeirra Ásdisar Jóhannsdóttur og Kjartans. Og á afmælinu komu fram vinsældir þeirra hjóna. Mér er sagt að um þrjú hundruð manns hafi heimsótt þau þann dag. Þó er Kjartan fremur hlódrægur maður og litið fyrir það aö ota sinum tota. Við Suóurnesja- menn eigum honum margt að þakka. Þróun heilbrigðismála hór hefur veriö hröð og þar hefur Kjartan sannarlega lagt sitt lóð á vogarskálina. Þó hygg óg að hann sé langt frá því að vera ánægöur með núverandi ástand þeirra mála. Og þannig eiga allir sannir umbótamenn að vera. Ég vil svo endurtaka ham- ingjuóskir minar og konu minnar til þeirra hjóna og óska þess að þau verði hórsem lengst byggðarlaginu til gagns og okkur öllum til fróðleiks og skemmtunar. Hilmar Jónsson Tilkynning frá Fiskveiða- sjóði íslands um um- sóknir um lán á árinu 1981 Á árinu 1981 verða veitt lán úr Fiskveiðasjóði (s- lands til eftirtalinna framkvæmda í sjávarútvegi: 1. Til framkvæmda í fiskiðnaði. Eins og áður verður einkum lögð áhersla á framkvæmdir er leiða til aukinnar hag- kvæmni í rekstri og bættrar nýtingar hrá- efnis og vinnuafls og arðsemi framkvæmd- anna. Ekki verða veitt lán til að hefja bygg- ingu nýrra fiskvinnslustööva, eða auka verulega afkastagetu þeirra, sem fyrir eru á þeim stöðum, þar sem talið er að næg afköst séu þegar fyrir hendi til vinnslu þess afla, sem gera má ráð fyrir að til falli í byggðarlaginu. 2. Tll fisklskipa. Lán verða veitt til skiptaá aflvél og til tækja- kaupa og endurbóta, ef talið er nauðsyn- legt og hagkvæmt, svo og einhver lán til nýbygginga innanlands. Umsækjendur um lán skulu skila umsóknum sínum á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt þeim gögnum og upplýsingum sem þar er getið, að öðrum kosti verður umsókn ekki tekin til greina. (Eyðublöðin fást á skrifstofu Fisk- veiðasjóðs íslands, Austurstræti 19, Reykja- vík). Umsóknarfrestur er til 1. desember 1980. Umsóknir er berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina við lánveitingar á árinu 1981, nema um sé að ræða ófyrirséð óhöpp. Allar eldri umsóknir þarf að endurnýja. Lánsloforð Fiskveiðasjóðs skal liggja fyrir, áður en framkvæmdir eru hafnar. FAXI - 127

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.