Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1985, Blaðsíða 18

Faxi - 01.12.1985, Blaðsíða 18
sem þarf að stokka upp, og á ég þar ekki hvað sízt við bama- og unglingastarfið, sem satt bezt að segja, hefur verið í algjörum mol- um nokkur undanfarin ár, þótt alllengi væri það í viðunandi ástandi, og veit ég eigi með vissu hvað því veldur að svo er komið, og verður það, meðal annars, eitt verðugt verkefni eftirmanns míns hér að koma því starfi aftur á rétt- an kjöl. — Og þess bið ég lengstra orða, að þeim manni verði hér tekið ekki miður en mér, er ég kom hingað fyrst, ogeinshins, aðeining, sam- heldni og fórnfýsi sóknarbarna hér innan prestakallsins megi ávallt vera sem mest og bezt til efl- ingar kirkju og krisnu lífi. — Og þegar ég nú á þessari stundu lít yfir hin mörgu liðnu ár, þá er mér það ríkulegt þakkarefni, að geta, af minni hálfu, farið héðan full- komlega sáttur við allt og alla, nema þá einna sízt við sjálfan mig, já farið héðan ríkur af ótal góðum minningum frá kynnum mínum og samskiptum við safnaðarfólk, bæði í hópi þeirra eldri og yngri, svo að þannig get ég aldrei annað en borið sóknarbömum mínum góða sögu, hver sem um hana kann að spyrja. — Ég kom ekki hingað með þeim ásetningi að vinna hér einhver stórvirki eða til að tylla mér á tá við almenningsálitið, heldur með þeim ásetningi að reyna að gera mitt bezta í mínu starfi, og reynast trúr því heiti, er ég hafði unnið í helgri vígslu og fyrir altari heil- agrar kirkju, því heiti, ,að predika Guðs orð, hreint og ómengað, eins og það er að finna í hinum spá- mannlegu og postullegu ritum, og í anda vorrar evangelisku lúth- ersku kirkju." — Þetta hefi ég viljað gera eftir getu og eftir því, sem Guð hefur gefið mér vit og náð til. — Sjálfsagt hef- ur það oft tekist miður en skyldi og miður en ég hefði viljað, því að öllum mönnum em mislagðar Séra Jón Ámi Sigurðsson kveður söfnuðinn í Grindavfk. hendur, og það eitt get ég sagt, að ég held ég hafi aldrei stigið svo niður úr prédikunarstól, eða snúið svo frá altari, að ég hafi verið fyllilega ánægður með gjörð- ir mínar þar, og sú hugsun sótt fast að mér, að ég hefði átt að gera betur, enda held ég að aldrei finni syndugur maður meir til andlegs veikleika og vanmáttar en þá er hann stendur á helgum stað. — En Guði séu þakkir að hann getur oft látið mátt sinn fullkomnast í mannlegum veikleika, enda er hann jafnan fullur náðar og misk- unnar, sem bæði þekkir, skilur, umber og fyrirgefur öllum þeim er líknar hans leita, og veita náð hans og miskunn viðtöku. Hver er þá að lokum ósk mín, von og bæn, ykkur til handa, kæru sóknarböm? Hver skulu vera lokaorð mín til ykkar, er ég læt nú af starfi eftir margra ára ánægjulega þjónustu ykkar í Hvpr skiiln vera mín allra síðustu orð? Jú, þau skulu vera þessi, og aðeins þessi: , ,Nú fel ég yður Guði og orði náðar hans.“ Friður Drottins vors Jesú Krists sé með oss öllum. — Hugga þú góði Guð, alla sjúka og sorg- mædda. — Varðveit þú kristni þína um víða veröld og gef öllum mönnum og þjóðum náð til að þekkja þig, hinn eina sanna Guð og þann sem þú sendir, Jesúm Krist. — Blessa þú kirkju lands vors, biskupa, presta, söfnuði og alla starfsmenn kirkju þinnar. — Og vér biðjum þig, sérstaklega, eilífi Guð og faðir, að blessa söfn- uði þessa presakalls og alla íbúa þess, og veit þú hverjum og einum þeirra vernd þína, leiðsögn og líkn. - Blessa þú þjón þinn, sem hér tekur við starfi og veit honum styrk og hjálp til að vinna fyrir þig og ríki þitt, og hald verndarhendi þinni yfir honum, ijölskyldu hans og heimili, og efl þú samheldni, einingu og bróðurhug meðal allra bama þinna hér, kirkju þinni til farsældar og heilla. — Haltu þinni almáttugu vemdarhendi yfir þjóð vorri og fósturjörð, yfir forseta vomm og ríkisstjóm, Og farsæl þú atvinnuvegi vora, bæði til lands og sjávar, og bæg frá oss hverskonar óhöppum, slysum og voða. Já, gef þú oss öllum náð frið og blessun, og allt sem oss má verða til tímanlegrar og eilífrar farsæld- ar. — Og allt, sem vér höfum framar um að biðja, felum vér svo, eilífi Guð og faðir, í þeirri bæn, sem sonur þinn kenndi oss, og biðjum öll saman upphátt með einni sál, og einum huga. Faðir vor.... Amen. Hjónunum voru afhentar margargóðar gjafir f kvcðjuhófmu, t.d. fallegt máI verk afFestarfjalli eftir Pétur Friðrik, sem Grindavikursöfhuður fœrði þeim. / myndinni eru Svavar Ámason, söngstjóri og sóknarnefndarformaður, Sérc Jón Árni Sigurðsson, Jón Hólmgeirsson, meðhjálpari, frú Jóna Sigurjónsdótt ir og Sœvar Árnason, formaður sóknamefndar Kirkjuvogssóknar í Höfnum Stórt oggott safhaðarheimili kemur að góðum notum þegar fjölmenni er við guðsþjónustu — en það er byggt sem álma út frá kirkjuskipinu. Kirkjugestir voru mjög margir og staðfestir það hlýhug safnaðarins til prests- hjónanna á kveðjustund. Myndir tók J.T. 330 FAXI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.