Faxi - 01.01.1983, Blaðsíða 5
íngvar Jóhannsson:
Sameining sveitarféíaga
Nokkrar umræður og skrif hafa
orðið um hvort rétt væri að sam-
eina stjórnsýslu Keflavíkur og
Njarðvíkur og hefur sitt sýnst
hverjum, enda ekki nema eðlilegt.
íbúar beggja þessara byggðar-
laga hafa velt þessu máli lengi fyrir
sér, en reka sig jafnan á að upplýs-
ingaöflun er þörf, til að geta mynd-
að sér skoðun.
Tillaga Keflvíkinga um skipan
nefndar í þessu skyni er skynsam-
leg þótt tímasetning hafi ekki verið
öllum að skapi og eins hitt hvemig
tillöguna bar að garði.
Hirði ég ekki að fjölyrða um það.
Tilgangurinn með þessari nefndar-
skipan var aðeins sá að afla gagna
og upplýsinga fyrir hinn almenna
borgara að átta sig á, hvað um væri
að ræða. Hvað varðar tímasetning-
una voru margir þeirrar skoðunar
að það bæri ekki að blanda þessum
hugleiðingum inn í almenna um-
ræðu um sveitarstjómarmál rétt
fyrir kosningar í sumar og féllst ég
á þá röksemd, því eins og að fram-
an greinir er upplýsingaöflun
skammt á veg komin.
Þær forsendur sem lágu að baki
árið 1942, um aðskilnað Keflavík-
Ur og Njarðvíkur, sem þá vom eitt
sveitarfélag með sameiginlega
stjórnsýslu, áttu að mínu mati full-
an rétt á sér og hef ég gert mér
sérstakt far um það að skilja í
hverju þær lágu. Minn skilningur
er sá að þar hafi riðið baggamun-
•nn, annars vegar þéttbýlið Kefla-
vík og hins vegar dreifbýlið Njarð-
vík. Þegar byrjað var að skipu-
leggja og vinna samkvæmt því,
leggja skólp og vatn og rafvæða,
Þá lá það í augum uppi að byrja
varð á þéttbýlasta kjarnanum.
^essu gátu íbúamir í Njarðvík
einfaldlega ekki unað, því þeir
v°ru tiltölulega stórir gjaldendur
hl síns sveitarfélags og horfðu á sitt
fjármagn fara í uppbyggingu mið-
h;ejarkjarnans í Keflavík.
Þegar við skoðum sögu þessa
fimabils verðum við að setja okkur
1 spor þáverandi sveitarstjómar-
^anna, hvers vegna þeir réðu sín-
Ufn málum á þennan veg og einnig
verðum við að skilja tilfinningar
Njarðvíkinga sem máttu horfa upp
a stórstígar framfarir á þeirra tíma
visu í Keflavík, en Njarðvík var
átin sitja á hakanum. Þetta var
mergur málsins.
f dag horfa málin allt öðruvísi
V|ö. Báðar byggðimar eru líkt á
vegi staddar, jafnvel er hægt að
segja að Njarðvík sé öllu betur
stödd, enda á það sínar eðlilegu
skýringar. Lögsagnarumdæmi
Njarðvíkur telur um 80% af byggð
Keflavíkurflugvallar og höfðu
Njarðvíkingar fram til ársins 1971
umtalsverðar tekjur af fyrirtækj-
um þar, án þess að þurfa að veita
þar neina þjónustu. En við breyt-
ingar á tekjustofnum sveitarfé-
laga, það ár, mnnu þær út í sand-
inn. Þetta var það sem reið bagga-
muninn til að jafna aðstöðu byggð-
anna á þeim tíma.
Sú spurning sem vaknað hefur
upp með Njarðvíkingum og Kefl-
víkingum, hvort hagkvæmt sé, eða
rétt sé, að steypa þessum byggðum
saman á ný, hlýtur að verða að
skoðast þótt ekki verði nema til
þess að kynnast því hvað mæli því
með eða móti.
Sjálfsgagnrýni á alltaf rétt á sér,
og það er bæði rétt og heilbrigt að
gera sér grein fyrir slíkum stað-
reyndum. Við eigum að hugsa rök-
rétt og framkvæma samkvæmt því,
en til þess sem hér um ræðir skortir
undirbúning að ákvörðunartöku.
Tillaga Keflvíkinga um skipan
nefndar til að afla gagna og upp-
lýsa, almenningi til hjálpar í skoð-
unarmyndun, á því fullan rétt á
sér.
