Faxi - 01.12.1985, Síða 18
sem þarf að stokka upp, og á ég
þar ekki hvað sízt við bama- og
unglingastarfið, sem satt bezt að
segja, hefur verið í algjörum mol-
um nokkur undanfarin ár, þótt
alllengi væri það í viðunandi
ástandi, og veit ég eigi með vissu
hvað því veldur að svo er komið,
og verður það, meðal annars, eitt
verðugt verkefni eftirmanns míns
hér að koma því starfi aftur á rétt-
an kjöl. —
Og þess bið ég lengstra orða, að
þeim manni verði hér tekið ekki
miður en mér, er ég kom hingað
fyrst, ogeinshins, aðeining, sam-
heldni og fórnfýsi sóknarbarna
hér innan prestakallsins megi
ávallt vera sem mest og bezt til efl-
ingar kirkju og krisnu lífi. — Og
þegar ég nú á þessari stundu lít
yfir hin mörgu liðnu ár, þá er mér
það ríkulegt þakkarefni, að geta,
af minni hálfu, farið héðan full-
komlega sáttur við allt og alla,
nema þá einna sízt við sjálfan mig,
já farið héðan ríkur af ótal góðum
minningum frá kynnum mínum
og samskiptum við safnaðarfólk,
bæði í hópi þeirra eldri og yngri,
svo að þannig get ég aldrei annað
en borið sóknarbömum mínum
góða sögu, hver sem um hana
kann að spyrja. —
Ég kom ekki hingað með þeim
ásetningi að vinna hér einhver
stórvirki eða til að tylla mér á tá
við almenningsálitið, heldur með
þeim ásetningi að reyna að gera
mitt bezta í mínu starfi, og reynast
trúr því heiti, er ég hafði unnið í
helgri vígslu og fyrir altari heil-
agrar kirkju, því heiti, ,að predika
Guðs orð, hreint og ómengað, eins
og það er að finna í hinum spá-
mannlegu og postullegu ritum, og
í anda vorrar evangelisku lúth-
ersku kirkju." —
Þetta hefi ég viljað gera eftir getu
og eftir því, sem Guð hefur gefið
mér vit og náð til. — Sjálfsagt hef-
ur það oft tekist miður en skyldi
og miður en ég hefði viljað, því að
öllum mönnum em mislagðar
Séra Jón Ámi Sigurðsson kveður
söfnuðinn í Grindavfk.
hendur, og það eitt get ég sagt, að
ég held ég hafi aldrei stigið svo
niður úr prédikunarstól, eða
snúið svo frá altari, að ég hafi
verið fyllilega ánægður með gjörð-
ir mínar þar, og sú hugsun sótt
fast að mér, að ég hefði átt að gera
betur, enda held ég að aldrei finni
syndugur maður meir til andlegs
veikleika og vanmáttar en þá er
hann stendur á helgum stað. — En
Guði séu þakkir að hann getur oft
látið mátt sinn fullkomnast í
mannlegum veikleika, enda er
hann jafnan fullur náðar og misk-
unnar, sem bæði þekkir, skilur,
umber og fyrirgefur öllum þeim
er líknar hans leita, og veita náð
hans og miskunn viðtöku.
Hver er þá að lokum ósk mín,
von og bæn, ykkur til handa,
kæru sóknarböm? Hver skulu
vera lokaorð mín til ykkar, er ég
læt nú af starfi eftir margra ára
ánægjulega þjónustu ykkar í
Hvpr skiiln vera mín allra
síðustu orð? Jú, þau skulu vera
þessi, og aðeins þessi: , ,Nú fel ég
yður Guði og orði náðar hans.“
Friður Drottins vors Jesú Krists
sé með oss öllum. — Hugga þú
góði Guð, alla sjúka og sorg-
mædda. — Varðveit þú kristni
þína um víða veröld og gef öllum
mönnum og þjóðum náð til að
þekkja þig, hinn eina sanna Guð
og þann sem þú sendir, Jesúm
Krist. — Blessa þú kirkju lands
vors, biskupa, presta, söfnuði og
alla starfsmenn kirkju þinnar. —
Og vér biðjum þig, sérstaklega,
eilífi Guð og faðir, að blessa söfn-
uði þessa presakalls og alla íbúa
þess, og veit þú hverjum og einum
þeirra vernd þína, leiðsögn og
líkn. - Blessa þú þjón þinn, sem
hér tekur við starfi og veit honum
styrk og hjálp til að vinna fyrir þig
og ríki þitt, og hald verndarhendi
þinni yfir honum, ijölskyldu hans
og heimili, og efl þú samheldni,
einingu og bróðurhug meðal allra
bama þinna hér, kirkju þinni til
farsældar og heilla. — Haltu þinni
almáttugu vemdarhendi yfir þjóð
vorri og fósturjörð, yfir forseta
vomm og ríkisstjóm, Og farsæl
þú atvinnuvegi vora, bæði til
lands og sjávar, og bæg frá oss
hverskonar óhöppum, slysum og
voða.
Já, gef þú oss öllum náð frið og
blessun, og allt sem oss má verða
til tímanlegrar og eilífrar farsæld-
ar. —
Og allt, sem vér höfum framar
um að biðja, felum vér svo, eilífi
Guð og faðir, í þeirri bæn, sem
sonur þinn kenndi oss, og biðjum
öll saman upphátt með einni sál,
og einum huga.
Faðir vor....
Amen.
Hjónunum voru afhentar margargóðar gjafir f kvcðjuhófmu, t.d. fallegt máI
verk afFestarfjalli eftir Pétur Friðrik, sem Grindavikursöfhuður fœrði þeim. /
myndinni eru Svavar Ámason, söngstjóri og sóknarnefndarformaður, Sérc
Jón Árni Sigurðsson, Jón Hólmgeirsson, meðhjálpari, frú Jóna Sigurjónsdótt
ir og Sœvar Árnason, formaður sóknamefndar Kirkjuvogssóknar í Höfnum
Stórt oggott safhaðarheimili kemur að góðum notum þegar fjölmenni er við
guðsþjónustu — en það er byggt sem álma út frá kirkjuskipinu.
Kirkjugestir voru mjög margir og staðfestir það hlýhug safnaðarins til prests-
hjónanna á kveðjustund. Myndir tók J.T.
330 FAXI