Faxi - 01.12.1985, Side 3
SÉRA ÖRN BÁRÐUR JÓNSSON
SÓKNARPRESTUR f GRIN DAVÍKURPRESTKALLI
Jólahugvekja
tilþín
Á jólum minnumst við fæðingar Jesú Krists,
minnumst þess að Guð, skapari himins og jarðar,
kom i mannheim og birti náð sína. Guð kom til
manna í Jesú Kristi. Merkasti viðburður heimssög-
unnar er ekki sá að menn hafa stigið fæti á tunglið
heldur sá að Guð hefur gengið meðal manna hér
á jörðu. Þetta er boðskapur jólanna:
Og oss til merkis er þad sagt:
I aumum reifum fínnum lagt
þad barn í jölu' er hefur heim
í hendi sér og Ijóssins geim.
(Sb. 85)
En til hvets? Kom Guð aðeins til Jress að við gæt-
um haldið jól og glaðst í skammdeginu? Ef grannt
er skoðað er alvara jólanna mikil. Boðskapur Biblí-
unnar, Guðs orðs, er að Kristur hafi komið til að
frelsa synduga menn með lífi sinu og dauða á
krossi. Við mannanna börn höfum tilhneigingu til
að snúa baki við skapara okkar alveg eins og hinn
fyrsti maður. Þetta er hin alvarlega meinsemd í lífi
manna. Við gleymum uppruna okkar, eða réttara
sagt, við höfnum honum. Vegna þessa ástands
mannkyns ríkir ófriður á meðal manna víða um
heim. Böl og þjáning setur mark sitt á lífið. Vegna
þiessa ástands kom Kristur. Hann beinir sjónum
okkar til himinhæða og gefur okkur nýja von og trú
á bjartari framtíð. Hann kallar okkur til að vinna í
þágu hins góða hér á jörðu. Þetta er boðskapur jól-
anna.
Við megum ekki gleyma okkur við jötuna og
missa sjónar af lífi Jesú í heild. Jólin greina aðeins
frá upphafi lífs Jesú. Áeftir kom miklu meira.. Hann
sýndi okkur Guð á áþreifanlegan hátt. Við sjáum
af honum að Guð er kærleikur, að hann er réttlátur
og miskunnsamur. Jesús kom til að sýna okkur eðli
Guðs. Hann kom til að sætta menn við Guð. Við
sjáum það af lífi hans að hann mætti mönnum í
neyð og kvöl, bætti úr hverju böli. Kærleikur
streymdi frá honum þrátt fyrir andstöðu manna og
hatur. Jólabarnið átti eftir að hanga á krossi fyrir til-
stilli manna er áður höfðu aðhyllst hann. Á að-
ventunni rifjum við upp innreið Jesú í Jerúsalem.
Mannfjöldinn sem hyllti hann hrópaði síðar: Kross-
festu hann! En jólabarnið sem hékk á krossinum
bað böðlum sínum fyrirgefningar. Kærleikur Guðs
birtist í fyrirgefningu og miskunn. Manstu eftir ræn-
ingjunum sem voru krossfestir með honum? Annar
hæddi hann en hinn sagði: ,,Jesús, minnst þú mín
[regar þú kemur í ríki þitt!“ Þegar þú kemur? I Biblí-
unni er talað um Jesú Krist sem var og er og kemur.
Hann er frá eilífð til eilífðar. Og hann kemur aftur.
Margir hrífast af manninum Jesú frá Nasaret og
líta á hann sem fagra fyrirmynd. En Jesús var annað
og meira. Já, hann ER annað og meira því að hann
lifir í dag og kemur til þín á jólum í boðskap sínum,
í anda sínum. Daglega tilbiðja hann milljónir
manna um heim allan. Þeir koma ekki aðeins sam-
an til þess að minnast látins manns, heldur til að
eiga samfélag við hann, lifandi og persónulegt sam-
félag við Guð. Hinir trúuðu í heimi hér — kirkjan
— eru sönnun þess að hann lifir. Traust manna á
Jesú Kristi og tilbeiðsla kynslóðanna er okkur sönn-
I
un máttar hans. Hann lifir og birtist mönnum enn.
Hann hefur áhrif á líf manna og þjóða um heim all-
an. Hann var og er og KEMLIR, segir Ritningin.
Jesús talaði sjálfur um að hann kæmi aftur, ekki til
að endurtaka það sem áður gerðist, heldur til þess
að sækja sína og til að halda dóm. Hvenær það
verður veit enginn, en sagan stefnir áfram. Hún á
upphaf sitt í sköpun Guðs og steínir að endalokum.
Þá mun Guðsríkið, veldi Guðs, birtast í fyllingu
sinni og þessi heimur líða undir lok með böli sínu
og þjáningu. Þangað til erum við kölluð til að vinna
að eflingu Guðsríkis, kölluð til að vinna að velferð
allra manna. Þetta er boðskapur jólanna. Jólin
boða frið á meðal manna. Þau boða jafnvægi og
hamingju sem Guð einn getur komið til leiða fyrir
anda sinn.
Þegar þú mætir jólabarninu í boskap jólanna
skaltu íhuga tilganginn með komu þessa barns sem
fæddist í Betlehem og lét lífið á krossi í Jerúsalem,
á þeim stað þar sem Suðurnesjamenn syngja hon-
um loí um Jressi jól ásamt þúsundum öðrum. Þessi
atburður jólanna hefur haft mikil áhrif á líf okkar
hér á Islandi. Við höldum jól vegna þess að Jesús
fæddist á jólum. Líf hans hafði tilgang. Hann lifði
til þess að birta okkur kærleika Guðs. Hann lifði og
dó til að koma þessum boðskap til skila. Hefur þú
gert þér grein fyrir að boðskapur jólanna er ætlaður
þér. Jesús lifði og dó fyrir þig og boðskapur hans er
ritaður til [sess að þú megir lifa. Þessi boðskapur er
boðaður á jólum. Láttu hann ekki fara fram hjá |x>r.
Innihald jólanna er boskapur til ÞÍN.
Guð gefi þér og þinum gleðileg jól.