Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.1985, Qupperneq 3

Faxi - 01.12.1985, Qupperneq 3
SÉRA ÖRN BÁRÐUR JÓNSSON SÓKNARPRESTUR f GRIN DAVÍKURPRESTKALLI Jólahugvekja tilþín Á jólum minnumst við fæðingar Jesú Krists, minnumst þess að Guð, skapari himins og jarðar, kom i mannheim og birti náð sína. Guð kom til manna í Jesú Kristi. Merkasti viðburður heimssög- unnar er ekki sá að menn hafa stigið fæti á tunglið heldur sá að Guð hefur gengið meðal manna hér á jörðu. Þetta er boðskapur jólanna: Og oss til merkis er þad sagt: I aumum reifum fínnum lagt þad barn í jölu' er hefur heim í hendi sér og Ijóssins geim. (Sb. 85) En til hvets? Kom Guð aðeins til Jress að við gæt- um haldið jól og glaðst í skammdeginu? Ef grannt er skoðað er alvara jólanna mikil. Boðskapur Biblí- unnar, Guðs orðs, er að Kristur hafi komið til að frelsa synduga menn með lífi sinu og dauða á krossi. Við mannanna börn höfum tilhneigingu til að snúa baki við skapara okkar alveg eins og hinn fyrsti maður. Þetta er hin alvarlega meinsemd í lífi manna. Við gleymum uppruna okkar, eða réttara sagt, við höfnum honum. Vegna þessa ástands mannkyns ríkir ófriður á meðal manna víða um heim. Böl og þjáning setur mark sitt á lífið. Vegna þiessa ástands kom Kristur. Hann beinir sjónum okkar til himinhæða og gefur okkur nýja von og trú á bjartari framtíð. Hann kallar okkur til að vinna í þágu hins góða hér á jörðu. Þetta er boðskapur jól- anna. Við megum ekki gleyma okkur við jötuna og missa sjónar af lífi Jesú í heild. Jólin greina aðeins frá upphafi lífs Jesú. Áeftir kom miklu meira.. Hann sýndi okkur Guð á áþreifanlegan hátt. Við sjáum af honum að Guð er kærleikur, að hann er réttlátur og miskunnsamur. Jesús kom til að sýna okkur eðli Guðs. Hann kom til að sætta menn við Guð. Við sjáum það af lífi hans að hann mætti mönnum í neyð og kvöl, bætti úr hverju böli. Kærleikur streymdi frá honum þrátt fyrir andstöðu manna og hatur. Jólabarnið átti eftir að hanga á krossi fyrir til- stilli manna er áður höfðu aðhyllst hann. Á að- ventunni rifjum við upp innreið Jesú í Jerúsalem. Mannfjöldinn sem hyllti hann hrópaði síðar: Kross- festu hann! En jólabarnið sem hékk á krossinum bað böðlum sínum fyrirgefningar. Kærleikur Guðs birtist í fyrirgefningu og miskunn. Manstu eftir ræn- ingjunum sem voru krossfestir með honum? Annar hæddi hann en hinn sagði: ,,Jesús, minnst þú mín [regar þú kemur í ríki þitt!“ Þegar þú kemur? I Biblí- unni er talað um Jesú Krist sem var og er og kemur. Hann er frá eilífð til eilífðar. Og hann kemur aftur. Margir hrífast af manninum Jesú frá Nasaret og líta á hann sem fagra fyrirmynd. En Jesús var annað og meira. Já, hann ER annað og meira því að hann lifir í dag og kemur til þín á jólum í boðskap sínum, í anda sínum. Daglega tilbiðja hann milljónir manna um heim allan. Þeir koma ekki aðeins sam- an til þess að minnast látins manns, heldur til að eiga samfélag við hann, lifandi og persónulegt sam- félag við Guð. Hinir trúuðu í heimi hér — kirkjan — eru sönnun þess að hann lifir. Traust manna á Jesú Kristi og tilbeiðsla kynslóðanna er okkur sönn- I un máttar hans. Hann lifir og birtist mönnum enn. Hann hefur áhrif á líf manna og þjóða um heim all- an. Hann var og er og KEMLIR, segir Ritningin. Jesús talaði sjálfur um að hann kæmi aftur, ekki til að endurtaka það sem áður gerðist, heldur til þess að sækja sína og til að halda dóm. Hvenær það verður veit enginn, en sagan stefnir áfram. Hún á upphaf sitt í sköpun Guðs og steínir að endalokum. Þá mun Guðsríkið, veldi Guðs, birtast í fyllingu sinni og þessi heimur líða undir lok með böli sínu og þjáningu. Þangað til erum við kölluð til að vinna að eflingu Guðsríkis, kölluð til að vinna að velferð allra manna. Þetta er boðskapur jólanna. Jólin boða frið á meðal manna. Þau boða jafnvægi og hamingju sem Guð einn getur komið til leiða fyrir anda sinn. Þegar þú mætir jólabarninu í boskap jólanna skaltu íhuga tilganginn með komu þessa barns sem fæddist í Betlehem og lét lífið á krossi í Jerúsalem, á þeim stað þar sem Suðurnesjamenn syngja hon- um loí um Jressi jól ásamt þúsundum öðrum. Þessi atburður jólanna hefur haft mikil áhrif á líf okkar hér á Islandi. Við höldum jól vegna þess að Jesús fæddist á jólum. Líf hans hafði tilgang. Hann lifði til þess að birta okkur kærleika Guðs. Hann lifði og dó til að koma þessum boðskap til skila. Hefur þú gert þér grein fyrir að boðskapur jólanna er ætlaður þér. Jesús lifði og dó fyrir þig og boðskapur hans er ritaður til [sess að þú megir lifa. Þessi boðskapur er boðaður á jólum. Láttu hann ekki fara fram hjá |x>r. Innihald jólanna er boskapur til ÞÍN. Guð gefi þér og þinum gleðileg jól.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.