Undanfarna áratugi hefur
varnaliðsgirðingin, sem aðgreinir
byggðir Keflavíkur og Njarðvíkur
verið mönnum þyrnir í augum. En
það skyldi nú ekki vera komin upp
sú staða að girðingin hafi þjónað
sínum tilgangi þrátt fyrir allt. Hvar
í byggðu bóli hefur verið skilinn
eftir slíkur möguleiki, komandi
kynslóðum, til að laga á hag-
kvæman hátt skipulag sitt miðað
við þróun byggða? Möguleikinn á
skipan sameiginlegs miðbæjar-
kjarna fyrir bæði þessi sveitarfélög
á því landssvæði, sem verið hefur
undir olíulögnum og tönkum
Varnarliðsins, er svo stórkostlegur
að hann ber að nýta til fulls, öllum
til hagsbóta. Njarðvíkingar mega
þar ekki láta eigin hagsmunasjón-
armið ráða ferðinni, þar verður al-
manna heill að ráða. Það nær ekki
tilgangi sínum að Njarðvíkingar
reyni að gera þennan bæjarkjarna
einir, því Keflvíkingar eru þá
nauðbeygðir til að fara aðrar leiðir
í sínum skipulagsmálum, sem
myndi ekki verða okkar samfélagi
til heilla. Ég veit að það verður
erfitt fyrir margan að gera upp hug
sinn í þessum efnum, til þess eru
böndin við æskuslóðir og heima-
haga og allt það, sem því fylgir,
það sterk að erfitt mun að rjúfa.
Ég mæli ekki með, né móti,
sameiningu á stjómsýslu þessara
sveitarfélaga, því það er jú það,
sem málið fjallar um, fyrr en fyrir
liggja nægjanlega ýtarlegar upp-
lýsingar um gagn og hagkvæmni
þess að breytinga sé þörf.
Skipulagsnefnd Keflavfkur,
Njarðvíkur og Keflavíkurflugvall-
ar er komin upp að vegg með tíma
um ákvörðunartöku á framhaldi
heildarskipulags. Þessi er ástæðan
fyrir því að ég lyfti hér penna til að
benda á nauðsyn þess að umræða
og könnun þessa máls verði ekki
stöðvuð vegna þeirra gífurlegu
hagsmuna sem bæði þessi byggðar-
lög verða að fá skorið úr um. Nú
ríkir ekki lengur óvissa um fram-
gang olíutankamálsins. Sam-
kvæmt sameiginlegri ábendingu
beggja bæjarstjóma, Keflavíkur
og Njarðvíkur, varð Helguvík fyrir
valinu. Hönnun er langt á veg
komin og mun verkið eiga að vinn-
ast í sex áföngum og er þegar hafin
vinna við fyrsta áfanga og mun
honum eiga að vera lokið árið
1986. Þessi gleðitíðindi gefa tilefni
til að unnt verði að leysa brýnasta
skipulagshagsmunamál byggð-
anna um byrjunar aðlögun á
gatnagerð. Það stórhættulega
ástand sem nú ríkir, að aðeins ein
akbraut tengi þessar byggðir verð-
ur að ljúka sem fyst, því við höfum
þegar misst á annan tug mannslífa
á þessum vegakafla. Bæjarstjóm-
irnar verða nú þegar að þrýsta á
um það, að lagning nýja vegakafl-
ans á Reykjanesbraut, samkvæmt
aðalskipulagi, sem liggja á fyrir
ofan byggðir Keflavíkur og Njarð-
víkur, hefjist sem fyrst.
Ingvar Jóhannsson
Ég vil nú þegar leyfa mér að
benda á að með því að færa vamar-
liðsgirðinguna ca. 250 metra til
vesturs fyrir ofan byggð Ytri-
Njarðvíkur skerðist ekkert af nú-
verandi tankarými né möguleikum
á að dæla olíu frá höfn. Með þess-
ari breytingu væri hægt að skapa
tvær viðbótar akreinar milli þess-
ara byggða fyrir gegnumflæði um-
ferðar og jafnframt leysa mjög við-
kvæm skiplagsmál Ytri-Njarðvík-
ur. Þegar síðan olíuhöfnin í Helgu-
vík tekur til starfa er hægt að færa
línunum sem liggja inn eftir Asun-
um og gefast þá gullin tækifæri fyr-
ir hagkvæmari aðalskipulagsþró-
un. Ég vil einnig leyfa mér að
benda bæjarstjóm N jarðvíkur á að
hefja þegar viðræður við Rafveitur
ríkisins um flutning á háspennu-
línunum sem liggja inn eftir ásun-
um frá Grænási að Fitjum og losa
þannig um eitt allra besta og
skemmtilegast byggingasvæðið á
Suðurnesjum.
Ég vil svo að lokum skora á bæj-
arráð beggja byggða að taka upp
þráðinn að nýju og hefja viðræður
um þessi mál og undirbúa í hendur
bæjarstjórnum til ákvörðunartöku
um hvort rétt sé að skipa nefnd til
að gera hlutlausa arðsemis úttekt á
sammna byggðanna og hinum fé-
lagslegu þáttum þessa máls. íbúar
beggja byggða eiga rétt á þessum
upplýsingum.
Prjónakonur
Kaupum fallega vel prjónaða sjón-
varpssokka, 60 cm langa.
Móttaka miðvikudagana 9. og 23.
febrúarað Iðavöllum 14b.
ÍSLENZKUR MARKADUR HF.
oesmGsr
FAXI-5