Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1980, Blaðsíða 15

Faxi - 01.10.1980, Blaðsíða 15
Tillaga Runólfs SAMKEPPNI LOKHD UM MERKI GRINDAVlKUR Samkeppni um merki fyrirGrindavlkur- kaupstað er lokið. Tillögur bárust frá 96 aðilum. Dómnefnd varð sammála um að engin tillaga væri hæf til verðlaunaveitingar eða nothæf sem skjaldarmerki í óbreyttu formi, en ákveðið var að veita viðurkenn- ingu fyrir tillögu, sem merkt var kjörorð- inu "HÓP", þar sem nefndin álítur að sú tillaga gæti orðið grundvöllur að góðu merki með frekari úrvinnslu. Höfundur tillögunnar reyndist vera Runólfur Elentínusson, Tröð, Reykdæla- hreppi, S.-Þing. Viðurkenningin er 250 þús. kr. Runólfur Elentinusson STJÓRNARFUNDUR AFLATRYGGINGARSJÓÐS Miðvikudaginn 1. okt. sl. hólt stjórn Aflatryggingarsjóðs sjávarútvegsins stjórnarfund í Keflavlk. Má segja að með þessum fundi hafi verið brotið blað í sögu sjóðsins, sem starfað hefur siðan árið 1949, hét þá að visu Hlutatryggingasjóö- ur. Fundir sjóðsins hafa frá upphafi verið haldnir I húsi Fiskifélags Islands í Reykja- vlk. Aflatryggingarsjóður skiptist i þrjár deildir. Almenn deild sem hefur það hlut- verk að bæta aflahluti skips og áhafnar þegar aflabrest beraö hóndum, eöa þegar brýna nauðsyn ber til að draga úr sókn til verndar mikilvægum nytjastofnum. Ahafnardeild sem hefur það hlutverk að greiöa meginhluta fæöis sjómanna á fiskiskipaflotanum. Veröjöfnunardeild sem hefur það hlutverk að greiða verð- uppbætur á afla einstakra fisktegunda i þvl skyni aö draga úr sókn ieinstakafiski- stofna og beina henni til annarra sem fremur eru taldir þola veiðar. Tekjur Aflatryggingasjóðs er tæpur helmingur (46%) álagöra utflutnings- gjalda af sjávarafuröum sem eru i dag ,5V4% . Tekjurnar i ár má ætla að verði um 7.8 milljaröar. Stjórn sjóðsins er skipuð 7 fulltrúum sem skipaöir eru þannig: Tveir frá Lands- sambandi fsl. útvegsmanna (L(Ú), einn frá Félagi Isl. botnvörpuskipaeigenda (FlB), einn frá Alþýðusambandi Islands (ASli, einn frá Sjómannasambandi Islands (SSI) einn frá Farmanna- og fiskimannasam- bandi (slands (FFSl). Tveir Keflvíkingar eiga sæti í stjórn sjóðsins, Halldór Ibsen, annar tveggja fulltrúa LlÚ, kom hann í stjórnina á þessu ári, og Ingólfur Falsson fulltrúi FFSl og hefur átt þar sæti síðustu 5 árin. MAl Maí-mánuöur er sá árstími er kallar á gróöursetningu og aðfólk taki til hendiog geri hreint fyrir sínum dyrum, fjarlægi drasl af lóðum sinum, þvl þaðer engum til sóma að misþyrma umhverfinu meö alls kyns drasli. Við horfum vonaraugum til vorsins og til hækkandi sólar, vorhugur vaknar, áætl- anir brjótast fram i hugum manna. Menn líta bjartari augum á framtiöina, drungi skammdegisins hverfur, mannfólkið sprettur á fætur snemma að morgni ,,Lóan er komin ', jjessi ástsæli fugl, sem vekur okkur úr dvala vetrarins og flytur okkur yl og sól aö sunnan. Það er kominn mai, erfærirokkursól og gróanda. Þá getum við tekiö undir með skáldinu „Vorið er komið". En þaö voru ekki allir eins hressir meö vorkomuna. Stór hluti islenskra sjó- manna varð að hætta störfum og sigla fleyi slnu i höfn vegna veiöibanns með net. Þetta gerist þegar baráttudagur verkalýðsins er að renna upp. Það hefði kannski mátt velja annan tima til þessarar ákvaröanatöku. 