Faxi - 01.10.1980, Side 14
Sú harmafregn sem barst hér
um Garöinn aö morgni 18. sept-
ember sl., aö Þóröur Gíslason
sveitarstjóri væri dáinn, kom
sem reiöarslag yfir okkur Garö-
búa. Þó viö vissum að hann
gekk ekki heill til skógar, vegna
þess sjúkdóms sem hann var
haldinn, þá hefur víst engan
rennt grun í að svo snögglega
mundi um skipta, en það er nú
svo með okkur jaröarinnar börn,
aö þau vistaskipti sem dauöinn
færir okkur koma ávallt að óvör-
um, og sem betur fer veit enginn
sína ævina fyrr en öll er.
Þóröur Gíslason var fæddur
24. janúar 1929 aö Fitjakoti á
Kjalarnesi, en ólst upp í Reykja-
vík og átti lengst af heima á
Hverfisgötu 88b.
Ungur aö árum missti Þórður
föður sinn af slysförum, og varö
hann þá aö hætta langskóla-
námi, er hann var byrjaöur á og
hugur hans stóð til. Hann tók við
starfi fööur síns sem sundlaug-
arvörður og sá þennig farborða
móöur sinni og þrem ungum
systrum. Síöar lauk hann sveins-
prófi í trésmiði og er meistara-
skóli byggingamanna varsettur
á stofn, þá var Þórður í braut-
ryöjendahópnum og varö hlut-
skarpastur á lokaprófi. Þá stund-
aöi hann hagræöingarnámskeiö
á Noröurlöndum og síöar í Eng-
landi og starfaöi um tíma viö
hagræöingardeild Alþýöusam-
bands íslands. Þóröur náöi góö-
um tökum á tölvutækni og var
um tíma kennari í tölvufræöum
viö Menntaskólann við Hamra-
hlíö og samdi þá forritin sem
notuö eru viö stundaskrárgerö í
áfangaskólum. Þaö má segja aö
starf og nám hafi skipst á í lífi
hans alla tiö, og var hann opinn
fyrir öllum nýjungum og sagöist
hann alltaf vera að læra eitthvað
nýtt.
Ég kynntist Þóröi fyrir rúmum
tveimur árum, er viö í hrepps-
nefnd Geröahrepps réöum hann
sem sveitarstjóra. Þaö kom fljót-
lega í Ijós aö hér höföum viö
fengiö starfsaman úrvals mann,
sem lét hag og velferö sveitarte-
lagsins ganga fyrir öllu. Mentun
og starfsreynsla Þóröar kom hér
Þórður Gíslason
sveitarstjóri - Garði
aö góöum notum, því hér var
margt að vinna og margt sem
þurfti lagfæringar við. Þegar
Þóröurtók viöfjármálum hrepps
ins, var greiöslustaöan mjög
slæm, þannig að fyrsta áriö fór í
það aö koma bókhaldsmálum
og innheimtu í betra horf, og þar
af leiðandi urðu verklegar fram-
kvæmdir litlar. Um síðustu
áramót var þetta oröiö gjör-
breytt, þá haföi honum tekist aö
koma innheimtunni í það gott
horf að hún var með því besta
sem þekktist, og greiðslustaðan
oröin góð, enda var þá veriö meö
mörg járn í eldinum varðandi
ýmsar framkvæmdir, sem á döf-
inni eru. Þetta sýnir hversu góö
tök hann haföi á bókhaldsmál-
um og hagræöingu viö þau störf.
Þá hefur sveitarfélagiö notið
góös af þeirri miklu tölvutækni
sem hann haföi á valdi sínu, og
haföi hann komið upp full-
komnu tölvubókhaldi fyrirsveit-
arfélagiö, sem nýtast mun til
frambúöar. Til aö ná þessum
góöa árangri á svo skömmum
tíma, þurfti mikla vinnu og út-
sjónarsemi og er óhætt aö segja
aö Þóröur hafi oft og mörgum
sinnum lagt nótt við dag til aö
koma þessu í kring, enda mátti
oft sjá Ijós á skrifstofu hans fram
á nótt.
Þóröur var þannig geröur aö
allan undirbúning aö þeimfram-
kvæmdum sem fyrirhugaðareru
vildi hann vanda sem mest.
