Faxi - 01.12.1985, Qupperneq 13
þjóð“. Þessi lönd voru valin vegna
þess að menn töldu að þau sýndu
best andstæðurnar í umönnun
aldraðra. í myndinni er greint frá
sænskri konu sem fer af heimili
si'nu og á elliheimili og jafnframt
er sýnd mynd af því er aldraður
ítali flutti inn í minna herbergi en
hann hafði vegna þess að íjöl-
skyldan þurfti á því að halda. í
myndinni voru rakin réttindi
aldraðra í Svíþjóð. Gamla konan
fékk fallegt herbergi með góðum
húsgögnum og fötin voru þvegin
fyrir hana. Hún hafði sameigin-
legt sjónvarpsherbergi með öðr-
um og tækifæri til að gera eitt og
annað.
ítalinn varð að spjara sig sjálfur
en hann borðaði alltaf með fjöl-
skyldunni og dóttir hans þvoði af
honum fötin. Þegar eitthvað þurfti
að gera var þess vænst að hann
tæki þátt í því eftir bestu getu.
Gæta þurfti barna, kynda húsið á
veturna, og á sumrin var nóg af ill-
gresi í garðinum sem varð að fjar-
lægja. En þægindin voru lítil,
maturinn fábrotinn og fötin slitin.
{lok myndarinnar var hlutskipti
ítaians og sænsku konunnar borið
saman. Annars vegar að eldast og
verahrjáðurafeinmanaleika, eins
og sænska konan, eða verða
gamall í fátækt en eiga þó sitt sam-
félag og sína fjölskyldu. Viðbrögð
ykkar við myndinni yrðu eflaust
mismunandi. En fjöldi einmana
eldra fólks kysi fremur að eldast á
Ítaiíu. Einmanaieikinn getur ver-
ið það sár þótt þægindin skorti
ekki.
Prédikarinn gerði sér grein fyrir
erfiðleikum aldraðra er hann
skrifaði á myndrænan hátt í 12.
kafla: ,,Og mundu eftir skapara
þínum á unglingsárum þínum,
áður en vondu dagarnir koma og
þau árin nálgast, er þú segir um:
,,Mér líkar þau ekki“ — áður en
sólin myrkvast og ljósið og tunglið
og stjörnurnar, og áður en skýin
koma aftur eftir regnið (þ.e. sjónin
daprast), þá er þeir skjálfa, sem
hússins geyma (þ.e. handlegg-
irnir), og sterku mennimir verða
bognir (þ.e. fæturnir), og kvarn-
arstúlkurnar hafast ekki að (þ.e.
tennurnar), af því að þær eru
orðnar fáar, og dimmt er orðið hjá
þeim, sem líta út um gluggana
(þ.e. augun) og dyrunum út að
götunni er lokað (þ.e. eyrunum)
og hávaðinn í kvörninni minnkar,
og menn fara á fætur við fugls-
kvak, en allir söngvarnir verða
lágværir, þá menn em hræddir
við hæðir og sjá skelfingar á veg-
inum, og þegar möndultréð
stendur í blóma (þ.e. gráa hárið)
og engispretturnar dragast áfram
(allt verður þungt) og kaper ber
hrífa ekki lengur (þ.e., bragð-
skynið minnkar), því að maður-
inn fer burt til síns eilífðar húss og
grátendurnir ganga um strætið."
Prédikarinn vissi sem sé um
vanda alraðra í sínu þjóðfélagi.
Það er ekki auðvelt að eldast nú
hvað þá á hans tímum. Hinir
yngri gera það yfirleitt ekki léttara
enda þótt á því séu undantekning-
Það skiptir afar miklu máli að
vera sáttur við sitt hlutskipti og í
raun og veru hafa öll aldursskeið
sína töfra, ekki síst ef menn gæta
þess að vera virkir og láta ekki
einangra sig. Þá gildir einu hvort
menn eru ,,fyrrverandi“ eður ei.
Áður en varir erum við öll orðin
fyrrverandi. Þið í dag, ég á morg-
un.
III.
Lífið er skóli og í þeim skóla lær-
um við ýmsilegt. Eftir því sem ár-
in líða verður reynslan mikil-
ar.
r r
Úrval jólagjafa
Vönduð úr, klukkur, barómet,
I gullskartgripir, silfurskartgripir
og ýmsar gjafavörur
A
V..
L
L
L
■ L
Georg V. Hannah
Úra- og skartgripaverslun, Keflavík.
TILVALINJOLAGJOF
JAFNT FYRIR DÖMUR
SEM HERRA
GlífiflUGNflVíRSLUN K€FLflVIKUfi
HfiFNARGÖTU 17 - SÍMI 3811
FAXI 325