Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1983, Blaðsíða 4

Faxi - 01.01.1983, Blaðsíða 4
Stjórn VSFK. Sitjandi frá vinstri: Björgvin Þorvaldsson, Guðlaugur Þórðarson, Helgi Jónsson, Karl Steinar Guðnason, formaður, Jóhann Alexandersson, Sigurbjörn Björnsson, framkvœmdastjóri VSFK. Standandi: Helgi Steinarsson, Arni Her- mannsson, Hilmar Harðarson, Guðmundur Finnsson, Slefán Kristinsson, Einar Jónsson. Ljósm. Heitnir. Guðjónsson og Þorbergur Sigur- jónsson. Já, í Keflavík/Njarðvík var mik- ið að ske. Það var fylgst grannt með gjörðum þeirra er þorðu að leggja málstað verkalýðsins lið. Atvinnurekendur neituðu áð viðurkenna félagið, sem samnings- aðila. Alþýðusambandið setti þá afgreiðslubann á alla báta í Kefla- víkurhöfn. Utgerðarmenn og aðrir atvinnurekendur funduðu. Þeir gerðu með sér samtök um að brjóta félagið á bak aftur - með ofbeldi. Ofbeldi — mannrán Aðfaranótt hins 20. janúar 1932 réðst hópur manna inn í hús eitt í Keflavík, þar sem félagsformaður- inn Axel Bjömsson var næturgest- ur. Var þar kominn flokkur út- gerðarmanna 20 - 30 talsins. Þeir létu ófriðlega og eftir nokkur orðaskipti og hótanir um meiðing- ar tóku þeir Axel með valdi, - fóru með hann um borð í vélbát og fluttu til Reykjavíkur. Var honum hótað öllu illu, ef hann sæist aftur í Keflavík. Þessi átök hleyptu illu blóði í verkafólk hér um slóðir. - Segja má að raun- verulegt styrjaldarástand hafi ríkt hér um skeið. Litlu síðar fengu út- gerðarmenn hreppsnefndina til að koma saman og þvingaði hún stjóm verkalýðsfélagsins til að boða til félagsfundar. . Jafnframt kúguðu þeir eigin- konur og böm félagsmanna með hótunum og svívirðingum - svo þeim varð ekki vært í bænum. Og þegar félagsfundurinn var haldin umkringdu þeir húsið, - þrengdu sér síðan inn á fundinn og kúguðu fundarmenn til að sam- þykkja að félagið skyldi lagt niður. Aðeins einn maður greiddi at- kvæði gegn slitum á félaginu. Aðr- ir treystu sér ekki til annars en greiða atkvæði með niðurlagn- ingu, enda var mönnum hótað öllu illu og stór orð látin falla. Stríðinu ekki lokið En þótt þessi omsta tapaðist, var stríðinu ekki lokið. Nokkmm mánuðum síðar eða hinn 28. des- ember 1932, - fyrir 50 ámm, - komu 19 verkamenn saman til fundar um endurvakningu eða stofnun nýs verkalýðsfélags. Það var alvara í hug þessara manna. Þeir vom staðráðnir í að standa saman, - um þær hugsjónir er þeir áttu sér. Þeir horfðu fram á veg, - mótað- ir af þeirri eldraun, sem áður er frá greint og vom reynslunni ríkari. Það þurfti sannarlega bæði kjark og áræði til þess, sem þeir höfðu í huga, því byggðarlagið var gegn- sýrt óvinveittum og ósönnum áróðri atvinnurekenda. Eftir langar og strangar umræð- ur kom þar að fundarmenn ákváðu að stofna nýtt verkalýðsfélag er skyldi bera heitið Verkamannafé- lag Keflavíkur. Var síðan fundi frestað og framhaldsstofnfundur haldinn hinn 16. janúar 1933. Var þá meðal annars ákveðið að félagið skyldi heita Verkalýðs og sjómannafélag Keflavíkur og hef- ur félagið borið það nafn lengst af síðan. Stofnendur töldust 41 tals- ins, og var ákveðið að í fyrstu stjóm þess skyldi enginn sá vera, er var í stjórn fyrra félagsins. Töldu stjómarmenn fyrra fé- lagsins að rógur og lygi atvinnu- rekenda væri búinn að gera þá svo óvinsæla í bænum, að það væri óheppilegt fyrir nýja félagið, ef þeir yrðu í stjórn þess. Stjórn hins nýja félags skipuðu þeir Guðni Guðleifsson formaður, Danival Danivalsson ritari, Guð- mundur J. Magnússon gjaldkeri og þeir Guðmundur Pálsson og Arinbjöm Þorvarðarson með- stjómendur. Guðni skipaði for- mannssætið allt til 1935 að Ragnar bróðir hans tók við formennsk- unni. Var Guðni þó áfram í félags- stjóminni allt til 1953. Ragnar Guðleifsson var síðan formaður félagsins allt til 1970 eða í 35 ár. Hugsjónamaður og eldhugi Já, hann stýrði félaginu í 35 ár. Undir hans forystu unnust miklir FRAMHALD Á BLS. 24. i « Guðrún Ólafsdóttir, formaður Sigurbjörn Björnsson, fram- Verkakvennafélags Keflavíkur kvœmdastjóri VSFK. og Njarðvíkur. Magnús Gíslason, form. Versl- unarmannafél. Suðumesja. Jón Hjálmarsson, form. Verka- lýðs- og sjómannafél. Gerða- hrepps. Jón Ólsen, form. Vélstjórafé- lags Suðurnesja. 4-FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.