Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1980, Blaðsíða 17

Faxi - 01.10.1980, Blaðsíða 17
Stuttar fréttir af sumarstarfi STAKKS Um hvítasunnuna í vor fóru nokkrir Stakksfélagar á Hvanna- dalshnjúk. Hófst feröin við Stakkshúsið á Bergi um átta- leytiö á föstudagskvöldi. Var ekiö í Skaftafell og var komið þangað um hálf fimm um moruninn. Þegar menn skriöu úr tjöldum um hádegi daginn eftir var komið hið besta veður og voru menn bjartsýnir á að þaö héldist. Það sem eftir var laugar- dagsins notuðu menn tímann til aö athuga búnaö, bursta skó og hvíla sig. Klukkan hálf átta um kvöldiö var lagt af staö. Fyrst var ekið frá Skaftafelli að Sandfelli, sem er eyöibýli undir Öræfajökli, og þaöan átti gangan að hefjast. Fyrst er gengiö upp á Sandfells- heiöi og henni fylgt alveg upp í snjóinn, sem er í um þaö bil 1000 m hæö. Sóttist gangan vel og vonum framar þar til upp í snjó- inn var komið. Var færið ansi þungt, því menn sukku í ökla og brattinn þó nokkur. En það hafö- ist þó hægt gengi, og klukkan um þrjú um nóttina náðu menn upp á jökulbreiöuna, sem er í um 1800 m hæö. Var þá fyrir höndum sjö km ganga eftir jök- ulbreiöunni að Hvannadals- hnjúk, og gekk þaö seint aö mönnum fannst og fundu menn þá fyrir þreytu og örlítið fyrir þunnu lofti. Sennilega hefur óþolinmæöi verið í mönnum, því eftir um tvo tíma stóö mann- skapurinn undir hnjúknum og leituöu aö leið upp. Mikil jökulsprunga lá bókstaf- lega allan hringinn og fannst ekki leiö upp fyrr en komiö var alveg norður fyrir Hnjúkinn og var hún nokkuð greið en brött. Tókumen fram mannbroddaog héldu af staö. Eftir um það bil hálftíma göngu stóðu menn á hæsta tindi landsins. Haföi veðrið haldist hið allra besta og var útsýnið alveg frábært, ekki ský á himni en nokkuð misturog þá helst í norðurátt. Var stoppaö á tindinum í um það bil hálftíma viö myndatökur og sjálfsá- nægju. Var klukkan um 6 um morguninn þegar haldiö var til baka og sólin baöaði jökulinn í geislum sínum og var birtan allveruleg. Strax byrjaði snjó- skorpan að þiðna og þyngdist færið jafnt og þétt og síðasta spölinn í snjónum sukku menn alveg í hné. Er þettaein ástæöan fyrir þvi aö menn kjósa frekar að ferðast á jöklum að næturlagi. Náðu menn bílunum um klukkan 10 og hafði ferðin þá tekið 14% tíma, sem þykir bara gott. Voru þaö þreyttir og sælir félagar sem skriöu í poka þegar á tjaldstæðiö var komið. Veörið hélst alveg frábært allan tímann og jökullinn auöur bókstaflega alla helgina, en kunnugir segja að Hvannadalshnjúkur sé hul- inn skýjum nema 7 eöa 8 daga á ári. Og álitu menn sig aldeilis Gó6 tilþrtf I Jeppakeppnl. Á hæsta tlndl landslnt. Tallð frá vlnstrl: Jón Axel Stelndórsson, Elnar BJarnason, Ágúst Arason, Rúnar Helgason. Ljósm. Þorsteinn Marteinss hepþna að hafa fengiö 3 af þessum fáu dögum. Ekki grun- aði mannskapinn aö eitt besta sumar í manna minnum var að ganga í garð og sjálfsagt hefur þessi 7 til 8 daga regla eitthvað riðlast í sumar. HRAFNTINNUSKER OG ÍSHELLUR Um miðjan ágústfóru Stakks- félagar í aðra gönguferö, kannski ekki eins erfiða, en ekki síður skemmtilega. Nú átti aö ganga frá