Faxi - 01.06.1983, Síða 11
Keflavík
Kaupstaðurinn Keflavík er
langstærsti byggðakjarni á Suður-
nesjum með 6737 íbúa. Útgerðin
er umfangsmikil atvinnugrein,
iðnaður fer ört vaxandi og verslun
er snar þáttur í bæjarlífmu.
Keflavíkurhöfn lætur ekki mik-
ið yfir sér, en hún gegnir þó þýð-
ingarmiklu hlutverki þar sem hún
er aðal inn- og útflutningshöfn
Suðurnesja. Með tilkomu gáma-
flutninga hefur skipakomum þó
fækkað.
Miklar breytingar munu verða
með tilkomu hafnar í Helguvík en
þar eiga 30 ; 40 þúsund tonna skip
að geta athafnað sig.
Gróskumikið íþrótta- og menn-
ingarlíf er í Keflavík. Þar eru
myndarleg íþróttamannavirki,
sem eflt hafa íþróttastarf í bænum.
Margar framkvæmdir eru í gangi
í Keflavík á vegum hins opinbera,
og má þar nefna íbúðabyggingar
fyrir aldraða, dagheimili fyrir
yngstu borgarana, og viðbygging
við sjúkrahúsið og heilsugæslu-
stöðina stendur yfir. í athugun er
gerð smábaátahafnar, stækkun
slökkviðstöðvarinnar og hótel-
bygging.
Margar verslanir eru í Keflavík
þar af nokkrar sérverslanir, sem
bjóða upp á fjölbreytt vöruúrval,
stærst þeirra er Stapafell. Kaup-
félag Suðurnesja hefur starfað í
Keflavík frá 1945 og hefur um-
fangsmikinn rekstur með hönd-
um. En forveri þess var Pöntunar-
félag KRON í Keflavík, stofnað
1937.
Mikill uppbygging hefur átt sér
stað í iðnaði og eru starfandi fjöl-
mörg iðnfyrirtæki, sem selja fram-
leiðslu sína um land allt.
Bæjarstjóri er Steinþór Júlíus-
son og forseti bæjarstjórnar er
Tómas Tómasson.
Gríndavík
Grindavík er alllangt frá öðrum
byggðarlögum á Suðumesjum,
enda á suðurströndinni. Til
Grindavíkur liggur þjóðbrautin af
Vogastapa yfir hraunið fram hjá
Svartsengi og hitaveitumannvirkj-
unum.
Grindavík skiptist í þrjú
byggðahverfi, Staðarhverfi, sem
er vestast, Járngerðarstaðarhverfi,
sem er í miðið og Þórkötlustaða-
hverfi, sem er austast. íbúar eru
um 2000.
Aðalatvinnugreinin er sjávarút-
vegur og byggja Grindvíkingar allt
sitt á honum. Fyrirtæki í sjávarút-
vegi eru mörg og stór í Grindavík.
Má þar nefna Þorbjörn hf., Fiska-
nes h.f., Hraðfrystihús Grindavík-
ur og Hraðfrystihús Þórkötlu-
staða. Nýlega var ísfélag Grinda-
víkur stofnað en það á að fram-
leiða ís handa bátunum, um 90
tonn á sólarhring. Þá stendur yfir
bygging dráttarbrautar, sem mun
taka allt að 250 tonna skip. Á
staðnum eru starfandi tvær vél-
smiðjur og netagerðin Möskvi h.f.
Landbúnaður er ekki horfinn úr
sveitarfélaginu. Staðabú s.f. fram-
leiðir egg bg kjúklinga og fjárbú
eru að Vík og á ísólfsskála.
Mikill fólksflutningur hefur ver-
ið til Grindavíkur undanfarin 30 ár
og hafa byggingamenn haft ærið
að starfa.
Félagsheimilið Festi er miðstöð
blómlegs félags- og menningarlífs í
Grindavík.
Langt er komið byggingu
íþróttahúss og grasvöllur er á
framkvæmdaáætlun.
