Faxi - 01.06.1983, Síða 26
Samvinnutryggingar og
Líftryggingarfélagiö Andvaka
AÐALFUNDUR
HALDINN
Á BLÖNDUÓSI
Aðalfundir Samvinnutrygginga g.t.
og Líftryggingafélagsins Andvöku
voru haldnir að Hótel Blönduósi,
Blönduósi, föstudaginn 3. júní s.l.
Fundinn sátu 20 fulltrúar víðs vegar af
landinu auk stjórnar félaganna, fram-
kvæmdastjóra og nokkurra starfs-
manna.
Fundarstjóri var kjörinn Olafur
Magnússon, Sveinsstöðum, en fundar-
ritarar Héðinn Emilsson og Bragi
Lárusson.
Erlendur Einarsson, stjórnarfor-
maður, flutti skýrslur stjómar, en
Hallgrímur Sigurðsson, framkvæmd-
arstjóri, skýrði reikninga félaganna.
SAMVINNU-
TRYGGINGAR g.t.
í reikningum Samvinnutrygginga
g.t. kom fram, að rekstur trygginga-
greinanna gekk vel á árinu. Námu bók-
færð iðgjöld 221.4 milljónum króna,
en iðgjöld ársins 202.9 milljónum. Af
heildariðgjöldum námu iðgjöld frum-
trygginga 90.8%, en endurtrygginga-
iðgjöld innlend og erlend 9.2%.
Iðgjöld ársins jukust milli ára um
64.8% í frumtryggingum, en um
105.6% í endurtryggingum. Aukning
frumtryggingaiðgjalda var næstum því
jafn mikil og milli næstu ára á undan,
sem var meiri aukning en hafði þá orð-
ið um árabil.
Greidd endurtryggingaiðgjöld
námu 42.7 milljónum króna, eða um
21% heildariðgjalda ársins.
Greiðslur endurtryggjenda á um-
boðslaunum og tjónum til félagsins
námu samtals 34.4 milljónum.
Bókfærð tjón á árinu uröu 108.8
milljónir króna, en tjón ársins 163.9
milljónir. Hafa bókfærð tjón hækkað
um 54.8% milli ára en tjón ársins um
57.4%. Tjónaprósenta miðað við ið-
gjöld ársins er 80.8%, en miðað við
eigin iðgjöld er tjónaprósentan 86.7%.
Umboðslaun vor 11.7 milljónir á
móti 6.5 milljónum í fyrra og hafa
hækkað um 77.4% milli ára. Er hér um
að ræða mismun greiddra og fenginna
umboðslauna.
Skrifstofu- og stjórnunarkostnað-
ur var 37.7 milljónir á árinu, en var
23.0 milljónir í fyrra og nam hækkun
milli ára 63.3%. Laun og launatengd
gjöld hækkuðu um 51.3%, en annar
kostnaður um 73.6% milli ára. Að frá-
dregnu aðstöðugjaldi og kirkjugarðs-
gjaldi er kostnaðarprósenta 18.6% eða
nokkru lægri en árið áður.
Fjöldi starfsmanna í árslok var 97 í
91 1/2 starfi, þar af við tryggingarekst-
ur 83. Við mötuneyti, ratstingu og hús-
vörslu störfuðu 14 menn.
Fjármagnstekjur umfram fjár-
magnsgjöld voru 25.1 milljónir króna,
en höfðu verið 11 milljónir árið áður.
Hækkun milli ára nemur því 127%.
Hagnaður varð af rekstri Bruna-
deildar, Sjódeildar og Abyrgðar- og
slysadeildar og erlendum endurtrygg-
ingu samtals 8.2 milljónir. Bifreiða-
deild og innlendar endurtryggingar
skiluðu hins vegar tapi, samtals að fjár-
hæð 4.1 milljónir.
Fjárhæöir skiptust nánar eftir deild-
um þannig:
Abyrgðar- og slysadeild er með
hagnað að fjárhæð 4.319 þúsund krón-
ur.
Brunadeild er með hagnað að fjár-
hæð 2.728 þúsund krónur.
Bifreiðadcild er með tap að fjár-
hæð 3.305 þúsund krónur.
