Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1985, Síða 17

Faxi - 01.12.1985, Síða 17
sett. — Þaö er staðreynd, sem allir hljóta að viðurkenna og allir verða að beygja sig fyrir. — En oftast er það svo, að þegar horft er til baka, þá finnst manni ekki svo ýkja- langt síðan þetta eða hitt gerðist, jafnvel þótt liðnir séu nokkrir ára- tugir. — Þannig finnst mér ekki sérlega langt síðan við hjónin fluttum í þetta prestakall, og þó eru það rúm 37 ár. — Margt hefur að vísu mikið breyzt á þessum árum, íbúaQöldi um það bii fjór- faldast í prestakallinu, og miklar og margvíslegar framfarir átt sér stað. - En eitt hefur þó ekki breyzt og breytist aldrei, og það er miskunn og trúfesti Guðs, og orð hans stendur stöðugt, eilíflega, og það orð hefi ég viljað boða, bæði á hátíðar- og fagnaðarstundum og einnig á stundum sorgar og sakn- aðar. — Hvernig það hefur tekist er ég ekki dómbær um. — En hafi ég einhvern tíma flutt einhverjum huggandi, uppörvandi og stykj- andi orð, þá er það ekki mér að þakka, heldur því orði, sem varir að eilífu, og býr sjálft yfir hugg- andi, helgandi og styrkjandi mætti, og hefur frá einni öld til annarrar verið okkur veikum og vanmáttugum jarðarbörnum upp- spretta innri huggunar og friðar, þegar mannleg orð og mannleg aðstoð hafa reynst lítils eða einsk- is megnug. Og því vil ég nú taka mér í munn þau orð Páls postula, er ég sagði í upphafi að oft hefðu komið mér í hug að undanförnu, þessi orð: , ,Nú fel ég yður Guði og orði náð- ar hans, sem máttugt er að upp- byggja yður og gefa yður arfleifð með öilum þeim, sem helgaðir eru.“ — En hvert var tilefni þess- ara orða postulans og við hvaða tækifæri mælti hann þau? — Jú, hann var að kveðja, kveðja einn af sínum mörgu og kæru söfnuðum, söfnuðinn í borginni Efesus í Litlu-Asíu, þar sem hann hafði iengi starfað og boðað Guðs orð og fagnaðarerindið um hinn kross- festa og upprisna Frelsara, Drott- in Jesúm Krist. - Honum var sú kveðjustund ekki með öllu sárs- aukalaus. - Til þess var honum sá söfnuður of kær, og honum lá veiferð þess safnaðar þungt á hjarta. — Þar átti hann, að sjálf- sögðu, marga samherja í trúnni og marga kæra vini, sem hann stóð í þakkarskuld við. — Þessa sam- herja og vini kallaði hann á sinn fund til þess að kveðja þá, og hann kvaddi þá með bænarorð á vörum og mælti:, ,Nú fel ég yður Guði og orði náðar hans, sem máttugt er að uppbyggja yður og gefa yður arfleifð með öllum þeim, sem helgaðir eru.“ - Ekki ætla ég mér svo stóran hlut, að iíkja mér á nokkurn hátt við það andans stórmenni, sem Páll postuli var í öllu sínu starfi fyrir Guðs kristni og kirkju, en til orða hans tel ég mér þó heimilt að vitna, því að það hafa kristnir menn gert um aldaraðir og munu ugglaust gera, svo lengi sem krist- in kirkja er við lýði í þessum heimi. — Og því vil ég á þessari stundu taka undir þessi fögru bænarorð hins mikla postula og segja: ,,Nú fel ég yður Guði og orði náðar hans.“ Og mér finnst að þessi fáu orð, þessi fagra ósk og fyrirbæn, segi í rauninni allt, sem segja þarf, þegar ég nú læt af þjón- ustu hér í þessu prestakalli. — Eg get þó á þessari stundu ekki látið hjá líða að þakka þær mörgu, góðu minningar, sem við hjónin geymum í huga frá langri veru okkar hér í þessu prestakalli, þakka fjölmörgum vinum og kunningjum, þakka hve hlýlega okkur var tekið hér strax og við komum hingað, þá öllum ókunn- ug hér, þakka allt það umburðar- lyndi, sem okkur hefur verið sýnt frá fyrstu tíð og allt tii þessa, en þakka þó alveg sérstaklega nán- asta, fórnfusasta og trúfstasta samstarfsfólki mínu við alia kirkjuiega þjónustu, og á ég þar fyrst og fremst við organista, kirkjukór, safnaðarstjórn, með- hjálpara og svo marga og marga, sem unnið hafa mikið og fórnfúst starf í þágu kirkju og safnaðar. — Ég tel það hafa verið mér hin mesta gæfa, hve heppinn ég hefi verið með allt þetta samstarfsfólk frá fyrstu tíð, og tel mig því standa í mikilli þakkarskuld við allt þetta fólk, og minnist þess ekki að þar hafi nokkurntíma öll þessi liðnu ár komið til nokkurra árekstra í starfi milli mín og þess. — Þetta er mér mikill gleðigjafi og þakkar- efni, þegar ég nú hugsa til baka og læt af starfi, og svo einnig það sem áunnist hefur hér innan presta- kallsins á þessum árum, gamla kirkjan í Höfnum verið endurreist frá grunni, ný og glæsileg kirkja verið byggð hér í Grindavík og myndarlegur og vandaður prests- bústaður reistur hér fyrir all- mörgum árum. — En ekkert af þessu get ég þó þakkað minni eigin forgöngu, nema ef vera kynni byggingu embættisbústaðarins á sínum tfma, sem ekki var þó sérstaklega auðsótt mál, en hvað kirkjurnar áhrærir er það fyrst og fremst að þakka góðri samstöðu og fórnfýsi sóknarbarnanna sjálfra. — En þó að þetta, er ég nú nefndi, hafi áunnist, má enn færa ýmis- legt til betri vegar, og ýmislegt, Vöruflutningamiöstöðin hf. Borgartúni 21 - Sími 10440 Óskum öllum Suöurnesjabúum gleöilegra jóla og farsœldar á komandi ári. Þökkum viöskiptin á árinu sem er aö líöa. BÍLSTJÓRAR: Símar: 92-7071 92-1086 92-3297 s'Æn^JJ»NGAR --5Í22lJS&ssONAR FAXI 329
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.