Faxi - 01.06.1983, Side 3
ijlUISIUUTIl
líiVIISTAIlSM) I
litMir 'Íí! xri)
C1
u
Tónlistarlíf hefur verið með
miklum blóma í Keflavík á síðustu
áratugum. Sennilega hafa íslend-
ingar alltaf verið sönghneigðir en
hljóðfæraleikur mjög takmarkað-
ur. Miklar líkur eru á því, að það
séu erlendir verslunarmenn sem
leika fyrst á hljóðfæri hér á Suður-
nesjum!
Kirkjutónlist og ágætir organist-
ar í öllum kirkjum Skagans er
fyrsti verulegi vísir að tónmennt
hér og varanlegu sönglífi. Auk
kirkjukóranna stofnuðu margir
organistar kóra, ýmist blandaða
kóra eða karlakóra. Þegar litið er
til þess tínia og þeirra erfiðu at-
vinnuhátta er þá voru hér nær ein-
göngu - erfiðisvinna til lands, eða
sjávar - má telja það undraverðan
árangur, sem oft náðist í þeim til-
raunum.
Pað er fyrst rétt eftir 1950 að
hingað til Keflavíkur flutti ungur
tónlistarmaður frá Reykjavík,
Guðmundur Norðdahl, ráðinn
söngkennari við Barnaskóla
Keflavíkur. Hann var mikill
áhugamaður um hljómlistarmál og
vann ötullega að þeim málum við
góðar undirtektir íbúanna. Hinn
augljósi meginn árangur af starfi
hans var að 1. desember 1953 var
Karlakór Keflavtkur stofnaður,
sem starfað hefur með ágætum síð-
an og lyft Grettistaki, auk söngs-
ins, með byggingu veglegs félags-
heimilis.
Lúðrasveit Keflavíkur var stofn-
uð 15. janúar 1956. Guðmundur
stjórnaði bæði kór og lúðrasveit.
Hann var einnig hvatamaður að
stofnun Tónlistarfélags Keflavík-
ur, 24. október 1957, sem síðan
stofnaði Tónlistarskólann, er
starfað hefur með stöðugum vexti
síðan.
Tónlistarfélagið hefur nú í vor
haldið up á tuttugu og fimm ára
afmælið með fjórum úrvals tón-
leikum, með fjölda ágætra tónlist-
armanna. í kjölfar þessara menn-
■ngarstarfa á sviði tónlistar kom
svo Kvennakór Suöurnesja,
nokkrar kunnar hljómsveitir með
Hljóma í broddi fylkingar og
margir landskunnir hljómlistar-
menn.
Margrét’ Friðriksdóttir, sem
bæði hefur verið formaður
Kvennakórsins og Tónlistarfélags-
ins, hefur í fáum orðum rakið sögu
Tónlistarfélagsins í tilefni 25 ára
afmælisins á eftirfarandi hátt:
,,í ár eru 25 ár liðin frá því að
Tónlistarfélag Keflavíkur tók til
starfa. Undirbúningur að stofnun
félagsins hófst 24. október 1957.
Aðal hvatamaður að stofnun þess
var Guðmundur Norðdahl, en
stofnfundinn sátu ásamt honum
Vigdís Jakobsdóttir, Alfreð Gísla-
son, Elísabet Asberg, Rögnvaldur
Sæmundsson, Kristinn Pétursson,
Hermann Hjartarson, Guðfinnur
Sigurvinsson, Guðmundur Guð-
jónsson, Guðmundur Magnússon,
Valtýr Guðjónsson, Sesselja
Magnúsdóttir, Helgi S. Jónsson og
séra Björn Jónsson. Aðrir stofn-
endur, sem ekki sátu fundinn voru
Friðrik Þorsteinsson, Sólveig Sig-
urbjörnsdóttir, Bjarni Gíslason og
Jón Tómasson.
A þessum fundi voru þessi kosin
í stjórn félagsins: Formaður Vigdís
Jakobsdóttir, ritari Helgi S. Jóns-
son, gjaldkeri Hermann Hjartar-
son, meðstjórnendur Sesselja
Magnúsdóttir og Kristinn Péturs-
son. Fljótlega var síðan stofnaður
Tónlistarskóli sem þjóna skyldi
Keflavík og nágrenni.
Fyrstu kennarar við skólann
voru Vigdís Jakobsdóttir, Guð-
mundur Norðdal og Björn Guð-
jónsson. Auk einkatíma á píanó
sóttu nemendur tíma í tónlistar-
sögu og tónfræði.Laun og annar
tilkostnaður var greitt af skóla-
gjöldum og styrktarfélagsgjöld-
um, auk þess veitti ríkið 10.000
króna styrk það skólaár.
Kennslan fór fyrst fram í Ung-
mennafélagshúsinu, þá í kjallara
Nýja Bíós, því næst fluttist hún í
bflskúr við Tjarnargötu og síðan í
Æskulýðshúsið við Austurgötu,
þar sem aðalhúsnæði skólans er
nú.
Fyrsti skólastjóri Tónlistarskól-
ans var ráðin Ragnar Björnsson
árið 1960, og gegndi hann því starfi
til ársins 1976. Sama ár breyttist
staða Tónlistarfélagsins á þann
hátt, að ríki og bær tóku að sér í
sameiningu rekstur skólans. Var
þá skipuð sérstök skólanefnd, sem
í áttu sæti fulltrúi frá bænum auk
stjórnarmeðlima Tónlistarfélags-
ins. Skólanefndin er umsagnarað-
ili varðandi ráðningu kennara og
fjallar einnig um rekstur skólans.
í fyrstu skólanefnd sátu formað-
ur Páll Axelsson, gjaldkeri Anna
D. Agústsdóttir, ritari Guðfinnur
Sigurvinsson, meðstjórnandi
Margrét Fririksdóttir og skipaður
fulltrúi bæjarins, Ingólfur Falsson.
Arið 1980 breyttist val manna í
skólanefnd, þegar bæjarstjórn
ákvað að hafa skyldi einn fulltrúa
frá hverjum stjómmálaflokki. Þó
eru tveir fulltrúar ennþá frá Tón-
listarfélaginu í nefndinnu. í núver-
andi nefnd sitja formaður Elín-
borg Einarsdóttir, ritari Viðar
Oddgeirsson, Gottskálk Ólafsson,
Bjami Gíslason og Margrét Frið-
riksdóttir.
Tónlistarfélagið f samráði við
skólastjóra hefur ávallt séð um
tónleikahald fyrir styrktarmeð-
limi. Hafa það verið þrír tónleikar
á vetri, þar af einir nemendatón-
leikar. Undanfarin tvö ár hefur
Snyrtivörur og ilmvötn í úrvali og
þá aðeins það besta. /jp
n ■
<'Slnaí$flnaíS
(rarharvl)
ELLEN
BETRIX
K^ini^.urent
™*Verið velkomin íapótekið.
. .. . .
FAXI-143