Sjódeild er meö hagnað að fjárhæð
919 þúsund krónur.
Innlendar endurtryggingar eru
með tapi að fjárhæð 749 þúsund krón-
ur.
Erlendar endurtryggingar eru
með hagnaði að fjárhæð 235 þúsund
krónur.
Samtals varð því hagnaðurinn 4.1
milljón.
A fundinum kom m.a. fram, að
Samvinnutryggingar veittu 981 bif-
reiðaeigendum, sem tryggt hafa bif-
reiðir sínar hjá félaginu í 10, 20 eða 30
ár, án tjóna, ókeypis ársiðgjald af
ábyrgðartryggingum bifreiðanna
vegna ársins 1982. Er hér um veruleg-
an afslátt að ræða eða um kr. 3.8 millj-
ónir.
LÍFTRYGGINGA-
FÉLAGIÐ ANDVAKA.
Iðgjöld ársins 1982 námu kr.
3.170.305 á móti kr. 2.356.172 árið áð-
ur og hækkuðu því um 34.6% milli ára.
Iðgjöld af líftryggingum námu kr.
3.049.675 en af innlendum endurtrygg-
ingum kr. 120.630. Hækkun iðgjalda
ársins af líftryggingum nam 71%.
Rekstrarkostnaður jókst úr kr.
1.370.645 í kr. 1.910.663, eða um
39.4%.
Fjármunatekjur umfram fjár-
magnsgjöld námu árið 1982 kr.
2.143.908 á móti 1.567.707 árið áður
og nam hækkunin milli ára 36.8%.
Fyrir endurtryggingavernd félagsins
voru greiddar á árinu kr. 1.592.110 á
móti kr. 1.282.849 á árinu á undan.
Nam hækkunin milli ára 24.1% og
hlutfall greiddra endurtryggingaið-
gjalda af heildariðgjöldum nam 50.2%
á móti 54.4% árið 1981.
Tjón ársins námu kr. 1.624.800 á
móti kr. 1.388.346 áriö á undan og nam
aukningin 17.0% milli ára. Þátttaka
endurtryggjenda í tjónum nam
kr. 820.421 á móti kr. 747.751 árið
áður og nam hækkunin 9.7%.
Einstakar tryggingagreinar:
Hagnaður varð af rekstri allra trygg-
ingagreina 1982, nema af hóplíftrygg-
ingum og innlendum endurtrygging-
um.
Af sparilíftryggingum nam hagnað-
urkr. 166.792.
Af áhættulíftryggingum nam hagn-
aður kr. 524.458.
Af sjúkra- og slysatryggingum nam
hagnaður kr. 336.256.
Af hópsjúkra- og slysatryggingum
nam hagnaður kr. 14.531.
Samtals skiluðu þessar greinar hagn-
aði að fjárhæð kr. 1.042.037.
Tap af hóplíftryggingum nam kr.
64.389.
Tap af innlendun endurtryggingum
nam kr. 71.648.
Samtals nam því tap þessara tveggja
greina kr. 136.037.
Hagnaður af rekstri félagsins áriö
1982 nam því samtals kr. 906.(XX).
Fjöldi ntála, er varða félögin og
starfsemi þeirra, voru rædd á fundin-
um og nokkrar tillögur bornar fram og
afgreiddar.
Samþykkt var að færa Krabba-
meinsfélagi Islands gjöf aö upphæð kr.
100.000.00.
Þá var samþykkt að færa Ung-
mennasamböndum Austur- og Vestur
Húnvetninga sem gjöf hvoru sambandi
fyrirsigkr. 50,(XX).(X).
Endurkjörnir í stjórnir félaganna
voru þeir Valur Arnþórsson, kaupfé-
lagsstjóri, Akureyri og Karvel Ög-
mundsson, framkvæmdastjóri, Ytri-
Njarðvík.
Aðrir í stjórn eru Erlendur Einars-
son, forstjóri, Reykjavík, formaður,
Ingólfur Ólafsson, kaupfélagsstjóri,
Reykjavík og Ragnar Guöleifsson,
kennari, Keflavík.
Fulltrúi starfsmanna í stjórn er Þórir
E. Gunnarsson, fulltrúi, Hafnarfirði.
fðÖ-FA'YI