Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1983, Blaðsíða 10

Faxi - 01.01.1983, Blaðsíða 10
ámað heilla ... ámað heilla ... ámað heilla ... ámað heilla.. i drukkið ást sína og virðingu fyrir kirkju og kristindómi í sig með móðurmjólkinni. Hann átti um langt skeið sœti í sóknarnefnd Innri-Njarðvíkursafnaðar. Er þar skernmst frá að segja, að fram- kvœmdir hans í þágu kirkjunnar og afköst voru slík, að með eindœm- um verður að teljast. Fyrsla pípu- orgelið, sem sett var upp á Suður- nesjum, kom í Innri-Njarðvíkur- kirkju árið 1963. Þar hafði Guð- mundur algjöra forystu. Nokkru síðar hafði hann aflað fjár til að setja fagran Ijóskross á turn kirkj- unnar. Og þegar hygging safnaðar- heimilis í Innri-Njarðvík kom á dagskrá, þá gekk Guðmundur þar fram fyrir skjöldu og barðist heilla- ríkri baráttu fyrir ótrúlega skjótiim framgangi þess mikla verkefnis. Fyrstu skóflustunguna tók Jórunn Jónsdóttir í Njarðvík, móðursystir Guðmundar, kirkjuhaldari staðar- ins um áratuga skeið, hinn 30. maí 1970. Fimm árum síðar var Safn- aðarheimilið fullbyggt og formlega vígt hinn 31. maí 1975. Ekki má þó skilja orð mín svo, að Guðmundur hafi verið einn að verki í þeim stórframkvœmdum, sem hér er um rœtt - og mörgum fleiri, sem ónefndar eru. Að baki honum og með honum stóð einhug söfnuður, fámennur að vísu, en eigi að síður sterkur og djarjhuga söfnuður, sem treysti Drottni og þekkti sinn vitjunartíma. Guðmundur Finnbogason er hagyrðingur góður, eins og glöggt má sjá á vísnabók, sem út kom eftir hann árið 1980 og hann nefndi: Blátt áfram. Vegferðarvísur. Þar fléttast saman á fjölbreyttan og skemmtilegan hátt minningar, ádeilur, gamanmál og alvara. En grunntónninn er þó umfram allt af trúarlegum toga spunninn, eins og sjá má t.d. á þessari vísu. Hátt upp lyftist hugurinn, hverfur nóttin svarta, erfinn ég, Drottinn, friðinn þinn, fara um mitt hjarta. Guðmundur kvœntist hinn 16. desember árið 1933, Guðlaugu Bergþórsdóttur frá Suðurgarði í Vestmannaeyjum, hinni ágœtustu konu. Þau settust að, eins og áður segir, að Hvoli í Innri-Njarðvík og bjuggu fxir alla tíð þangað til þau fluttust fyrir skömmu að Hrafnistu í Hafnarfirði. Þau eignuðust 7 börn. Tvo drengi misstu þau á fyrsta ári. Hin eru öll á lífi og eru þau þessi, talin í aldursröð: Stef- anía, Guðbjörg Edda, Finnbogi, Laufey Osk ogJón. Þau Guðmundur og Guðlaug hafa um langt skeið átt við mikla vanheilsu að stríða. Einkum hefir Guðlaug verið langdvölum á sjúkrahúsum. - En sjúkdómsbyrð- in hefir verið borin af þreki, œðru- leysi og trúarstyrk. Eg tel það mikla gcefu að hafa átt samleið með Guðmundi Finn- bogasyni og fjölskyldu hans í vin- áttu og starfi um rúmlega tveggja áratuga skeið. - Það skal fúslega viðurkennt, að ekki var alltaf auð- velt að skilja hann ogfylgja honum eftir. En þannig er því farið oft og tíðum með eldhugana og menn hinna háu hugsjóna. Það er ekki alltaf tekið eins mikið mark á þeim og skyldi, og oft eru störf þeirra vanmetin, misskilin og jafnvel rangtúlkuð. Þetta hefir áreiðanlega oft gerst í lífi Guðmundar, og stundum veitt honum óverðskuld- aðan sársauka. En nú, þegar hann stendur á hinum sjötíu ára sjónar- hóli, þá getur hann glaður horft yfir farinn veg í þeirri fullvissu, að góði málstaðurinn, sem hann lagði svo ótrauður lið og barðist svo djarflega fyrir, hafði í sér fólginn þann sigurmátt, sem ekki varð bug- aður eða brotinn. Það er jafn mikill sannleikur nú og fyrir 20 árum, sem hann sjálfur sagði, að GUÐ GEFUR GÓÐU MÁLEFNl SIG- UR. Guð blessi þig, vinur minn, eig- inkonu þína og ástvini ykkar á ókomnum tímum. Hann gefi ykk- ur batnandi heilsu og veiti ykkur þá blessun, sem þið hafið með störf- unum ykkar góðu, vináttu ogórofa tryggð svo margfaldlega unnið til. Björn Jónsson BÍLGEYMAR: 3ja ára ábyrgö. AÐRIR GEYMAR: 2ja ára ábyrgð. m CATERPILLAR | _A S ÞJÓNLJSTA Caterpillar. Cat ogHeru skrásett vórumerki IhIHEKIA J Laugavegi 170 -172 Sír HF Icat Sími 21240 PLUS Hjálmtýr Jónsson 60 ára Hjálmtýr Jónsson, símaverk- stjóri, Miðgarði 12, Keflavík varð 60 ára 18. janúar sl. Hann er Vest- firðingur að œtt, frá Fossi í Arnar- firði. Foreldrar hans voru Jón Sumarliðason, bóndi og kona hans Ingibjörg Guðlaugsdóttir. Ungur lœrði Hjálmtýr jarðsíma- tengingar hjá Landssíma Islands í Reykjavík og hefur unnið hjá Landssíma Islands síðan 1946, fyrst víðs vegar um landið en síðan 1953 hefurhann verið starfsmaður símstöðvarinnar í Keflavík og unn- ið að nýlögnum og viðhaldi línu- kerfisins á Suðurnesjum, viðgerð- um á símatœkjum og öðrum bún- aði Ll, lengst af sem verkstjóri. Þegar hann hóf störf hér, strax að námi loknu, var það við fyrsta verulega átakið við að koma síma- kerfinu I jörðu 1946. Fram að því var meginhluti símasambanda á loftlínum og var því ákaflega erfitt í viðhaldi og óöruggt. A stríðsárun- um og œ síðan hefur verið mikil þensla í símanotkun á Suðurnesj- um. Það hefur því lent á Hjálmtý að standa margoft fyrir verki við nýlagnir, uppskurði og endurbœt- ur á jarðsímakerfinu hér í Keflavík og öllum byggðum Skagans. Hann hafði því mjög staðgóða þekkingu á öllu kerfinu. Auk þess er Hjálm- týr afar þœgilegur og hjálpsamur og gott að hafa hann til ráðgjafar um lausn aðkallandi mála, sem voru mörg á tímum mikillar lít- þenslu en oft knappra fjárráða til fjárfestingar - skortur á jarð- strengjum og tœkjum. A þessum tímamótum vil ég þakka Hjálmtý fyrir mjöggott sam- starf þau tuttugu og fimm ár sem við áttum samleið hjá Landssíma Islands. JT 10-FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.