1. mai. - Mér hetur alltaf þótt vænt um þennan dag. Þetta er hátlðar- og baráttu- dagur milljóna manna um heim allan, - manna sem barist hafa fyrir því að hafa onl sig og á. Það er nauösynlegt, að það sé til dagur í Iffi einnarþjóöar, tilaðminna forystu hennar á að það eru hendur þessa fólks er skapa aö miklum hluta þann auö og hamingju er við búum við. Þetta fólk veröur aö fá þau laun sem þaö getur haft mannsæmandi lifibrauð af. Það hlýtur að vera hægt aö brúa biliö á milli háu og lágu launanna. Ég er ekki að tala um að gera alla jafna, en við getum minnkaö bilið. Nú í vertiöarlok er það að segja, að afla- brögð hafa verið með besta móti nú um nokkur árabil, og vonandi fær sjómaður- inn góð laun frá þessari vertið. Því miöur er ekki hægt að segja það sama fyrir fisk- kaupendur i frystiiðnaöi. Þar er allt i kalda koli, - aftur á móti þeir aðilar er kaupa fisk til verkunar í salt og skreið munu koma fjárhagslega vel út. Mikið er talaö um ár trésins. Að þvi til- efni hóldu kvenfólögin I Keflavlk og Njarð- vlk garðyrkjukynningu. Vonandi hefur margur maðurinn lært á þeirri kynningu og búinn aö gróöursetja sinar plöntur öllum til yndisauka. Mikil atvinnuþrá er i Suöurnesjamönn- um. Talað er um að koma upp stóriöju á Reykjanesi og er taliö að verömætasköp- un verksmiðjunnar yrði um 3 milljarðar. Nokkur skip hafa bæst i flota Suöur- nesjamanna, að vlsu gömul. Þá er talaö um að Kaupfólag Suðurnesj- ætli aö reisa verslunarmiöstöö i Njarö- v/kum. Sparisjóðurinn hefur fest kaup á húsi i Garðinum undir starfsemi sina. Þá eru á vegum Hitaveitu Suöurnesja hafnar stórframkvæmdir á Keflavikurflug- velli Nýtt íþróttahús mun rísa í Grindavík. Menningarmálin hafa ekki setiö á hak- anum. Fyrsti nemandi er lokiö hefur burt- fararprófi frá Tónlistarskólanum í Kefla- vík, hólt tónleika I Keflavlkurkirkju, og Karlakór Keflavikur hólt tónleika i Fólags- biói. Systrafélag Ytri-Njarövíkurkirkju heldur vorfagnaö til styrktar kirkju sinni. Kirkjudagur Keflavikurkirkju var 11. mal. Ræöuefni var áfengisvandamáliö. Kaffiveitingar voru til styrktar minningar- sjóðs kirkjunar Miðnesingar hafa að undanförnu sýnt Möppudýragaröinn við góöar undirtektir Rafveita Keflavlkur keypti listaverk eftir Eirlk Smith á 1.4 millj., og urðu ekki allir sáttir um þau kaup. Sigurgeir Þorvaldssyni (Slána slag- brands) var veitt viðurkenning fyrir fram- lag sitt til bókmennta á Suöurnesjum. Ársþing Bandalags íslenskra leikfé- laga var haldiö i Garöinum og það ekki af ástæöulausu, þar sem Litla leikfélagið hefur verið mjög svo athafnasamt i leik- listinni. Landsmót skólalúörasveita var haldiö i Njarðvik. Það er ótrúlegt hvað bórn geta áorkaö. Að undanförnu hafa nokkrir hópar barna haldiö hlutaveltur og látiö ágóöann renna til liknarmála. Tveir hópar afhentu pen- ingagjóf til Þroskahjálpar áSuðurnesjum. Tveir hópar afhentu Sjúkrahúsinu i Kefla- vlk peningagjöf, og svo mætti lengi telja. Nú i Keflavík liggja fyrir umsóknir um lóðir undir 50 einbýlishús, en lóðir liggja ekki á lausu. Sömu sógu er aö segja frá Ytri-Njarövík. Blessuð krian kom til okkar á réttum tlma. 19. mai fyrir 30 árum sigldi stolt islensku þjóðarinnar fánum prýddur inn á Reykjavíkurhöfn. I dag á siglingaþjóöin Island ekki fley á mari til mannflutninga. Islendingar boröuöu 600 tonnum minna af dilkakjöti en i fyrra. Þá segir aö fiskimiö Garöbúa séu i hættu vegna mengunarhættu frá skolp- ræsi er kemur frá Keflavíkurflugvelli. Talað er um lyktarlausa Fiskiöju eftir 15. október. IBK þarf ekki að örvænta, stóð