Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1983, Síða 9

Faxi - 01.01.1983, Síða 9
íðheilla ... ámað heilla ... ámað heilla ... ámað heilla... ámað h mikill krakkaskari, sem á stundum fór talsvert fyrir. Smám saman tókst þó kunningsskapur, sem tneð árunum varð að vináttu sem endast mun okkur öllum, sem bjuggum á Asabraut 4 meðan við lifum. Auð- unn er ekki allra en þegar skelin er brotin stendur eftir heiðursmaður sem á allan Itátt vill vel gera vinum sínum og grönnum. Og ekki gildir það sama síður um hana Onnu, allt gat hún fyrirgefid erfiðum nábúum sem oft á tíðum gleymdu að virða garð granna í hita leiks. Gott dœmi um Auðunfinnst tnér vera þegar kom að því að girða í millum lóðanna, hann átti kálgarð alveg upp að stétt hjá okkur. ,,Ég vil ekki vera ttteð kálgarð upp að dyrum hjá ykkur og það nær engri áitt að setja girðinguna hér," sagði Auðunn. Skrefaði síðan fjögur skref frá mörkum inn á sína lóð og sagði: ,,Hér setjum við girðinguna og það rœði ég ekki frekar." Lóðin var þeim þó ttteira virði en tttörg- um, því lengi var hún best rœktaða og hirta lóð við Ásabrautina og þótt víðar vœri leitað. Annað dœmi vil ég nefna sem lýsir manninum vel. Auðunn var og er mikill skapmaður. Hann liat- aði dragnót innilega og gat komist í ham þegar rœtt var utn þetta voða veiðarfœri. Ég hins vegar er hatd- inn dragnótardellu. Aldrei rœddi Auðunn þessimál viðmig. Trúlega hefur hann œtlað að slík utnræða yrði til vinslita og því látið kyrrt Hggja. Anna og Auðunn voru okk- ar nœstu og nánustu grannar í 20 ár og öll voru samskiptin við þau á sömu lund og jtessi tvö dæmi lýsa. Margt reyndar þess eðlis að ekki verður á þrykk látið, heldur geytnt með cevinlegu þakklæti. Anna og Auðunn eignuðust þrjár dœtur sem allar búa í Kefla- vík, auk þess ólu þau að metu upp einn dótturson sem einnig býr hér. A áttatíu ára afmœlinu óska ég Auða allra heilla og þeim hjónutn báðum gæfu og gengis um ókotnin ar, með innilegu þakklæti fyrir allt á liðnum árum. Ólafur Björnsson Guðmundur A. Finnbogason 70 ára Ar líða hratt. Sú staðreynd er okkur e.t. v. ekki alltaf jafn Ijós, en avallt erutn við þó að mæta þeim stundum í lífinu, sem vekja okkur ál vitundar utn flughraða tímans. bað gerist ekki síst á áfangastöðum œvinnar, bœði okkar eigin og þeirra sem við höfum átt samleið tneð og stundum staðið og starfað með um lengri eða skemmri tíma. Þannig fór mér, þegar ég var á það minntur undir lok nýliðins árs, að minn góði vinur og fyrrum trausti samstarfsmaður, Guð- tnundur Alfreð Finnbogason, frá Hvoli í Innri-Njarðvík, vœri orðinn sjötugur. Það gerðist hinn 8. nóv- etnber síðastliðinn. Mér fannst svo örstutt frá því við ræddum satnan í tilefni fimmtugsafmælis hans árið 1962. En tiú voru 20 ár liðin frá þeitn tíma, og það setn í einni sjó- hendingu. Guðmundur Alfreð Finnboga- son er fœddur í Tjarnarkoti í Innri- Njarðvík hinn 8. nóvember árið 1912. Foreldrar hans voru hin kunnu merkishjón, Finnbogi Guð- mundsson útvegsbóndi, fæddur að Vatnsnesi