Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1980, Blaðsíða 4

Faxi - 01.10.1980, Blaðsíða 4
Forláta fiðla úr smjörlíkis kassa Hver voru tildrögin að stofnun Baðstofunnar? Erlingur er hér á tali viö Mr. Stafford - en þaö nafn gaf hann þessari viröulegu smíö. Við Suðurnesjamenn höfum á síöari árum verið stoltir af Baðstofunni okkar. Þar hefur á vissan hátt verið gerð tilraun til að endurvekja og halda í heiðri því besta, sem baðstofu- samfélagið gamla færði þjóðinni í arf, þar sem hönd hjálþaði hendi og einn leiðbeindi öðrum við gerð fagurra muna, stundum til augnayndis en oftar til hagnýtra nota. Nú er svo komið að tvær - þrjár kynslóðir íslendinga hafa aldrei komið í snertingu við virkt baðstofulíf, og þeim fækkar óðum sem þar námu á einn eða annan hátt. Baðstofan var áður fjölbrauta- skóli og aðal menntastofnun þjóðarinnar. Þar lærði sonur af föður sínum, dóttir af móður og hjú af góðum húsbændum. Ungir og aldnir áttu sömu markmið. Héldust hönd í hönd. Bókmennt var þá ekki almennt höfð í hávegum, nema í undantekningartilvikum, hins vegar ýmis konar handíðir, tó- vinna, veiðarfæragerð og annaö það er laut að framfærlsu heimilanna. Bókvitið var ekki látið í askana, sögðu menn, og brauðstritið krafðist mikils tíma og álags hjá þjóðinni, sem bjó öldum saman við harðræði, efnaleysi og algjörlega hjálp- artækjalaus. Ber þó að hafa það hugfast, að sagna- og bókmenntaerfð þjóðarinnar er kannöki mikilvægust þegar á allt er litið og er sífellt aö tæra okkur arð i menningarlegu tilliti. Og var það ekki baðstofan sem átti þar margþætta aöild að? Baðstofulífið þurfti á sögnum að halda til skemmtunar og fróðleiks, var því viss hvati að sagna og Ijóðagerð, sem síðan var lært og flutt á vökunni og að lokum skráð á skinn og varðveitt sem gersemar. Margir voru og eru þeirrar skoðunar, að baðstofulífið hafi átt mikinn þátt í þreki og þolgæði þjóðarinnar. Þar hafði þjóðin hlotið þann styrk til sóknarog varnaráerfiðumtímum er nægði henni til að þrauka dimmar miðaldir, einokun og ofríki. ísaár oa eldgos, sem eyddu heilum byggðum svo fólkið var knúið til að fara á vergang. Þjóðin varðað lifaaf því sem bú og bátskel gat tærst henni í askana. Engin Marshall hjálp eða alþjóða styrktarsjóðir voru þá innan seilingar. þegar svo tækniþróun, þætt afkoma, umdeilt fræöslu- og skólakerfi, hjaðningarvíg smápólitíkusa að ógleymdri stór- veldapólitík (með heitu og köldu stríði) komu til sögunnar, riðluðust góðar geymdir liðinna alda. Einn þeirra vina minna er ég heyrði hvaö oftast tala um mátt baðstofuuppeldisins og þá válegu braut er nú væri farið út á með sundurstíun kynslóðanna, var Hallgrímur Th. Björnsson, fv. ritstjóri Faxa. Hann haföi sjálfur alist upp í þéttsetinni baðstofu ístórum barnahóþ, þarsemforeldrarnir lögðu ríka áherslu á að búa börn sín sem best að heiman, að hætti þess tíma. /Efistarf hans varð síðan barnafræðsla og uþþeldismál. Hans sjónarsvið náði því út yfir þann umbrota- tíma, sem átt hefur sér stað í þessum efnum, allt frá formi baðstofufræðslu, sem byggistánánumkynslóöatengslumtil umdeildrar skólalöggjafar, sem við búum að núna. Fræðslu- og uppeldismál voru honum hugfólgin og hann túlkaði þau bæði í ræðu og riti og raunar alls staðar þar sem hann fékk áhugasaman viðmælanda. Nokkru eftir stríð knúði ungur maður dyra hjá Hallgrími og falaði herbergi til leigu. Hallgrímur ræddi lítillega leigumála, fannst pilturinn framandlegur og forn í máli, en það ásamt kennaraskólamenntun hans kann að hafa ráðið hagkvæmum úrslitum fyrir piltinn, og flutti hann fljótlega í hús Hallgríms. Pilturinn var fyrirferðarlítill, látlaus og prúður, en vel að sér í hugðarefnum Hallgríms. Hann reyndist fjölhæfur hagleiks- maður, varðalltaðsmíðisefni, m.a. minnist ég undrunarHall- gríms er hann sagði mér frá forláta fiölu er leigjandinn hafði smíðað úr smjörlíkiskassa. Þegar ég skoðaöi ágæta myndlistarsýningu Baðstofunnar í vor, rifjaðist það upp fyrir mér, að áður fyrr var stundum mun fjölbreyttari listtjáning á þessum vorsýningum. Einnig hugleiddi ég mikilvægi Baðstofunnar, tilgang hennar og hvern ávöxt hún hefiur borið. Mjög góð aðsókn að sýning- unum bendir til þess, að menningarviðleitni Baðstofufólks- ins sé skilin og metin að verðleikum. Stutt spjall við Erling Jónsson, handavinnukennara, færði mig að rótum þessarar merki stofnunar, sem hann er tví- mælalaust brautryðjandi að. Ert þú Suöurnesjamaöur, Erlingur? „Það er nú líkast til. Fæddur í Móakoti á Vatnsleysuströnd í Ásláks- staðahverfi, en fluttist korn- ungur til Hafnarfjarðar. Annars er föðurætt mín úr Húnavatnssýslu og móður- ætt úr Barðastrandasýslu. En megin hluta starfsævinnar hef ég búið hér í Keflavík". Skólaganga þin, hver var hún? „Ég var í Barnaskóla Hafnarfjarðar og síðan í Flensborgarskóla. Að því loknu fórég ífiðlunám hjá Al- bert Klahn og vann þá iafnframt hjá Landssíma Islands og víðar. Fór því næst í Kennaraskóla íslands og lauk þar námi sem mynd- og handmenntakennari". FAXI - 120

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.