i ein- hverju blaði. A 169 vikum hafa Keflvikingar náö af sér 6'/fi tonni af spiki. Ekki er þaö að sjá á mór Bæjarstjórn Keflavlkur var boöin til kaups íssjoppa. Athyglisverðasti popparinn um þessar mundir er gúanó-rokkarinn Bubbi Morthens. Það skyldi þó ekki vera skíta- lykt af gúanó-rokkinu? Stórfrótt: Morgunblaðið hefur tekiö Tomma og Jenna upp á arma sina til aö kitla hláturtaugar lesenda blaðsins. Eftir að Rögnvaldur Pálsson hætti við forsetaframboö sitt, ætlar hann að líta á Sjálfstæðisflokkinn og athuga hvort hægt sé aö rétta hann viö. I Vlsi segir: ..Kannski þar séfundin lausn áforystuvandamálum flokksins." og nú er Rögnvaldur búinn aö halda málverkasýningu og næst ætlar hann að fara í þingframboö. Malmánuöur virðist hafa verið litrlkur. Mest lesna bók ársins kom út, Símaskrá- in. En hún er ekki að sama skapi auðlesin. Viröist aðeins fyrir þá er hafa mjög góða sjón og er svo að sjá að sjóndöprum sé ekki ætlaö að lesa þá merku bók. Þarna þarf virkilega úr að bæta. I bókinni er auglýsing frá Símanum: ,,Allir lesa síma- skrána". Viö hér í Keflavik getum glaðst yfir því að öldruðum hefur verið sóð fyrir virkilega góðum iverustöðum. Þinglausnir fóru fram á Alþingi 29. mai. Afgreidd voru 63 lög og 15 þingsályktun- artillögur. Þetta þing var um margt sér- stætt. Meöal merkustu mála er afgreidd voru, voru lögin um Húsnæðismálastjórn og breytingar á sjómannalögum. Þá losnuðu blessuð börnin og ungling- arnir úr skólaprisundinni, aö visu meö mismunandi áranqri. Senn liöur að forsetakosningum til handa islenska lýðveldinu. Zakarias Hjartarson JÚNl Þaö mun vera nokkuð föst venja aö þegar menn hefja viöreaöur, þá berst taliö gjarnan að veðrinu. Eg ætla aö hefja þennan stutta júnf-annál með aö lýsa veðrinu og öðru svona I frekar léttum dúr. Júnl-mánuöur byrjaði meö frekar kalda norðanátt og lá við frostnóttum fyrir norður- og noröausturlandi. Er liða tók á mánuöinn hlýnaði mikið í veðri og má segja að frá 15. júní til mánaðamóta hafi veriö sólskin svo til hvern dag hér sunnan lands. Sláttur hófst fyrir mánaðamót, enda mikil grasspretta. Einn var sá atburöur sem bar öörum hærra I júnl, en það voru nýafstaðnar for- setakosningar Ekki þarf að endurtaka þau úrslit aö óöru leyti en þvi, aö frú Vigdis Finnbogadóttir var kjörin forseti, og þar með fyrsta konan I heiminum sem hlýtur þann heiður. Eftir þetta forsetakjör hafa spunnist nokkrar umræöur um þaö, hvernig að slikum kosningum verður staöiö næst, en aö sjálfsögöu verður þá að breyta lögum og reglugeröum. Talaö hefur verið um forkosningar þar sem 4 eða 5 frambjóðendur geta komið fram og kann svo að fara að forseti verði kjörinn meö 26% til 30% greiddra atkvæða. Annaö er það, að mér segir svo hugur aö sá glfurlegi kostnaður sem frambjóð- endur verða fyrir rlði fjárhag þeirra aö fullu, aö minnsta kosti taki þaö langan tlma að jafna sig. Verði haldiö áfram á sömu braut verður það ekki á færi nema margfaldra milljónamæringa aö gefa kost á sér til forsetakjörs. Min skoöun er su aö i landi sem kallaö er land kunningsskaparins, hafi þaö veriö algjör óþarfi allar þær auglýsingar og feröalög um landiö þvert og endilangt, heldur áttu frambjóðendur aö koma sér saman um aö láta útvarp og sjónvarp sjá eingöngu um kynninguna og ekkert annaö. Voru þessir frambjóðendur ekkert Framh. á nsatu aföu FAXI - 131

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.