Álftavatni á Syðri- Fjallabaksleið í Landmanna- laugar meö viðkomu í Hrafntinnuskeri. Var meiningin að fylgja gönguleið þeirri sem Ferðafélag Islands hefur stikað og sett niður skála með hæfilegu millibili fyrir göngufólk. (fyrra- sumar gengu Stakksfélagar annan hluta af leið þessari, eða frá skálanum á Emstrum og i Þórsmörk. En nú átti aö ganga í hina áttina og bera allt sitt hafur- task og vera í tvo daga á göngu. Það var frískur hópur sem lagði af stað á laugardags- morgni í blíðskaparveðri frá skálanum viö Álftavatn, en þangað hafði hópurinn komið seint kvöldið áðurog slegiö upp tjöldum frekar en að ryöjast inn á sofandi feröamenn. Leiöin liggur um Kaldaklofs- fjöll og eru þau um 1100 m há. Er í þeim hverasvæði mikiö og fallegt. Reyndar eru hverir má segja út um allt á leiðinni í Hrafn- tinnusker. Útsýnið til suðurs var alveg sérstaklega gott og blasti Mýrdalsjökull við baðaöur í sól. í Hrafntinnuskeri voru hressir ferðalangar sem hópurinn hitti. Voru þeir á ,,smá göngutúr“eins og þeir komust aö orði, og þætti mörgum sá göngutúr nokkuð langur. Hrafntinnusker er ekki síöur kunnugt fyrir íshellana heldur en hrafntinnuna, en hellarnir voru ekki eins tignarlegir og þeirra er venja. Hugsanlega eru einhverjar breytingar aö eiga sér staö. Var síöan slegiö upp tjöldum á flötum, sem eru vestan undir Skerinu og höföu menn þá lagt aö baki ca. 18 km þann dag- inn. Eldsnemma daginn eftir lögðu menn af staö og byrjaöi hópur- inn á því að fara uþp á Skerið og gengu menn þá upp úr skýja- eða þokuþykkni, sem legið hafði yfir öllu. Var það siöan heiöblár himinn sem blasti viðogeinsfal- legan bláan lit sjá menn ekki oft. Voru menn fljótir í Landmanna- laugar, enda leiöin undan fæti mestan hluta. Litir í leirflákunum og lögun hraunsins á leiöinni eru afarskemmtilegirogerhægt að eyöa löngum tíma í að skoða næsta nágrenni Landmanna- lauga ef fólk vill. Að fara í baö í Laugunum er alveg ómissandi hlutur af heimsókn í Land- mannalaugar. Þurfti hópurinn aö taka á sig allverulegan krók á heimleiöinni vegna Heklugoss- ins, en gosmökkurinn lokaði jvenjulegu leiöinni úr Laugun- jum og fór hópurinn því Nyrðri- Fjallabaksleiö til aö sleppa viö mökkinn. Voru menn því ekki komnir að Hellu fyrr en seint um kvöld og var þá mjög tignarlegt að sjá gosiö og hvernig himinn- inn litaöist frá eldunum. Nú er nýafstaðin jeppakeppni björgunarsveitarinnar og er hún ein aöal fjáröflunarleiðin. Þátt- takendur i keppninni voru aðeins fimm og er baö mun færra en oft áður. Ástæðuna fyrir því má hugsanlega rekja til hinna miklu hækkana á bensíni og varahlutum og þarf víst tölu- vert af hvoru tveggja í svona jeppa. Stakkur vill þakka þeim geysimörgu og góöu stuönings- mönnum sínum sem koma og horfa á keppnina ár hvert. Ætlar sveitin að reyna aö bæta og gera þessa keppni enn skemmtilegri og fjölbreyttari í framtíðinni. Vetrarstarf sveitarinnar er nú að hefjast af fullum krafti og hafi einhver áhuga að kynnast því nánar eru reglulegir fundir fyrsta jsriðjudag í hverjum mánuði í Stakkshúsinu á Bergi. Þ.M. FAXI - 133

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.