Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.1985, Qupperneq 15

Faxi - 01.12.1985, Qupperneq 15
vægari og gamalt fólk hefur miklu að miðla öðrum. Lexíurnar í skóla lífsins geta verið erfiðar. Það vit- um við öll. Það er erfitt að segja skilið við eitt og annað á ævi- kvöldinu. Það er mikil list ,,að verða gamall glaður í hjarta“, eins og Friðrik Pedersen orðaði það. Það er hart að hafast ekki að þegar starfslöngunin er enn lif- andi en kraf'tarnir þrotnir. Það er erfitt að vera hljóður þegar maður telur sig hafa á réttu að standa en hæfileikinn til að fylgja eftir sjón- armiðum sínum hefur minnl<að. Það er erfitt að bera krossinn sinn og fylgjast jafnframt án öfundar með þeim sem njóta óskertrar starfsorku. Það er ekki síður erfitt að þiggja hjálp þegar lífið hefur gengið út á það að hjálpa öðrum. Það er sárt að játa sig of máttlít- inn til þess að verða öðrum að liði. Það er einnig sárt að losa um þau bönd sem við höfum bundist þeim sem eru okkur kærir. En takist menn vongóðir á við þennan vanda fara þeir að líta hann öðrum augum. Guð ætlar okkur öllum ákveðið hlutverk. Þær hendur sem ekki geta lengur unnið má spenna í fyrirbæn fyrir öllum sem við elskum. Þannig köllum við blessum Guðs yfir þá og þeirra verk. í dag er þakkargjörðardagur þjóðkirkjunnar. Bænin getur ekki síður verið þakkargjörð til Guðs fyrir allt sem þegið hefur verið úr hendi hans. Oll eigum við mikið að þakka fyrir. Lífið er aldrei svo fátæklegt að ekki sé eitthvað að þakka fyrir. Herra Pétur Sigur- geirsson, biskup Islands, segir m.a. í bréfi til presta af þessu til- efni: ,,Þegar sumar kveöur og vetur heilsar fær íslensk þjóð og kirkja ærið tilefni til þakkargjöröar fyrir allar gjafir Guðs. Misseraskiptin hvetja okkur til að treysta hand- leiðslu Guðs og fela sig forsjón hans. l’akklátsemi var eitt af megin einkennum frumkirkjunn- ar, sem þó fór aldrei varhluta af andstreymi ogofsóknum. En hún var þess fullviss að ekkert gæti gert hana viðskila við kærleil<a Guðs, sem birtist í Kristi Jesú. Það megum við ennfremur muna Arnað heilla ÁRNHEIÐUR MAGNÚSDÓTTIR 85 ÁRA Heiðurs- og sómakonan Árn- heiður Magnúsdóttir varð 85 ára 2. sept. s.i. Hún er horin og harnfœdd í Innri-Njarðvik. Árnheiður er gift Árna Sigurðs- syni. Hafa þau hjón búið sér heimili sem er til fyrirmyndar. Husið þeirra er við Kirkjubraut 17, Njarðvik. Hin sanna reynsla, góði orð- rómur, sem fer af Arnheiði og ágœt kynni mín afhenni um ára- hil, fá mig til að setjast niður og fœra í letur hugleiðingu og bless- unaróskir. Tímamót sem þessi gefa einkar gott tœkifœri á þennan hátt að rifja upp ogþakka fyrir bœði það sem ágœtt er og markvert. Innri-Njatðvíkurkirkja og söfn- uður hefur notið mjög ríkulega starfskrafta Árnheiðar. Um 30 ára skeið var hún í sóknarnefnd og svipaðan tima í kirkjukórn- um, einnig var hún ein af stojh- endum Systrafélags kirkjunnar okkar og er þar starfandi enn. Adda eins og við sem hana þekkjum, köllum hana, er mjög jjölhœf manneskja. Það sem ein- kennir ðddu einna mest er góð- vilji og starfsgleði. Mikið hefur verið og er leitað til hennar. Spurðu Öddu, hefuroft veriðsagt við mig, þegar ég hefþurfl að afla mér fróðleiks eða haldgóðra upp- lýsinga af svœðinu eða viðar. Adda hefurgott minni ogskírleiki hemtarkemursérvel, þarsem fer saman hjá þcssari sómakonu fórnarlund ogfúsleiki að miðla til annarra. Mér er óhœtt að segja að alla tíð hefur hún borið um- hyggju fyrir náunganum og verið sístarfandi fyrir aðra, sem er samhljómur, Orðskviðanna: ,,Hjarta mannsins upphugsar veghans, en Drottinn stýrirgangi hans.