Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1985, Side 6

Faxi - 01.12.1985, Side 6
MATTHÍAS HALLMANNSSON: Blcssuð jólin Bráðum koma blessuð jólin börnin fara að hlakka til allir fá þá eitthvað fallegt í það minnsta kerti og spil. Það hefir verið í tísku undanfar- ið, að láta okkur gamla fólkið lýsa okkar bemsku jólum. Hjá flest- um er þetta eins, þó eru smá frá- vik hjá sumum, það væri hægt að lýsa þessu í fáum orðum, það er einnig hætt að spinna langt mál, og það ætla ég að reyna. Við börn- in byrjuðum að hugsa og hlakka til jólanna, strax í nóvember, og spennan fór vaxandi eftir því sem nær dró jólum, og náði að sjálf- sögðu hámarki, á aðfangadags- kvöld. Viku fyrir jól, hófst aðal undirbúningurinn, þá var bærinn allur þrifinn hátt og lágt, og síðan var tekið til að baka. Ég man eftir 8 tegundum af kökum, þær vom þessar: jólakaka, sódakaka, mar- marakaka, vínarterta, gyðinga- kökur, kossar, Bjössakökur, hálf- mánar. Mamma hafði ekki alltaf mikið milli handanna um jól, fremur en aðra daga, en hún var mjög flink matselja, og kunni vel með efnið að fara, ég held ég særi engan, þó ég fullyrði, að hvergi hefi ég smakkað betri kökur, en hjá mömmu, það var metnaður mömmu að eiga gott með kaffi, sérstaklega á jólum og öðmm há- tíðum. Jólagjafir svipað því sem nú þekkist vom ekki gefnar, oftast fengum við kerti og spil, eins og segir í vísunni, þó man ég eftir því, að spilum var skipt í tvennt, Sigurður fékk hjartað og spaðann, en ég tígulinn og laufið og 4 kerti hvor okkar. Ef við vildum spila t.d. Marías, eða Svarta-Pétur, þá mgluðum við saman spilunum, og greindum þau í sundur þegar við hættum að spila. Einum aðfangadegi man ég eftir, sem pabbi fór í Keflavík. Upp úr hádegi fór að snjóa, og um kl. 5 e.h. var kominn blindbylur, og um sex leytið kom pabbi allur uppfenntur, en það segi ég satt að allt tilstandið, hvarf í skuggann fyrir því að fá pabba heilan heim, og nú var allt bjart og allir tóku gleði sína á ný og við fögnuðum innilega jólabarninu, sem færði okkur pabba heim úr hríðinni. Það er margt sem leitar á hugann, þegar maður hugsar til jólanna, þó var það kannske helst fátæktin sem var svo mikil, að mig svíður enn í sinni þegar ég hugsa til þess allsleysis, sem flestir bjuggu við,' þó verð ég að segja að víða var meiri fátækt en hjá okkur. For- eldrar mínir voru mjög dugleg að vinna, og ég minnist þess ekki, að við hefðum ekki nóg að borða, þó stundum hefði maður getað borð- að meira, og á jólum var alltaf hlaðið borð af góðum mat, enda var þá étið mikið. Ég má til með að segja frá einum jóladegi sem sýnir hve mikið var borið á borð. Kl. 12 á hádegi var sest að borðum. A borðum var: steykt kindakjöt og brúnaðar kartöflur með tilheyr- andi sósu og á eftir sveskjugraut- ur með rjóma boðlegur matur handa hverjum sem væri jafnvel nú til dags, á tímum allsnægtanna og óhófsins, en eina smá sögu verð ég að láta fylgja með. I húsi því er ,,Steinbogi“ hét bjó um tíma ekkja sem hét Anna Pétursdóttir. Anna og mín fjölskylda voru mikið vinafólk, ég hefi minnst á Önnu annars staðar í þessum þáttum. Það var venjan þegar við bræður vorum búnir að borða, Sigurður og ég, fórum við út ef svo viðraði, og vanalega um 3 leytið fórum við heim til Önnu og feng- um alls kyns góðgæti og gerðum því vanalega góð skil. í þetta sinn brá Önnu í brún, við afþökkuðum allar góðgerðir, vissum þó að það var ekkert tros sem Anna bar á borð og síst á jólum. En ég hefi lesið það einhvers staðar að betra sé að éta yfir sig en að tala yfir sig, JOHANN JÓNSSON: MYNDIR HUGANS Á samtal hafs og heiða ég hlustaði ungur. Sá þar og margar myndir um mar og klungur. Myndir er heilluðu hugann og hljóta að geymast, að ævinnar endalokum en aldrei að gleymast. Eg skoðaði Skessusteininn skelfdur og hugði vera bústað bergrisa og flagða sem breyttist, dugði að hlera. Eins hélt ég gull vera grafið í græna hólinn við lækinn. En þar er víst hestur heygður af hending lúinn og bækinn. Og enn sé ég ýmsar myndir sem endranær við mér skína svo vart mun í viðjar binda vinina bestu mína. Því mér þykja meira virði myndir í hugans inni, en tálmyndir tímans nýja sem tröllríða veröldinni. 318 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.