Faxi - 01.12.1985, Qupperneq 33
tilfinningunum en ekki höfðinu.
Það eru tilfinningarnar einar, sem
hafa sjötta skilninginn. Þær einar
geta skrýðzt brúðkaupsklæðum,
þegar himnarfki er annars vegar
og opið.
Tíminn leið, sambandið við fjöl-
skyldu frú Lorange rofnaði. Ég
fluttist burt. Ég staðfesti ráð mitt
með minni dýrmætu konu, sem
alla tíð hefur verið minn betri
helmingur. Ég hóf prestsstarf í
Hruna og búskap þar. En svo voru
óperurnar þrjár lifandi í huga
mínum, að ég gat ekki annað en
skírt hesta mína suma eftir per-
sónunum í óperunni. Ég átti 14
hesta, þegar mest var. Ég fer ekki
útí það nánar. Ég vil aðeins geta
þess, að Violetta var fallegasta fol-
aldið, sem fæddist á búskaparár-
um mfnum. Violetta var kolsvört
eins og margstrokið flauel að
háralagi, há, grönn, afar frið með
alhliða ganggæði. Hún var dóttir
Freyju móólóttrar hryssu, sem ég
átti af reiðhestakyni frá Sólheim-
um. Faðir hennar var Hornafjarö-
ar Blakkur, verðlaunahestur, sem
Hrunamenn keyptu austan að.
Þegar við hjónin fluttumst til
Reykjavíkur, gaf ég Violettu ein-
um bekkjarbróður mínum.
Þegar ég lít til baka, minnist ég
ennþá þessara þriggja staða á
uppvaxtarárum mínum, Kal-
mannstjarnar, Garðsins og
Freyjugötunnar, þar sem mér var
tekið með dæmalausri góðvild og
gestrisni og kynntur óperulist-
inni. Og af því að ég hefi alltaf
elskað söng og óperusönginn
mest af allri list í lífinu, en verið
þar sjálfur því miður utangarðs-
’maður, þá hugga ég mig við það,
að enn er von, því heilög ritning
talar um nýjan söng, hinum meg-
in grafar, fegurri og fullkomnari
en hér þekkist og þennan söng
,,geti enginn numið, nema þeir,
sem út eru leystir frá jörðinni“.
Frú Emiliew Lomnge.
Einar Jósefsson fermingarbróðir og
œskuvinur greinarhöfundar.
'fiekiíærið er því enn til fyrir guð-
lega náð, nýtt og betra hinum
megin grafar fyrir alla þá, sem
elska söng og þrá að læra hann og
reynzt hafa einlægir vinir listar-
innar.
Og svo loks þetta: Á Suðurnesj-
um kynntist ég fyrst á ævinni
óperusöngnum.
Gledilegjól
Jón Thomrensen
ÍSLENZKUR MARKADUR HF.
óskar Suöurnesjamönnum
gíebiíegra jóía
og farSceíbar d komanbt dri.
Þökkum viðskiptin ö örinu
Óskum íbúum Miöneshrepps
og öörum Suöurnesjamönnum
gíebtíegra jóía
og faréceíbar d komanbt drt,
með þökk
A fyrir samskiptin
- -^ ö liðnu óri
SVEITARSTJÓRN
MIÐNESHREPPS
Óskum starfsmönnum okkar svo og
öllum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
ogfarsældar
á komandi ári
þökkum viðskiptin á árinu sem er að
líða
Rammi h.f.
FAXI 345