Faxi - 01.12.1985, Page 17
sett. — Þaö er staðreynd, sem allir
hljóta að viðurkenna og allir verða
að beygja sig fyrir. — En oftast er
það svo, að þegar horft er til baka,
þá finnst manni ekki svo ýkja-
langt síðan þetta eða hitt gerðist,
jafnvel þótt liðnir séu nokkrir ára-
tugir. — Þannig finnst mér ekki
sérlega langt síðan við hjónin
fluttum í þetta prestakall, og þó
eru það rúm 37 ár. — Margt hefur
að vísu mikið breyzt á þessum
árum, íbúaQöldi um það bii fjór-
faldast í prestakallinu, og miklar
og margvíslegar framfarir átt sér
stað. -
En eitt hefur þó ekki breyzt og
breytist aldrei, og það er miskunn
og trúfesti Guðs, og orð hans
stendur stöðugt, eilíflega, og það
orð hefi ég viljað boða, bæði á
hátíðar- og fagnaðarstundum og
einnig á stundum sorgar og sakn-
aðar. — Hvernig það hefur tekist
er ég ekki dómbær um. — En hafi
ég einhvern tíma flutt einhverjum
huggandi, uppörvandi og stykj-
andi orð, þá er það ekki mér að
þakka, heldur því orði, sem varir
að eilífu, og býr sjálft yfir hugg-
andi, helgandi og styrkjandi
mætti, og hefur frá einni öld til
annarrar verið okkur veikum og
vanmáttugum jarðarbörnum upp-
spretta innri huggunar og friðar,
þegar mannleg orð og mannleg
aðstoð hafa reynst lítils eða einsk-
is megnug.
Og því vil ég nú taka mér í munn
þau orð Páls postula, er ég sagði í
upphafi að oft hefðu komið mér í
hug að undanförnu, þessi orð:
, ,Nú fel ég yður Guði og orði náð-
ar hans, sem máttugt er að upp-
byggja yður og gefa yður arfleifð
með öilum þeim, sem helgaðir
eru.“ — En hvert var tilefni þess-
ara orða postulans og við hvaða
tækifæri mælti hann þau? — Jú,
hann var að kveðja, kveðja einn af
sínum mörgu og kæru söfnuðum,
söfnuðinn í borginni Efesus í
Litlu-Asíu, þar sem hann hafði
iengi starfað og boðað Guðs orð og
fagnaðarerindið um hinn kross-
festa og upprisna Frelsara, Drott-
in Jesúm Krist. - Honum var sú
kveðjustund ekki með öllu sárs-
aukalaus. - Til þess var honum
sá söfnuður of kær, og honum lá
veiferð þess safnaðar þungt á
hjarta. — Þar átti hann, að sjálf-
sögðu, marga samherja í trúnni og
marga kæra vini, sem hann stóð í
þakkarskuld við. — Þessa sam-
herja og vini kallaði hann á sinn
fund til þess að kveðja þá, og hann
kvaddi þá með bænarorð á vörum
og mælti:, ,Nú fel ég yður Guði og
orði náðar hans, sem máttugt er
að uppbyggja yður og gefa yður
arfleifð með öllum þeim, sem
helgaðir eru.“ -
Ekki ætla ég mér svo stóran
hlut, að iíkja mér á nokkurn hátt
við það andans stórmenni, sem
Páll postuli var í öllu sínu starfi
fyrir Guðs kristni og kirkju, en til
orða hans tel ég mér þó heimilt að
vitna, því að það hafa kristnir
menn gert um aldaraðir og munu
ugglaust gera, svo lengi sem krist-
in kirkja er við lýði í þessum
heimi. — Og því vil ég á þessari
stundu taka undir þessi fögru
bænarorð hins mikla postula og
segja: ,,Nú fel ég yður Guði og
orði náðar hans.“ Og mér finnst að
þessi fáu orð, þessi fagra ósk og
fyrirbæn, segi í rauninni allt, sem
segja þarf, þegar ég nú læt af þjón-
ustu hér í þessu prestakalli. — Eg
get þó á þessari stundu ekki látið
hjá líða að þakka þær mörgu,
góðu minningar, sem við hjónin
geymum í huga frá langri veru
okkar hér í þessu prestakalli,
þakka fjölmörgum vinum og
kunningjum, þakka hve hlýlega
okkur var tekið hér strax og við
komum hingað, þá öllum ókunn-
ug hér, þakka allt það umburðar-
lyndi, sem okkur hefur verið sýnt
frá fyrstu tíð og allt tii þessa, en
þakka þó alveg sérstaklega nán-
asta, fórnfusasta og trúfstasta
samstarfsfólki mínu við alia
kirkjuiega þjónustu, og á ég þar
fyrst og fremst við organista,
kirkjukór, safnaðarstjórn, með-
hjálpara og svo marga og marga,
sem unnið hafa mikið og fórnfúst
starf í þágu kirkju og safnaðar. —
Ég tel það hafa verið mér hin
mesta gæfa, hve heppinn ég hefi
verið með allt þetta samstarfsfólk
frá fyrstu tíð, og tel mig því standa
í mikilli þakkarskuld við allt þetta
fólk, og minnist þess ekki að þar
hafi nokkurntíma öll þessi liðnu
ár komið til nokkurra árekstra í
starfi milli mín og þess. — Þetta er
mér mikill gleðigjafi og þakkar-
efni, þegar ég nú hugsa til baka og
læt af starfi, og svo einnig það sem
áunnist hefur hér innan presta-
kallsins á þessum árum, gamla
kirkjan í Höfnum verið endurreist
frá grunni, ný og glæsileg kirkja
verið byggð hér í Grindavík og
myndarlegur og vandaður prests-
bústaður reistur hér fyrir all-
mörgum árum. —
En ekkert af þessu get ég þó
þakkað minni eigin forgöngu,
nema ef vera kynni byggingu
embættisbústaðarins á sínum
tfma, sem ekki var þó sérstaklega
auðsótt mál, en hvað kirkjurnar
áhrærir er það fyrst og fremst að
þakka góðri samstöðu og fórnfýsi
sóknarbarnanna sjálfra. —
En þó að þetta, er ég nú nefndi,
hafi áunnist, má enn færa ýmis-
legt til betri vegar, og ýmislegt,
Vöruflutningamiöstöðin hf.
Borgartúni 21 - Sími 10440
Óskum öllum Suöurnesjabúum
gleöilegra jóla og farsœldar á komandi ári.
Þökkum viöskiptin á árinu sem er aö líöa.
BÍLSTJÓRAR:
Símar: 92-7071
92-1086
92-3297
s'Æn^JJ»NGAR
--5Í22lJS&ssONAR
FAXI 329