Hann lagöi því mikla áherslu á
að öll hönnun og undirbúnings-
vinna væri sem best af hendi
leyst og allt lægi Ijóst fyrir er
framkvæmdir hæfust. Þaö hefur
verið unniö aö ýmsum nauð-
synjamálum að undanförnu, og
er bygging sundlaugar og
íþróttahúss eitt af þeim. Þóröur
hafði mikinn áhuga á því að
koma þessari byggingu upp,
sérstaklega sundlauginni, og
mikla ánægju haföi hann af því
hversu börnin hér í byggöarlag-
inu sýndu málinu mikinn áhuga
og höföu þrír barnahópar fært
Þóröi smá peningaupphæöir
til byggingarinnar, en þau hafa
sýnt þaö framtak aö safna
peningum með því aö halda
hlutaveltur. Þóröi þótti vænt um
þetta framtak barnanna, því
hann var í raun mjög barngóður
maöur. Þóröurvaríerindagjörö-
um fyrir sveitarfélagiö er hann
veiktist og hans síöasta verk var
á hönnunarskrifstofunni, sem
sér um teikningu og hönnun á
sundlaugar- og íþróttahúss-
byggingunni.
Viö Garöbúar getum á engan
hátt minnst Þórðar heitins betur
en meö því aö efla sundlaugar-
sjóðinn sem mest og koma
sundlauginni upp sem allra
fyrst. Vonandi verður fullorðna
fólkiö ekki eftirbátar barnanna.
Ég vil aö endingu þakka Þóröi
ánægjuleg kynni og gott sam-
starf þennan stutta tíma, er við
nutum hans miklu hæfileika, og
hreppsnefndin þakkar þau vel
unnu og óeigingjörnu störf sem
hann hefur leyst af hendi fyrir
okkur Garöbúa, því það er
ekkert oflof þó sagt sé aö hag
sveitarfélagsins setti hann ofar
öllu, og mér viröist sem Þórður
hafi verið þannig gerður, aö ef
hann tók eitthvert starf að sér þá
vann hann aö því af lífi og sál og
undi sérekki hvíldarfyrren hvert
mál sem hann tók fyrir var far-
sællega i höfn komið.
Þóröur var kvæntur Aldísi
Jónsdóttur, tónmenntakennara,
og eiga þau einn son, Gísla Jón.
Aldís hefur kennt söng og hljóö-
færaleik hér í Garöi, frá því þau
komu hingaö fyrir rúmum tveim-
ur árum, fyrst viö grunnskólann,
síöan viö tónlistarskólann eftir
aö hann var stofnaöur, og var
hún einn af hvatamönnum að
stofnun hans. Þóröur heitinn
studdi skólann af ráðum og dáö,
svo og önnur menningarmál í
Garðinum. Ég votta þeim Aldísi
og Gísla samúö mína vegna frá-
falls okkar ágæta sveitarstjóra.
En þó söknuöurinn sé sár, þá
vona ég að gleöin yfir margra
ára samfylgd góös förunautar
veröi honum sterkari.
ólafur SigurOsson
Sérleyfisbifreiðir Keflavíkur
FERÐAÁÆTLUN
Sandgerði — Keflavík — Reykjavík.
Frá Frá Frá
Sandgerði Keflavík Reykjavík
9,00 6,45* 9,00*
12,45 9,30 13,30
15,00** 13,30 15,30
17,00** 15,30 17,30
19,00** 17,30 19,00
19,30 23,00
*) Ekki helgidaga.
**) Ekiö um Miönesheiöi, annars
um Garö.
Aukaferðir á helgidögum: Frá Keflavík kl. 12,00 og 22,30. Frá Sandgerði kl. 22,00. Frá
Reykjavík kl. 10,30 og 24,00.
Nýársdag, föstud. langa, páskadag og hvítasunnudag er fyrsta ferð kl. 12,00 frá Keflavík.
Kjörorðið er:
ÖRYGGI
ÞÆGINDI
HRAÐI
Afgreiðslur okkar eru:
í Reykjavík í Umferðarmiðstöðinni
sími 22300.
í Keflavík að Hafnargötu 12
sími 1590.