Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1985, Side 29

Faxi - 01.12.1985, Side 29
Og dagamir í Winnipeg liðu fljótt. Þau Eylandshjónin gerðu allt, sem í þeirra valdi stóð, til að fræða mig um borgina og sýna mér það markverðasta, aka mér út og suður og meira að segja fara með mig í tveggja tíma siglingu um Rauðána. I hlýrri vorgolunni rölti ég svo stundum um nágrennið, eftir að Valdimar þorði að sleppa mér einni út. Dag einn ákvað ég svo að fara með vagni til miðbæjarins. Það leizt honum ekkert á og óttað- ist að ég villtist af réttri leið, en ég fullyrti að ég mundi bjarga mér. Svo leið nokkur stund og við snæddum hádegisverð og síðan ætlaði ég að leggja af stað. Þá vakti Valdimar máls á því að hann þyrfti nauðsynlega að fara í bæ- inn, einhverra erinda og væri því rétt að við yrðum samferða. Ekki sló ég hendinni á móti því, en ekki skildi hann við mig fyrr en hann hafði hlýtt mér rækilega yfir, hvar ég tæki vagninn og hvar ég færi yfir götuna o.s.frv. Þannig var umhyggjusemi hans. Að lokinni dvöl minni vestra, ók hann mér svo um miðja nótt á flugvöllinn til heimferðar og þar skildu ieiðir okkar að fuliu. Það voru orð í tíma töluð, þegar Valdimar sagði, að ég skyldi koma meðan þau gætu haldið dyrunum opnum. Veturinn eftir kvaddi hann iífið. Eftirfarandi ljóð var lítiil þakkarvottur til þeirra hjónanna, á síðasta kvöldi þar heima. 28.11. '85L.Þ. Skilnaðarorð til Eylandshjónanna, Valdimars og Ingi- bjargar, eftir dvöl hjá þeim í Winnipeg, dagana 3—24.6. ’82. Ég hlýt þig kvedja, borgin bjarta fríða, með blœnum nýir dagar koma og líða. Og kœru hjón, þið undrast skuluð eigi þó að mér sœki dœmigerður tregi. Já, Winnipeg mig sumarsœlu vefur, í sínum opna faðmi geymt mig hejur. Þótt dimmar nœtur dragi úr fúglakvaki minn draumur finnur sól, að skýjabaki. Og elfan rennur rétt hjá glugga mínum, hún raular eitt af vögguljóðum sínum. Þá verð ég barn, á bernskuslóðum sveima við bláan straum, hjá litlu ánni heima. Við skóginn hérna finnst mér létt að lifa og langar til að fljúga, dansa og skrifa. En vœngjalaus ég geng þó glöð í huga — við götu mína suðar lítil fluga. En húsið ykkar ennþá opið stendur — mér yfir hafid réttuð vinar hendur. Og dvölin hér, — ég lœt það sjást á letri, var Icerdómsvist, á kunnu menntasetri. Ég yndis naut og er til ferðar búin, er endurnœrð og hvorki þreytt né híin. Til fósturlandsins hraða heimferðinni með hamingju, er lengi býr í sinni. GLEÐILEG JÓL! Gott og farsælt ár! Þökkum viðskiptin á liðna árinu. Og hjartans þakkir Eylandshjón þið eigið, af ykkar rausn ég notið hef og þegið. Að finna vini, fór ég hingað vestur og flýg til baka, krýndur heiðursgestur. Samvinnubankinn - útibú Samvinnutryggingar - útibú Keflavík Winnipeg, 23. júní, 1982. Lóa Þorkelsdóttir. FAXI 341

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.