Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1985, Page 33

Faxi - 01.12.1985, Page 33
tilfinningunum en ekki höfðinu. Það eru tilfinningarnar einar, sem hafa sjötta skilninginn. Þær einar geta skrýðzt brúðkaupsklæðum, þegar himnarfki er annars vegar og opið. Tíminn leið, sambandið við fjöl- skyldu frú Lorange rofnaði. Ég fluttist burt. Ég staðfesti ráð mitt með minni dýrmætu konu, sem alla tíð hefur verið minn betri helmingur. Ég hóf prestsstarf í Hruna og búskap þar. En svo voru óperurnar þrjár lifandi í huga mínum, að ég gat ekki annað en skírt hesta mína suma eftir per- sónunum í óperunni. Ég átti 14 hesta, þegar mest var. Ég fer ekki útí það nánar. Ég vil aðeins geta þess, að Violetta var fallegasta fol- aldið, sem fæddist á búskaparár- um mfnum. Violetta var kolsvört eins og margstrokið flauel að háralagi, há, grönn, afar frið með alhliða ganggæði. Hún var dóttir Freyju móólóttrar hryssu, sem ég átti af reiðhestakyni frá Sólheim- um. Faðir hennar var Hornafjarö- ar Blakkur, verðlaunahestur, sem Hrunamenn keyptu austan að. Þegar við hjónin fluttumst til Reykjavíkur, gaf ég Violettu ein- um bekkjarbróður mínum. Þegar ég lít til baka, minnist ég ennþá þessara þriggja staða á uppvaxtarárum mínum, Kal- mannstjarnar, Garðsins og Freyjugötunnar, þar sem mér var tekið með dæmalausri góðvild og gestrisni og kynntur óperulist- inni. Og af því að ég hefi alltaf elskað söng og óperusönginn mest af allri list í lífinu, en verið þar sjálfur því miður utangarðs- ’maður, þá hugga ég mig við það, að enn er von, því heilög ritning talar um nýjan söng, hinum meg- in grafar, fegurri og fullkomnari en hér þekkist og þennan söng ,,geti enginn numið, nema þeir, sem út eru leystir frá jörðinni“. Frú Emiliew Lomnge. Einar Jósefsson fermingarbróðir og œskuvinur greinarhöfundar. 'fiekiíærið er því enn til fyrir guð- lega náð, nýtt og betra hinum megin grafar fyrir alla þá, sem elska söng og þrá að læra hann og reynzt hafa einlægir vinir listar- innar. Og svo loks þetta: Á Suðurnesj- um kynntist ég fyrst á ævinni óperusöngnum. Gledilegjól Jón Thomrensen ÍSLENZKUR MARKADUR HF. óskar Suöurnesjamönnum gíebiíegra jóía og farSceíbar d komanbt dri. Þökkum viðskiptin ö örinu Óskum íbúum Miöneshrepps og öörum Suöurnesjamönnum gíebtíegra jóía og faréceíbar d komanbt drt, með þökk A fyrir samskiptin - -^ ö liðnu óri SVEITARSTJÓRN MIÐNESHREPPS Óskum starfsmönnum okkar svo og öllum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla ogfarsældar á komandi ári þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða Rammi h.f. FAXI 345

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.