Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1985, Side 13

Faxi - 01.12.1985, Side 13
þjóð“. Þessi lönd voru valin vegna þess að menn töldu að þau sýndu best andstæðurnar í umönnun aldraðra. í myndinni er greint frá sænskri konu sem fer af heimili si'nu og á elliheimili og jafnframt er sýnd mynd af því er aldraður ítali flutti inn í minna herbergi en hann hafði vegna þess að íjöl- skyldan þurfti á því að halda. í myndinni voru rakin réttindi aldraðra í Svíþjóð. Gamla konan fékk fallegt herbergi með góðum húsgögnum og fötin voru þvegin fyrir hana. Hún hafði sameigin- legt sjónvarpsherbergi með öðr- um og tækifæri til að gera eitt og annað. ítalinn varð að spjara sig sjálfur en hann borðaði alltaf með fjöl- skyldunni og dóttir hans þvoði af honum fötin. Þegar eitthvað þurfti að gera var þess vænst að hann tæki þátt í því eftir bestu getu. Gæta þurfti barna, kynda húsið á veturna, og á sumrin var nóg af ill- gresi í garðinum sem varð að fjar- lægja. En þægindin voru lítil, maturinn fábrotinn og fötin slitin. {lok myndarinnar var hlutskipti ítaians og sænsku konunnar borið saman. Annars vegar að eldast og verahrjáðurafeinmanaleika, eins og sænska konan, eða verða gamall í fátækt en eiga þó sitt sam- félag og sína fjölskyldu. Viðbrögð ykkar við myndinni yrðu eflaust mismunandi. En fjöldi einmana eldra fólks kysi fremur að eldast á Ítaiíu. Einmanaieikinn getur ver- ið það sár þótt þægindin skorti ekki. Prédikarinn gerði sér grein fyrir erfiðleikum aldraðra er hann skrifaði á myndrænan hátt í 12. kafla: ,,Og mundu eftir skapara þínum á unglingsárum þínum, áður en vondu dagarnir koma og þau árin nálgast, er þú segir um: ,,Mér líkar þau ekki“ — áður en sólin myrkvast og ljósið og tunglið og stjörnurnar, og áður en skýin koma aftur eftir regnið (þ.e. sjónin daprast), þá er þeir skjálfa, sem hússins geyma (þ.e. handlegg- irnir), og sterku mennimir verða bognir (þ.e. fæturnir), og kvarn- arstúlkurnar hafast ekki að (þ.e. tennurnar), af því að þær eru orðnar fáar, og dimmt er orðið hjá þeim, sem líta út um gluggana (þ.e. augun) og dyrunum út að götunni er lokað (þ.e. eyrunum) og hávaðinn í kvörninni minnkar, og menn fara á fætur við fugls- kvak, en allir söngvarnir verða lágværir, þá menn em hræddir við hæðir og sjá skelfingar á veg- inum, og þegar möndultréð stendur í blóma (þ.e. gráa hárið) og engispretturnar dragast áfram (allt verður þungt) og kaper ber hrífa ekki lengur (þ.e., bragð- skynið minnkar), því að maður- inn fer burt til síns eilífðar húss og grátendurnir ganga um strætið." Prédikarinn vissi sem sé um vanda alraðra í sínu þjóðfélagi. Það er ekki auðvelt að eldast nú hvað þá á hans tímum. Hinir yngri gera það yfirleitt ekki léttara enda þótt á því séu undantekning- Það skiptir afar miklu máli að vera sáttur við sitt hlutskipti og í raun og veru hafa öll aldursskeið sína töfra, ekki síst ef menn gæta þess að vera virkir og láta ekki einangra sig. Þá gildir einu hvort menn eru ,,fyrrverandi“ eður ei. Áður en varir erum við öll orðin fyrrverandi. Þið í dag, ég á morg- un. III. Lífið er skóli og í þeim skóla lær- um við ýmsilegt. Eftir því sem ár- in líða verður reynslan mikil- ar. r r Úrval jólagjafa Vönduð úr, klukkur, barómet, I gullskartgripir, silfurskartgripir og ýmsar gjafavörur A V.. L L L ■ L Georg V. Hannah Úra- og skartgripaverslun, Keflavík. TILVALINJOLAGJOF JAFNT FYRIR DÖMUR SEM HERRA GlífiflUGNflVíRSLUN K€FLflVIKUfi HfiFNARGÖTU 17 - SÍMI 3811 FAXI 325

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.