“ Þessi orð mín, kœra Adda, eru persónulegar þakkir frá mér og u m leið flyt ég þér þakkir frá starfsfólki og söfnuði hmri-Njarðvíkurkirkju j\rrir alla umhyggju þina til kirkjunnar og byggðalagsins. Biðjum þér og þínum Guðs blessunar í nútíð og framtíð. Helga Óskarsdóttir Njarðvík og þakka. Mikils er vant ef þakk- argjörð brestur í trúarlífi okl<ar. íslensk þjóð þarf í dag umfram allt að koma auga á hin mörgu og stóru þakkarefni, sem hún á Drottni Guði að þakka. Þakklátt hugarfar er gleðigjafi og sérhver þakkarbæn er tenging milli okkar og himinsins. Þeim mun sterl<ara sem guðssamfélagið er þeim mun einlægari og tíðari þakkargjörðin. „Þakkið Drottni því hann er góð- ur, því miskunn hans varir að ei- lífu“. Svo mörg voru þau orö. IV. Að lokum langar mig að minna ykkur aldraða fólkið, og reyndar unga fólkið einnig, á vitnisburð Sir William Mulock, „fyrrver- andi“ hæstaréttardómara í Ontario. Á 95. afmælisári ávarp- aði hann gesti sína. Rödd hans var styrk og skír, rödd manns sem elskaði lífið, starf sitt og náung- ann. Hann hlakkaði jafnan til þess sem var í vændum. Lífsviska hans var fólgin í því að hið besta í lífinu væri alltaf framundan. ,,Ég starfa enn,“ sagði hann, , ,hef höndina á plógnum og horfi vongóður mót framtíðinni. Skuggar kvöldsins lengjast um mig, en morguninn býr í hjarta mínu. Éghef komið víða við á lífs- leiðinni og vermt hendur mínar við glóð lífsins. Ég á auðlegð minninganna ásamt því sem er mér dýrmætt í dag, bækur, blóm, myndir, náttúran og heilsurækt. Vorið heillar mig enn. En besta al öllu eru vinirnir. Hið besta í lífinu er framundan.“ Mulock snart alla sem á hann hlýddu. Það var eins og töfrar fylgdu orðum hans. Fimmtugum og sextugum mönnum fannst sem bynfi væri létt af herðum þeirra þeim fannst þeir ungir í annað sinn. Menn, sem höfðu misst sjónar á tilgangi lífsins og voru fjötraðir í eigin ótta, hlustuðu á þennan öldung tala um lífið sem ævintýri. Heilsum þannig hverjum degi glöð og óhrædd og njótum þeirra gjafa sem Guð hefur gefið með þakkargjörð. Vermum báður hendur við glóð lífsins. Eignumst góða vini og varðveitum bjartar minningar í þakklátum huga. Hið besta í lífinu er ávallt framundan. Ólafur Oddur Jónsson. FORSÍÐUMYNDIN FAXI fékk þó óvœntu afmœlisgjöf aö fá aö vera meö mynd af Hólrmfríöi Karlsdóttur á forsíöu afmœlis- og jólablaösins. Meö kjöri hennar sem ungfrú alheimur sannast orö JónsThorkeli, sem sagöi: „Hvergi á byggöu bóli eru stúlkurnar fallegri en í Gull- bringu- og Kjósarsýslu." Eina íslenska stúlkan, sem áöur hefur hlotiö þann glœsilega titil er Guörún Bjarna- dóttirfrá Njarövík. FAXI 327
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.