við Keflavík og Þor- kelína Jónsdóttir frá Hópi í Grindavík. Þau eignuðust 5 börn, sem öll eru á lífi, og er Guðmundur næstelstur systkina sinna. Hann ólst upp hjá foreldrutn sín- um í Tjarnarkoti. Það varð snetnma á ævinni hlutskipti hans að taka til höndunum og leggja hart að sér við erfiðisvinnu, bœði á sjó og landi. Ekki samt svo að skilja, að tneira starfs væri krafist af syst- kinunum í Tjarnarkoti en kraftst var yfirleitt af börnutn og ungling- um þeirra tíma á vettvangi starfs- ins. Eti lífsbaráttan þá varönnurog stórum erfiðari en við þekkjum nú til dags. Þá varð hver sá, er vildi bjarga sér og ekki vera upp á aðra kominn að leggja sig fratn og vinna án þess nokkru sinni að gefa eftir. Þetta var reynsla Guðmundar á uppvaxtarárum hans. Hann fann sig bæði kallaðan og knúinn til að leggja sig fram og láta ekki sitt eftir liggja í jteirri lífsbaráttu, sem for- eldrar hans háðu til þess að sjá heimili og fjölskyldu farborða. Þrjá vetur var hann í barnaskóla í Keflavík og fékk leyfi til að taka fullnaðarpróf ári fyrr en venjulegt var. Þar með var skólavist lokið í hinum venjulega skilning þessorðs. En skóli lífsins reyndist Guðmundi næsta notadrjúgur. Þar nýttust hans góðu námsgáfur honum harla vel. Hann var bæði námfiís og fróðleiksþyrstur, íhugull og eftir- tektarsamur í besta lagi. Sérstaka stund lagði hann á ættfræði og sögulegan fróðleik. Fór svo, er fratn liðu stundir, að hann varð allra manna fróðastur um sögu Suðurnesja, einkum þó þá þœtti hennar, er snerta Njarðvík og Njarðvíkinga. Það sýnir m.a. bók hatis, Sagnir af Suðurnesjum, setn út kom árið 1978, þó> svo að í henni birtist ekki netna lítið brot af þeim hafsjó af fróðleik, setn Guð- tnundur hefir aflað sér á áranna rás. I fórum sínum á hann efni í tnargar bækur, gagnmerkar, setn á engan háttgefa þeirri eftir, er jtegar hefir litið dagsins Ijós. Vœri vissu- lega ttúkill fetxgur I að fleiri bækur tneð fróðleik af Suðurnesjum kætnu út frá hans hendi. Er það einlæg ósk mín og von, vini mínum til handa, að honum endist aldur og heilsa til þess að sjá slíkan ávöxt sinna þjóðnýtu fræðistarfa. Guðmundur hefir komið víðar við en á vettvangi fræðimennsk- unnar. Fyrir utan sín daglegu störf, fyrst við sjósókn og síðar við land- búnað, hefir hann velt björgum í störfum sínum fyrir málefni kirkj- unnar í Innri-Njarðvík. Trúhneigð og trúrækni voru sterkirog ríkjandi þættir í heimilislífinu í Tjarnarkoti, bernskuheimili hans, og má því hiklaust fullyrða að hann hafi ***♦*» gg HITAVEITA SUÐURNESJA SKRIFSTOFAN: Opið mánudag - föstudag frá kl. 9-12 og 13-16. VERKSTÆÐI OG LAGER: Opið mánudag -fimmtudag frá kl. 7,30-12 og 12,30-18. Föstudag kl. 7,30-13. Símar Hitaveitunnar eru 3200 og 3475. Bilanasími utan skrifstofutíma er 3536. Til notenda Hitaveitu Suðurnesja: Viðskiptavinir eru hvattir til að greiða ógreidda hitaveitureikningafyrir 15. dag hvers mánaðar. HITAVEITA SUBURNESJA BREKKUSTlG 36, NJARBVlK FAXI - 9

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.