Faxi - 01.01.1983, Side 12
Ragnar Guðleifsson:
Samvinnuverslun á
Suðumesjum fyrir 1945
Framh. úr síðasta blaði.
ÞÓ VAR ÞAÐ STAÐ-
REYND AÐ AUGLÝST
SMÁSÖLUVERÐ KAUP-
MANNA VAR MUN
HÆRRA EN SMÁSÖLU-
VERÐ
í Keflavík voru á þessum tíma
gefin út 2 blöð. í 3. tbl. Reykja-
ness 1942 er grein, sem höfundur
nefnir KAUPMENN OG KAUPFÉ-
LÖG. Þar reynir greinarhöfundur
aö gera samanburð á kaupfélagi
og kaupmannaverslun og kemst
að þeirri niðurstööu, að viðskipti
við kaupfélög séu á engan hátt
hagkvæmari en við kaupmanna-
verslun.
Hann telur, að KRON hér í
Keflavík hafi lítil eða engin áhrif
haft á vöruverð hér og segir: ,,Ég
tel mig hafa fylgst vel með vöru-
Jón Einarsson, deildarstjóri í KRON.
Staf hans var að hafa eftirlit með deild-
um félagsins og leiðheina slarfsfólkinu í
störfum þess. Hann heimsótti KRON-
deildina í Keflavík oft og var gott og
gagnlegt að njóta tilsagnar hans.
verði hér í Keflavík síðan ég kom
hingað og ekki orðið annars varen
því væri í hóf stillt, löngu áður en
KRON tók hér til starfa. Enda varö
ég ekki var neinnar verðlagsbylt-
ingar við tilkomu þessa fyrirtæk-
is.”
í FAXA sama ár er grein þar
Stefán Jasonarson, hóndi í Vorsabœ,
Arness., vartn við smíði verslunarhúss
KRON í Keflavík 1941-42.
sem efast er um að greinarhöf-
undurinn í Reykjanesinu hafi ekki
orðið var við verðlagsbreytingu
hjá kaupmönnum hér í Keflavík
þegar KRON tók hér til starfa, og
það meira að segja „verölagsbylt-
ingu” svo notuð séu hans orð, en
ef svo er, þá vill hann nú benda
honum á staðreyndir, sem hafa
aðra sögu að segja og ekki verður
á móti mælt.
„Sumarið 1937 var Pöntunarfé-
lag V.S.F.K. sameinaö KRON og
9. nóv. það ár opnaði KRON sölu-
búð sína við Aðalgötu 10. Vöru-
verð búðarinnar var mun lægraen
hjá kaupmönnunum, enda hafði
það þau áhrif, að skömmu síðar
eða í des. sama ár auglýstu kaup-
menninrir hér sameiginlega lág-
marksverð á vörum sínum. En þá
höfðu þeir myndað félagsskap
þann fyrsta í sögunni hér. Náði
þetta til helstu nauðsynjavara og
var mun hærra en smásöluverð
KRON, þó mun það hafa verið
lækkað um 10% frá því, sem það
áður var.
Þannig lækkaði KRON beinlínis
vöruverð hér í Keflavík til hags-
bóta fyrir þá menn, er ekki skiptu
við það. En þeir, sem voru félags-
menn og notfærðu sér kostakjör
þess, fengu vörurnar, allflestar, 15
-20% lægra verði, en kaupmenn-
irnir höfðu selt þær áður en KRON
opnaöi sölubúð sína.
Fyrir þá, sem ekki þurftu að
horfa svo mjög í eyrinn, var þetta
ef til vill smámunir, sem ekki var
tekið eftir, en fyrir fátæka alþýðu-
menn, er höfðu, eins og þá var
mjög algengt, 1200 - 1400 króna
árstekjur, var þessi verðlækkun
KRON sannkölluð „verðlagsbylt-
ing” sem margur hefur metið og
notið góðs af.
Auk þeirra kjara, sem félags-
menn hafa notið í lágu vöruverði,
hafa þeir safnaö fé í sjóði félags-
ins. Sumir þessara sjóða, eru
sameign félagsmanna, aðrir sér-
eign þeirra, svo sem stofnsjóður,
og nemur sú innstæða félags-
manna hér í Keflavík og nágrenni
um 80 - 90 þús. króna. Hluti deild-
armanna hér í öðrum sjóöum og
hreinni eign félagsins mun nú vera
yfir 100 þús. krónur.
Keflvíkingar flestir hafa skilið
starfsemi KRON og hafa fylkt sér
um félagið, svo nú mun láta nærri
að 4 af hverjum 5 búandi mönnum
hér í Keflavík séu félagsmenn í
KRON, og þar eru þeir án tillits til
þess hvar í stjórnmálum þeir
standa. Þeir eru þaö aðeins af því,
að reynslan hefur kennt þeim, að
samtök og samvinna er leiöin til
Hjörtur Helgason. Frumkvöðull að
stofnun Pönlunarfélagsins Ingólfs í
Sandgerði 1936, kaupfélagsstjóri
Kaupfélagsins Ingótfs, Sandgerði 1974
til 1977.
Stefán Friðbjörnsson, Nesjum, Mið-
nesi, deildarstjóri í KRON í Sandgerði,
áður pöntunarstjóri Pöntunarfél. Ing-
ólfs, Sandgerði.
hagkvæmari kjara, á þessi sviði
sem fleirum.”
AÐ ÁTTA ÁRUM LtÐNUM -
DEILDIRNAR SKILJA VIÐ
KRON OG VERÐA
SJÁLFSTÆÐ
KAUPFÉLÖG
Síðasti aðalfundur Keflavíkur-
deildar KRON var haldinn 14. apríl
1945, í Verkalýðshúsinu. Vöru-
sala deildarinar á síðastliðnu ári
nam 1900 þús. króna, og er það
530 þús. krónum meira en árið á
undan. 100 nýir félagar bættust
við á árinu. Deildarstjórn var end-
urkosin. Kosnir voru 19 fulltrúar til
að mæta á aðalfundi KRON.
Á fundinum kom fram tillaga,
sem stjórn og fulltrúar, sem kosnir
voru á aðalfund, stóðu að. Var til-
lagan þess efnis, að deildin óskaði
eftir heimild aðalfundar til að skilja
við KRON og stofna sjálfstætt
kaupfélag, er fái í sinn hlut stofn-
sjóði deildarmanna og þann hluta
af sameignarsjóðum KRON, er
myndast hafa af viðskiptum deild-
arinnar. Enda verði kaupfélaginu
gefin kostur á að kaupa eignir
KRON í Keflavík. Tillagan var
samþykktmeð31 atkvæðigegnö.
Hafnarfjarðardeild KRON sam-
þykkti daginn eftir, 15. apríl, efnis-
lega samhljóða tillögu.
Aðalfundur KRON var haldinn í
Reykjavík 29. apríl s.á. Þar var
samþykkt að heimila deildunum,
þeim er þess óskuðu, að skilja við
aðalfélagið og stofna sjálfstætt
kaupfélag. En sérstakir samning-
ar yrðu síðan gerðir milli aðila um
skiptingu eigna félagsins.
FRAMHALD
ÍNÆSTA BLAÐI
12-FAXI