Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1980, Blaðsíða 10

Faxi - 01.10.1980, Blaðsíða 10
BARTELSÆTTIN 1903. Standandi frá vinstri: Louise MarieThorarensen, t. Bartels, HannesThoraren- sen, maki Louise, Thorgerda Augusta Bartels, Ágúst Sigurösson, maki Ingileifar, Ingileif Anna Bartels, Carl Ferdinand Bartels, Martin Andreas Theodor Bartels. Sitjandi frá vinstri: Arndís Bartels, Sara Dor- thea Vilhelmina Bartels, f. Clausen, Johann Heinrich Bartels, Hedvig Dorthea Bartels. Sitjandi barniöer Hinrik Vilhelm Thorarensen, sonur Louise og Hannesar Thorarensen. Frá Byggðasafni Suðurnesja, Vatnsnesi, Keflavík Fyrir nokkru barst safninu bréf frá manni i Reykjavík aö nafni Haraldur Ágústsson. Meö bréfinu sendi hann eftirmæli afa síns H.J. Bartels, en H.J. Bartels haföi komiö frá Danmörku til Keflavíkur 4. júní 1861, þá 15 ára gamall. Hann var viö verslun P. Duus fram til 1869 er hann fór aftur til Danmerkur til dvalar þar í eitt ár. Sumarið 1870 kom hann svo aftur til íslands og gerðist þá starfsmaöur Sassverslunar á ísafiröi og viö þá verslun var hann þangaö til 1882, en þaö ár fluttist hann aftur til Keflavíkur og gerðist verslunarstjóri fyrir W. Fischer kauþmann. Hjá Fischer var hann verslunarstjóri þangað til áriö 1894 er hann flutti til Reykjavíkur. Móðir Har- aldar Agústssonar var dóttir H.J. Bartels og hét Ingileif Anna. Tal- aöi hún oft viö börn sín um Keflavík, sem hún bar hlýhug til vegna góöra endurminninga er hún átti þaðan og mun hafa komiö suður á efri árum til aö skoöa gamlar slóöir. Jafnframt bauöst Haraldur til að láta safniö fá mynd af Bartels- fjölskyldunni, ef viö kæröum okkur um og einnig Ijósrit af niöjatali ættarinnar, en elstu heimildir hennar eru frá 15. öld. Að sjálfsögðu þáöum við gott boö og viljum hér meö þakka Haraldi fyrir hugulsemina við safnið og jafnframt vill stjórn safnsins þakka þeim mörgu hér syöra, sem fært hafa safninu stórt og smátt síöan það var opnaö, og vonum aö áframhald veröi á. Hverjir hafa dregíö fána aö hún á lýöveldis- stönginni 17. júní? Nokkru eftir aö lýöveldisfána- stöngin í skrúögaröinum var reist, var tekinn upp sá siöur að heiöra hverju sinni einn borg- ara þessa bæjar með því að láta hann draga fánann aö hún á stönginni 17. júní, en eins og menn vita er flaggað á stöng þessari þennan eina dag ársins. Ein undantekning hefur þó oröiö á, en þaö var þegar fyrsti forseti fslands kom hingað í heimsókn. Þaö er af ýmsum til- efnum sem menn hafa hlotið þennan heiöur og heföi mátt ætla að umsögn um þetta hefði verið haldiö til haga í fundar- geröum 17. júní nefnda, en svo hefur því miöur ekki veriö gert svo fullnægjandi sé, nema nú síöustu árin. Innan byggðasafnsnefndar hefur komiö fram sú hugmynd aö á safninu væri aðfinnaalbúm meö myndum af viðkomandi að- ilum ásamt umsögn þar um. Með þetta fyrir augum hefur veriö leitast viö aö vinna úr þeim gögnum sem fyrir hendi eru, en sem hafa ekki reynst áreiðanleg- ar, og margar eyður eru þar að finna. Viö birtum hér útkomuna og væntum leiöréttinga og að fyllt veröi upþ í eyöurnar. Jafn- framt munum viö svo leita eftir myndum af viökomandi aöilum og af atburöinum, ef slíkar myndir eru fyrir hendi. Viö þurfum aöeins aö fá myndirnar aö láni til eftirtöku. Einnig vær okkur kærkomið ef þeir sem ættu góðar myndir af 17. júní hátíöahöldum og það jafnt þótt um skyggnur (slides-myndir) sé aö ræöa, vildu lána okkur þær til eftirtöku. Ólafur Þorsteinsson, Túngötu 19, sími 2087, mun sjá um þessa framkvæmd fyrirsafn- iö. Viö viljum ítreka beiöni okkar til almennings: Lániö safninu allar þær myndir sem varöar byggöasögu, atburöi og íbúa Keflavíkur og Njarövíkur, til eft- irtöku. Á safninu eru þær best geymdar. Þeir sem dregið hafa fánann aö hún 17. júní: 1945 Skátaflokkur 1946 Óskar Ingibersson 1947 ? 1948 ? 1949 Ragnar Guöleifsson 1950 Óskar Ingibersson 1951 Guölaug Guöjónsdóttir 1952 Sr. Eiríkur Brynjólfsson 1953 Inga Eygló Árnadóttir 1954 Elínrós Benediktsdóttir 1955 Sr. Ólafur Skúlason 1956 Björgvin Hilmarsson 1957 Margeir Sigurbjörnsson 1958 Guöríður Jónsdóttir 1959 Jón Guðbrandsson 1960 Marta Valgerður Jónsd. 1961 Eyjólfur Bjarnason 1962 ? 1963 Jóna Guöjónsdóttir 1964 Jón Guöbrandsson 1965 Högni Gunnlaugsson 1966 Helgi S. Jónsson 1967 Ólafur Ingibersson 1968 ? 1969 Þorbjörn Kjærbo 1970 Guöni Kjartansson 1971 Ragnar Guðleifsson 1972 Ólafur S. Lárusson 1973 Bergsteinn Sigurðsson 1974 ? 1975 ? 1976 ? 1977 ? 1978 Sesselja Magnúsdóttir 1979 Jón Tómasson 1980 Árni Þorsteinsson Stjórnin Laus staða Staöa skrifstofumanns Landshafnarinnar í Kefla- vík-Njarðvík er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist skrifstofu hafnarinnar fyrir 1. nóvember næstkomandi. Hafnarstjórinn i Keflavík-Njarövlk Keflavfk, 30. sept. 1980. FAXI - 126

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.