Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1985, Side 22

Faxi - 01.12.1985, Side 22
Aðalfundur S.S.S. var hald- inn 8. nóv., sl. í Samkomu- húsinu í Höfnum. Þórarinn St. Sigurðsson, sveitarstjóri í Höfnum, setti fundinn, en hann var formaður S.S.S. sl. starfsár. Aki Gránz forseti bæj- arstjómar Njarðvíkur tók við formennsku, en forustumenn sveitarfélaganna skiptast á um að annast forustuhlutverkið. Fundurinn fagnaði breyttum viðhorfum stjórnvalda til Sjó- efnavinnslunnar á Reykjanesi. Þeirri skoðun hefur aukist fylgi að önnur efnavinnsla við hlið saltvinnslu geti gert rekst- urinn arðbæran og að sú þekk- ing og reynsla sem þar hefur fengist, sé einnig mikilvæg fyrir íslenskan iðnað. Stærsti áfangi sem S.S.S. hefur náð til þessa er þó sam- eining rafveitnanna á Skagan- um og Hitaveitu Suðumesja. Sameiningin hefur strax leitt til lækkunar raforkuverðs. Aukin orkuframleiðsla og nýting hennar hér á að verða traustur hlekkur í keðju auk- inna athafna á svæðinu og lyftistöng framfara og betra mannlífs. Ingólfur Aðalsteinsson, for- stjóri Hitaveitu Suðumesja, flutti eftirfarandi erindi á aðal- fundinum. J.T. Draumur Suðumesjamanna um hitaveitu er orðinn nokkuð gam- all, en hann mun að sjálfsögðu hafa tengst von um lægri upphit- unarkostnað. Segja má að áhugi manna, lengi vel, hafi ekki beinst að tilteknum hitasvæðum eða fundið farveg í ákveðnum áætlun- um og var hann fremur bundinn óljósri óskhyggju en raunhæfum rannsóknum. Fyrstu tilburðir, sem ég þekki, til einhverra raun- hæfra framkvæmda í þá vem að afla hitaorku með nýtingu jarðhita á Suðumesjum kemur fram í bréfi dags. 5. nóvember 1943 frá Guð- steini Einarssyni oddvita Grinda- víkurhrepps til rannsóknarráðs ríkisins, þar sem hann óskar eftir að gerð sé rannsókn á jarðhita í Selhálsi. - Þessi ósk hans er síðan endurnýjuð í bréfi dags. 23. nóv- ember 1945 til Guðmundar I. Guðmundssonar sýslumanns, þar sem segir orðrétt: „Fyrir hönd hreppsnefndar Grindavík- urhrepps leyfi ég mér hér með að leita til yðar hr. sýslumaður að þér vilduð hlutast til um að Raf- Ingólfur Aðalsteinsson: Jli!» [77*lj Sri* • Ji«J [• • »J' Hönnun bygginga Hitaveitu Suðumesja hejur verið til fyrirmyndar. Hitaveita Suðumesja á tímamótum Milljónir mekavatta streyma úrlega önotuð upp í himingeyminn. Þessa auðlind þarf að beisla og beina henni til að bœta lífskjör allra landsmanna, með útflutningsiðnaði. magnseftirlit ríkisins rannsaki með borunum hvort hægt sé að ná heitu vatni í svokölluðum Selhálsi — eða þar í kring — til nota fyrir byggðarlagið. Og ef lög leyfa að ríkið veiti styrk til rannsóknar þessarar móti sveitarsjóði." í framhaldi af bréfi þessu var ein rannsóknarhola bomð niður í 46 m. Holan var bomð í Selhálsinn austan vegar til Grindavíkur. Nú er hljótt um hitaveitu all langa tíð, enda er olían svo ódýr að menn taka vart eftir því að upp- hitun sé afgerandi kostnaðarliður í húshaldi. Það er ekki fyrr en löngu síðar að fram kemur opinberlega rödd þess efnis að Suðurnesjamenn eigi ,,að sameinast í einu stóm átaki til að hrinda þessu nauð- synjamáli í framkvæmd, því að hér er ekki eftir neinu að bíða, því að við biðina streyma auðæfi þjóðar og einstaklinga út um hina mörgu reykháfa, meðan hin eilífa orkulind í heimahögum er ónytj- uð.“ Svo mælti Karvel Ögmundsson í Njarðvíkingi, blaði Sjálfstæðis- manna í janúar 1958. Eg rek ekk þá sögu frekar að sinni, en sný mér beint að stofnun Hitaveitu Suðurnesja í desember 1974. Það verður að teljast mjög athyglis- vert, að sveitarstjómir 7 sveitar- félaga skyldu frá upphafi vera ein- huga um að standa saman að stofnuninni, þrátt fyrir auðsæja annmarka á því að leggja veitu til allra byggða. Það verður ennfrem- ur að teljast óvenjuleg víðsýni og frjálslyndi, að sveitarstjórnar- menn skyldu vera sammála um að þátttaka í stjórn fyrirtækisins væri óháð eignarhluta. Bæði þessi atriði hafa vakið mikla athygli meðal sveitarstjórnarmanna víða um land. Eftir að stjórn hafði ver- ið kosin í hitaveitunni, var að sjálfsögðu sest á rökstóla, til þess að ræða framkvæmd verksins og íjármögnun. Það var samdóma álit stjómarmanna að til hönnun- ar þeirra mannvirkja, sem byggja þyrfti væri ekki áhorfsmál að ráða fæmstu verkfræðinga og arki- tekta. Enginn efast í dag um það, að fyrir valinu hafi orðið menn, sem haíi leyst verkefni sitt af miklum sóma. Það vom sannar- lega ekki nein smávandamál, sem þurfti að leysa: Iin það var að vinna hita - til upphitunar á hús- næði Suðurnesjamanna úr brim- söltum sjó. Lausn þessa vanda- máls tókst með ágætum, og auk þess var gufuorka jarðsjávarins nýtt til framleiðslu á raforku, sem var þar með orðið að aukaafurð og 334 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.