Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1985, Page 30

Faxi - 01.12.1985, Page 30
IÁ SUÐURNESJUM KYNNTIST ÉG FYRST ÓPERUSÖNGNUM JL rá því fyrsta, ég man eftir mér, hafði ég gaman af söng frekar öllu öðru. Þegar þanggeymsluhúsið var orð- ið næstum tómt á vorin, eftir stór- eldana á haustin og veturna, þá myndaðist þar mikið pláss. Ketill fósturfaðir minn leyfði okkur þá að setja þar upp rólur og nota þetta sem söngstofu okkar. Þar var oft mikið sungið, því okkur lá hátt rómur eins og venja er oft með bamaraddir. „Selskapsfólk- ið“ þarna var, þegar ég man fyrst, Halldóra Ólafsdóttir og Vilborg Eiríksdóttir, systkinadætur fóstra míns og Magnús Ketilsson frá Kirkjuvogi, og Eiríkur Þorsteins- son frá Búðarbakka. Svo var ég, undirritaður og Ásta fóstursystir mín, sem þá var mjög ung. Þetta vom leiksystkinin, sem drógu sig oft saman þarna með lífi og fjöri og sungum við oft saman þarna með hávaða og ærslum. En þang- húsið var svo vel sett í bæjaröð- inni, og bærinn svo geysilegur að stærð, að þetta truflaði ekkert, hvað sem á gekk hjá okkur. Oft lét Halldóra mig syngja: „Napoleon var en tapper kriger“. Það gerði ég. Eg hlýddi þeim frændsystmm mínum, henni og Vilborgu í einu og öllu. FRÁ ALMANNATRYGGINGUM í Keflavík, Njarðvík, Grindavík og Gullbringusýslu Vegna tölvuvinnslu skal bótaþegum bent á að tilkynna umboðinu strax um breytingu á heimilis- fangi. Til að komast hjá erfiðleikum í útsendingu bótamiða. Sími okkar er 3290. Bæjarfógetinn í Keflavík, Njarðvíkog Grindavík Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu Séra Jón Thorarensen dsamt tveimur fermingardrengjum. Nú liðu árin. Ekki man ég hvað gamall ég var orðinn. Þá gerðust þau tíðindi, að það fréttist um sveitina, að Ólafur Ketilsson hreppstjóri á Kalmannstjörn væri búinn að eignast grammofón. Nú væri hægt að hlusta á söng á Kal- mannstjörn. Ég fékk að fara við fyrsta tækifæri suður að Kal- mannstjöm. Mér er það ógleym- anlegt. Það var myndarlegt hús og heimili á Kalmannstjörn. Ólafur var bróðir fóstra míns. Hann hafði sjálfur gaman af söng, var söng- maður og organisti þá í Kirkju- vogskirkju. Mér er það minnis- stætt, þegar ég sá þennan töfra- grip í fyrsta sinn. Það var gríðar- stór ljósbrúnn eikargrammofónn á viðhafnarborðinu í gestastof- unni og trektin bæði stór og víð að sama skapi. Allur gripurinn vakti hjá manni óttablandna lotningu. Nú fékk maður að heyra Pétur Jónsson syngja „Fífilbrekka, gróin gmnd“, ,,Þar sem háir hól- ar“, ,,Vona minna bjarmi“ o.íl. Þar næst lét Ólafur okkur heyra þýzkan óperusöng, sem hann átti mikið af þá. Fannst mér strax meira til um hann. Þetta var ógleymanlegt á Kalmannstjörn, og gestrisni að sama skapi. Eftir að Ólafur fór þaðan, hefur þessi staður aldrei verið samur síðan. Nú leið tíminn, og vor eitt kom að því, að við sex fermingarbörn úr Hafnahreppi gengum til prests- ins. Við vorum þessi: Gunnfríður Friðriksdóttir, Guðlaug Jónsdótt- ir, Rannveig Magnúsdóttir, Helga María Sigurðardóttir, Þorbjörn Benediktsson og ég. Við fórum gangandi, við vorum fyrst tvo tíma að ganga til Keflavíkur og þaðan aðra tvo tíma til Utskála, þar sem sóknarpresturinn síra Kristinn Daníelsson bjó. Þetta var töluverður gangur í alls fjóra tíma, en það bætti allt upp, að líf og fjör ríkti hjá okkur öllum. í Kefiavík bættust fermingarbörnin þaðan við, og þetta var stór , ,floti“ bama, sem komst loks til Út- skála. Ég lá við hjá prestinum þessa spurningadaga. Við vorum öll spurð í Útskálakirkju. Eftir spurningar fórum við Þorsteinn Þorsteinsson fermingarbróðir minn venjulega í gönguferð með sjónum út að vitanum. Þorsteinn var eini pilturinn sem ég kynntist úr Garðinum. Við urðum vinir. Þorsteinn varð svo skipstjóri. Nú er mikið haf runnið til sjávar síðan. Samt erum við íjögur Hafn- arbömin enn á lífi. Af Keflavíkur- börnunum, hefi ég enn oft sam- band við einn fermingarbróður minn, Einar Jósefsson, kaup- mann á Ásvallagötu 2 í Reykjavík. Hann er ungur ennþá. Hann er snilldarmaður. Þetta var hálfgerð- ur hliðarspotti við aðalefnið, en þó til þess, sem ég var að tala um óperusönginn á Kalmannstjörn. Mér leiddist á Útskálum þessa daga, en þá var ég svo heppinn, að ég frétti af kaupmanni í Garðin- um, sem hafði þar smáverzlun. Ilann hét Guðmundur Björnsson. Ég vissi, að hann var vinur for- eldra minna í Reykjavík og sr. Irírusar föðurbróður míns, sem fór til Ameríku. Ég labbaði þvi til Guðmundar og tók hann mér tveim höndum. Guðmundur var þá einhleypur maður. Hann kvæntist síðar Unu Þorsteinsdótt- ur frá Meiðastöðum. Guðmundur Björnsson átti bæði grammófón og töluvert plötusafn frægra manna. Þar skal fyrstan telja Carusó. Guðmundur átti plötu hans af söng hertogans úr Rigo- letto. Chaliapin átti hann á einni plötu. Geraldine Farrar átti hann 342 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.