Faxi - 01.12.1985, Síða 34
NÍELS
ÁRNI
LUND:
í tilefhi af
alþjóðar-
ári æskunnar
Þegar Faxi fór þess á leit við mig að
ég segði nokkuð frá því sem gerst
hefur á Ári æskunnar og hvaða árangri
það hefði skilað, fannst mér ekki
nama sjálfsagt að verða við því.
Þegar hinsvegar til kastanna kom
og ég settist við ritvélina til að setja
eitthvað á blað, áttaði ég mig á því að
það var nokkuð erfitt.
Staðreyndin er nefnilega sú að á
vegum ríkisins og þeirrar nefndar
sem skipuð var til að hafa umsjón
með Æskulýðsárinu, og ég var í
formennsku fyrir hefur ekki verið
gert nema brot af því starfi sem unnið
hefur verið um allt land í tilefni af
Alþjóðaári æskunnar, enda ekki til
þess ætlast.
Framkvæmdanefndinni er hins veg-
ar kunnugt um mörg verkefni og
hefur fylgst með framgangi þeirra og
í sumum tilfella veitt þeim fjárhags-
legan stuðning. Mun ég nefna nokkur
dæmi um verkefni til að sýna fjöl-
breytileika þeirra frekar en að þau
séu á einhvern hátt betri en önnur
sem ég nefni ekki.
Þá kýs ég að skipta þeissari grein
minni niður í þrjá hluta, starf Fram-
kvæmdanefndarinnar, verkefni sem
unnin hafa verið og hugleiðingu um
æskulýðsmál í tenglsum við Æsku-
lýðsárið.
Hvað gerði
Framkvæmdanefndin?
Menntamálaráðuneytið skipaði
1983 sérstaka framkvæmdanefnd sem
falið var að annast kynningu, undir-
búning og framkvæmd ársins hér á
landi.
í þessari nefnd eiga sæti 20 aðilar
sem á einn eða annan hátt tengjast
æskulýðsstarfi og/eða hafa unnið við
það. Nefndin hefur haldið marga
fundi og reynt að sinna hlutverki sínu
svo sem kostur hefur verið. Það er
ljóst að árangur af svona ári fer að
verulegu leyti eftir því hvernig til
tekst með kynningu. Erlendis var
byrjað að kynna Æskulýðsárið fyrir
2-3 árum og töldu margir að við
værum með seinni skipunum í þeim
efnum. Ég held að svo hafi ekki
verið. Við íslendingar höfum þá sér-
stöðu m.a. vegna fámennis að ekki
þarf eins langan tíma til þess að vekja
athygli á hlutunum og gerist hjá
milljóna þjóðum. Alla vega er það
víst að þeir sem á annað borð fylgjast
með, vita að árið í ár er helgað
æskunni og málstað hennar.
Meðal þess sem gert var til kynn-
ingar má nefna: Auglýsingabækling
sem sendur var til æskulýðsfélaga og
samtaka þeirra, skóla og til æskulýðs-
nefnda sveitarfélaga. I honum var
vakin athygli á árinu og kjörorðum
þess sem eru þátttaka - þróun - friður
jafnframt því sem hvatt var til þátt-
töku. Auglýsingar á mjólkurum-
búðum með hvatningarorðum í sam-
ræmi við kjörorð ársins, útgáfa á
veggspjöldum, límmiðum, barm-
merkjum og fréttabréfi þar sem sagt
var frá ýmsum verkefnum og öðru
sem tengist árinu. Þá stóð nefndin
fyrir opnum kynningar- og skemmti-
fundi í upphafi ársins og seinna fundi
með forsvarsmönnum í æskulýðs-
starfi þar sem áætlanir voru gerðar og
störf samrýmd. Að síðustu vil ég
nefna að fjölmargir klúbbar, félög og
stofnanir hafa fengið nefndarmenn á
fundi til að fjalla um Æskulýðsárið.
Þá finnst mér rétt að það komi fram
að nefndin fékk til ráðstöfunar á
þessu ári 750.000.00 kr. og hefur því
fé verið að mestu úthlutað.
Stærsti hluti þess hefur farið í
útgáfu og kynningarstarf, en auk þess
hefur nefndin styrkt einstaka verkefni
þótt ekki hafi verið unnt að sinna
nærri öllum þeim beiðnum sem borist
hafa.
Þá stendur nefndin fyrir gerð 30
mín. langrar kvikmyndar um íslenska
æsku sem vonandi verður tilbúin fyrir
árslok eða fljótlega upp úr þeim.
Þótt fleira mætti nefna ætla ég ekki
að gera það en vonast til að lesendur
séu nokkru nær um hvað Fram-
kvæmdanefndin hafði fyrir stafni.
Hvaða verkefni?
Eins og ég gat um áðan var leitað
til þeirra aðila sem að æskulýðsmálum
vinna til að starfa að Æskulýðsárinu.
Sérstaklega var þar höfðað til
æskulýðsfélaga, skóla og sveitarfé-
laga, en þessir aðilar hafa með hönd-
um nær allt æskulýðsstarf í landinu.
Það verður að segjast eins og er að
brugðist var vel við og það sem ekki
var síður ánægjulegt er hvað ungling-
arnir sjálfir voru virkir.
Ég vil nefna nokkur dæmi um
verkefni sem unnin hafa verið á
árinu. Þau eru hvert með sínu sniði
en hafa öll á sinn hátt vakið athygli á
ungu fólki, hugmyndum þeirra og
væntingum.
Á vegum Æskulýðsráðs Reykja-
víkur voru mörg verkefni í gangi,
þ.á.m. Friðarvika sem unglingar í
félagsmiðstöðvum borgarinnar stóðu
að. Haldnir voru umræðufundir um
frið og gerð veggspjöld. Síðan var
farið með atriði milli félagsmiðstöðv-
anna. Þá var í vor haldin í Laugardals-
höll mjög fjölmenn hátíð grunnskóla-
nema. Þar var kynnt fjölbreytilegt
framboð á tómstundastarfi nemenda
og alla hátíðina var fjölbreytt dagskrá
á sviði sem nemendur skólanna fluttu.
Fyrir tilstuðlan Fjórðungssam-
KEFLAVÍK
Auglýsing um tímabundna
umferðartakmörkun í Keflavík
Fró föstudeginum 6. desember 1985 til mdnudagsins 31.
desember 1985, að bdöum dögum meötöldum, er
vöruferming og afferming bönnuö á Hafnargötu á
almennum afgreiöslutíma verslana.
Á framangreindu tímabili veröa settar hömlur á umferö um
Hafnargötu og nœrliggjandi götur ef þurfa þykir, svo sem
tekinn upp einstefnuakstur eöa umferö ökutœkja bönnuö
meö öll'u. Veröa þá settar upp merkingar er gefa slíkt til
kynna.
KEFLAVÍK, 1. DESEMBER 1985
LÖGREGLUSTJÖRINN í KEFLAVÍK
346 FAXI