Bæjarstjóri í Grindavík er Jón
Gunnar Stefánsson. Forseti bæjar-
stjórnar er Ólína Ragnarsdóttir.
Njarðvík
N jarðvík skiptist í tvo hluta, það
er Ytri- og Innri Njarðvík. í Njarð-
víkunum var sjórinn og sjávarafl-
inn lengst af aðalatriðið í verð-
mætasköpuninni.
í Njarðvík er landrými mikið og
getur byggð því vaxið. fbúafjöld-
inn er nú um 2000 íbúar. Njarðvík
hlaut kaupstaðarréttindi 1. jan.
1976.
Fram á þessa öld var aðal byggð-
in í innra hverfinu og landbúnaður
var önnur meginstoð útvegs-
bænda. í kjölfar aukinnar útgerð-
ar á vélbátum jókst byggðin í Ytri-
Njarðvík enda voru skilyrði til út-
gerðar talin betri þar.
Öflug iðnfyrirtæki hafa komist á
legg í Njarðvík t.d. má þar nefna
Ramma h.f. eitt stærsta fyrirtækið
í gluggasmíði á landinu, Skipa-
smíðastöð Njarðvíkur, Steypu-
stöðina og ísmat. Verslun hefur
vaxið fiskur um hrygg að undan-
förnu. Stórmarkaðurinn Samkuap
í eigu Kaupfélags Suðurnesja tók
nýlega til starfa og Hagkaup er að
byggja hús yfir stórmarkað. Kefla-
víkurflugvöllur hefur verið bæjar-
búum mikill styrkur.
í Njarðvík er blómlegt íþrótta-
líf. Fyrsti grasvöllurinn á Suður-
nesjum var tekinn þar í notkun
árið 1957. Árið 1973 var íþróttahús
vígt og þar er einnig sundlaug.
Njarðvíkingar hafa náð mjög góð-
um árangri í körfuknattleik og
hafa þeir unnið íslandsmeistara-
titilinn nokkrum sinnum.
Bæjarstjóri í Njarðvík er Albert
Vatnsleysu-
strandarhreppur
Vatnsleysustrandarhreppur er
landstærstur hreppanna á Suður-
nesjum. íbúafjöldi er um 610
manns og hefur íbúum fjölgað ört
nú undanfarin ár.
Mað lagningu Reykjanesbraut-
arinnar fór Vatnsleysuströndin úr
alfaraleið, og þótti mörgum mið-
ur. Voru margir uggandi um fram-
tíðina, en Vogamenn og Vatnsley-
strandarbúar sneru vörn í sókn og
er byggð þar nú í vexti.
Fiskvinnslufyrirtækin Valdimar
h.f. og Vogar h.f. veita talsverða
atvinnu. Myndarlegt alifuglabú er
í hreppnum, Nesbúið og svínabú
Þorvaldar í Sfld og fisk að Minni-
Vatnsleysu. Þá er refabú að Auðn-
um og er það í verulegri uppbygg-
ingu um þessar mundir.
Rætt hefur verið um að fyrir-
huguð Stálverksmiðja rísi við Kúa-
gerði. Hún mun skapa umtals-
K. Sanders og forseti bæjarstjórn
ar er Áki Gránz.
Framhald á bls. 162
KEFLVIKINGAR
SUÐURNESJAMENN
Afgreiðum á verksmiðjuverði hinar vinsælu
málningarvörur:
VITRETEX: Plastmálningu, mynsturmáln-
ingu, sandmálningu.
HEMPEL’S: Þakmálningu, skipalökk,
grunnmálningu.
CUPRINOL fúavarnarefni.
GOOD WOOD þiljulökk.
Gerið verðsamanburð áður en til
framkvæmda kemur.
Framleiðandi é Islandi:
S/ippfélagið íReykjavíkhf
Málnmgárverksmiöjan Dugguvogi - Simar 33433 og 33414
Umboðsmaður á Suðurnesjum:
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, málarameistari
Borgarvegi 30, Njarðvík, sími 2471
FAXI-151