Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1985, Page 34

Faxi - 01.12.1985, Page 34
NÍELS ÁRNI LUND: í tilefhi af alþjóðar- ári æskunnar Þegar Faxi fór þess á leit við mig að ég segði nokkuð frá því sem gerst hefur á Ári æskunnar og hvaða árangri það hefði skilað, fannst mér ekki nama sjálfsagt að verða við því. Þegar hinsvegar til kastanna kom og ég settist við ritvélina til að setja eitthvað á blað, áttaði ég mig á því að það var nokkuð erfitt. Staðreyndin er nefnilega sú að á vegum ríkisins og þeirrar nefndar sem skipuð var til að hafa umsjón með Æskulýðsárinu, og ég var í formennsku fyrir hefur ekki verið gert nema brot af því starfi sem unnið hefur verið um allt land í tilefni af Alþjóðaári æskunnar, enda ekki til þess ætlast. Framkvæmdanefndinni er hins veg- ar kunnugt um mörg verkefni og hefur fylgst með framgangi þeirra og í sumum tilfella veitt þeim fjárhags- legan stuðning. Mun ég nefna nokkur dæmi um verkefni til að sýna fjöl- breytileika þeirra frekar en að þau séu á einhvern hátt betri en önnur sem ég nefni ekki. Þá kýs ég að skipta þeissari grein minni niður í þrjá hluta, starf Fram- kvæmdanefndarinnar, verkefni sem unnin hafa verið og hugleiðingu um æskulýðsmál í tenglsum við Æsku- lýðsárið. Hvað gerði Framkvæmdanefndin? Menntamálaráðuneytið skipaði 1983 sérstaka framkvæmdanefnd sem falið var að annast kynningu, undir- búning og framkvæmd ársins hér á landi. í þessari nefnd eiga sæti 20 aðilar sem á einn eða annan hátt tengjast æskulýðsstarfi og/eða hafa unnið við það. Nefndin hefur haldið marga fundi og reynt að sinna hlutverki sínu svo sem kostur hefur verið. Það er ljóst að árangur af svona ári fer að verulegu leyti eftir því hvernig til tekst með kynningu. Erlendis var byrjað að kynna Æskulýðsárið fyrir 2-3 árum og töldu margir að við værum með seinni skipunum í þeim efnum. Ég held að svo hafi ekki verið. Við íslendingar höfum þá sér- stöðu m.a. vegna fámennis að ekki þarf eins langan tíma til þess að vekja athygli á hlutunum og gerist hjá milljóna þjóðum. Alla vega er það víst að þeir sem á annað borð fylgjast með, vita að árið í ár er helgað æskunni og málstað hennar. Meðal þess sem gert var til kynn- ingar má nefna: Auglýsingabækling sem sendur var til æskulýðsfélaga og samtaka þeirra, skóla og til æskulýðs- nefnda sveitarfélaga. I honum var vakin athygli á árinu og kjörorðum þess sem eru þátttaka - þróun - friður jafnframt því sem hvatt var til þátt- töku. Auglýsingar á mjólkurum- búðum með hvatningarorðum í sam- ræmi við kjörorð ársins, útgáfa á veggspjöldum, límmiðum, barm- merkjum og fréttabréfi þar sem sagt var frá ýmsum verkefnum og öðru sem tengist árinu. Þá stóð nefndin fyrir opnum kynningar- og skemmti- fundi í upphafi ársins og seinna fundi með forsvarsmönnum í æskulýðs- starfi þar sem áætlanir voru gerðar og störf samrýmd. Að síðustu vil ég nefna að fjölmargir klúbbar, félög og stofnanir hafa fengið nefndarmenn á fundi til að fjalla um Æskulýðsárið. Þá finnst mér rétt að það komi fram að nefndin fékk til ráðstöfunar á þessu ári 750.000.00 kr. og hefur því fé verið að mestu úthlutað. Stærsti hluti þess hefur farið í útgáfu og kynningarstarf, en auk þess hefur nefndin styrkt einstaka verkefni þótt ekki hafi verið unnt að sinna nærri öllum þeim beiðnum sem borist hafa. Þá stendur nefndin fyrir gerð 30 mín. langrar kvikmyndar um íslenska æsku sem vonandi verður tilbúin fyrir árslok eða fljótlega upp úr þeim. Þótt fleira mætti nefna ætla ég ekki að gera það en vonast til að lesendur séu nokkru nær um hvað Fram- kvæmdanefndin hafði fyrir stafni. Hvaða verkefni? Eins og ég gat um áðan var leitað til þeirra aðila sem að æskulýðsmálum vinna til að starfa að Æskulýðsárinu. Sérstaklega var þar höfðað til æskulýðsfélaga, skóla og sveitarfé- laga, en þessir aðilar hafa með hönd- um nær allt æskulýðsstarf í landinu. Það verður að segjast eins og er að brugðist var vel við og það sem ekki var síður ánægjulegt er hvað ungling- arnir sjálfir voru virkir. Ég vil nefna nokkur dæmi um verkefni sem unnin hafa verið á árinu. Þau eru hvert með sínu sniði en hafa öll á sinn hátt vakið athygli á ungu fólki, hugmyndum þeirra og væntingum. Á vegum Æskulýðsráðs Reykja- víkur voru mörg verkefni í gangi, þ.á.m. Friðarvika sem unglingar í félagsmiðstöðvum borgarinnar stóðu að. Haldnir voru umræðufundir um frið og gerð veggspjöld. Síðan var farið með atriði milli félagsmiðstöðv- anna. Þá var í vor haldin í Laugardals- höll mjög fjölmenn hátíð grunnskóla- nema. Þar var kynnt fjölbreytilegt framboð á tómstundastarfi nemenda og alla hátíðina var fjölbreytt dagskrá á sviði sem nemendur skólanna fluttu. Fyrir tilstuðlan Fjórðungssam- KEFLAVÍK Auglýsing um tímabundna umferðartakmörkun í Keflavík Fró föstudeginum 6. desember 1985 til mdnudagsins 31. desember 1985, að bdöum dögum meötöldum, er vöruferming og afferming bönnuö á Hafnargötu á almennum afgreiöslutíma verslana. Á framangreindu tímabili veröa settar hömlur á umferö um Hafnargötu og nœrliggjandi götur ef þurfa þykir, svo sem tekinn upp einstefnuakstur eöa umferö ökutœkja bönnuö meö öll'u. Veröa þá settar upp merkingar er gefa slíkt til kynna. KEFLAVÍK, 1. DESEMBER 1985 LÖGREGLUSTJÖRINN í KEFLAVÍK 346 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.