Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.1985, Qupperneq 35

Faxi - 01.12.1985, Qupperneq 35
bands Norðlendinga var í sumar hald- ið mjög fjölmenn íþrótta og leikjahá- tíð á Sauðárkróki. Þangað komu unglingar frá öllum sveitarfélögum á Norðurlandi og kepptu í hefðbundn- um íþróttagrein'jm og ýmsum leikj- um. Þá var nú í nóvember haldin á Akureyri ráðstefna sem sótt var af nemendum framhaldsskóla á Norðurlandi. Á ráðstefnunni voru samþykktar ályktanir um sam- göngumál, menntamál, húsnæðismál og atvinnumál og sendar til Fjórð- ungssambandsins. Á Selfossi héldu unglingarnir bæjarstjórnarfund og einnig var þar starfrækt útvarpsstöð sem þeir sáu um. Útvarpað var efni fyrir unglinga, fjallað um málefni byggðalagsins. Á Akranesi völdu unglingarnir sér að berjast gegn fíkniefnum og svo var um fleiri, t.d. J.C. hreyfinguna sem vann ötullega að því verkefni á árinu. Skátar voru með mörg verkefni í gangi m.a. Reykjavíkurmót barn- anna sem var vellukkuð hátíð. Ungmennafélag íslands kaus að vinna að gróðursetningu trjáa. Plant- að var á þeirra vegum 26000 trjáplönt- um um allt land, eða sem svaraði einni plöntu á hvern félagsmann. Nemendaleikhúsið hefur frá því í sumar farið um landið og flutt rokk- söngleikinn „Ekkó eða Guðirnir ungu“. Mikil aðsókn hefur verið að sýningunum, enda verkið skemmti- legt fyrir alla aldurshópa, þó sérstak- lega ungt fólk. Æskulýðsráð ríkisins mun á þessu ári gefa út handbók fyrir unglinga. I henni er tekið á helstu málum sem ungt fólk hefur áhuga á með framtíð sína í huga og er bókin hugsuð sem handbók þeirra á ferð um þjóðfélag nútímans. Dagblöðin og landsmálablöðin hafa öll fjallað um Æskulýðsárið og ríkisfjölmiðlarnir sjónvarp og útvarp hafa gert því góð skil í umræðu og fréttaþáttum og einstökum dagskrár- liðum, m.a. var útvarpið með sér- staka tónlistardagskrá sem helguð var Evrópsku tónlistarári og Ári æsk- unnar. Þau verkefni sem ég hef nefnt hér að framan eru ekki nema lítið brot af þeim fjölda verkefna sem unnin voru á árinu og enn er verið að minnast ársins í verkefnum s.s. eins og með sölu „Hvfta pennans“ þar sem æskan þakkaði öldruðum. Þessum verkefnum hefur fylgt gíf- urleg vinna unglinganna sjálfra. Að sjálfsögðu hafa þeir í flestum tilfellum notið leiðsagnar hinna eldri en þau hafa haft frumkvæðið, og annast skipulagningu og framkvæmdina. Eitt af kjörorðum Æskulýðsársins er þátttaka. Ég fullyrði að undir því kjörorði hefur verið unnið af íslenskri æsku á árinu. Hvað svo að árinu loknu? Ekki er undarlegt þótt við spyrjum hvort Æskulýðsárið hafi skilað ein- hverjum árangri? Hver er reynslan af öðrum slíkum árum Sameinuðu þjóðanna s.s. ári aldraðra, ári barnsins, ári fatlaðra? Mín sannfæring er sú að þessi ár hafi öll, hvert á sinn máta verið til góða fyrir þá sem hlut áttu að máli. Þeirra málefni fengu þá mikla um- fjöllun og voru í sviðsljósinu. Svo var með æskuna á þessu ári. Að sjálf- sögðu fyrnist yfir ár æskunnar og senn kemur næsta ár sem helgað er friði og það þarf sína athygli. Ég hef oft verið spurður um það á þessu ári hvort ungt fólk, eða æskan sé eitthvað sér fyrirbrigði, hvort þeir séu ekki eins og annað fólk. Vissulega eru þeir venjulegt fólk en auðvitað hafa þeir líka sína sérstöðu. Þeir eru á tímamótum barns og fullorðinna. Það er stundum tekið mark á þeim og stundum ekki. Ungt fólk hefur ákveðn- ar skoðanir á hlutunum og þær falla ekki alltaf saman við álit hinna eldri. Sjálfsagt er að taka tillit til skoðana þeirra og hugmynda því þeirra bíður að taka við þjóðfélaginu. íslensk æska er vel í stakk búin til að mæta framtíðinni, og hennar hlut- skipti er mun betra en annarra ung- menna í heiminum. Hún er ekki kúguð og hana skortir ekki mat. Hún er ekki kölluð frá námi, félögum og fjölskyldu á vígvöll til að berjast við jafnaldra. Nei, íslensk æska er svo lánsöm að búa við frið, hún hefur tækifæri til menntunar og hennar bíður atvinna á meðan æska nágrannaþjóða ráfar um án þess að finna nokkra þörf fyrir sig eða tilgang með lífinu. Sú hætta sem íslenskri æsku stend- ur mest ógn af eru eiturlyfin, í hvaða mynd sem þau birtast. Neysla þeirra verður sífellt algengari jafnt hjá ungu fólki sem fullorðnum. Ofneysla þeirra er því miður staðreynd hjá allt of stórum hópi. Gegn þeim vágesti er þörf á þjóðarátaki. íslensk æska er vissulega einn mesti auður okkar lands. Hjá henni liggja vonir okkar um fegurra mannlíf og betra þjóðfélag. Okkur sem eldri erum ber að standa vörð um hana og aðstoða eftir mætti. Ég hef verið svo lánsamur að vinna með ungu fólki í langan tíma. Sá tími hefur verið mér dýrmætur og fært mér reynslu. Fyrir hann er ég þakklát- ur. Ég óska íslenskri æsku alls velfarn- aðar og verndar Guðs urn alla framtíð. Reykjavík 21.11 1985 Níels Árni Lund, formaður Framkvæmdanefndar Alþjóðaárs æskunnar. Óskum nemendum okkar og foreldrum þeirra gíeíntegra jóía m og farsældar á komandi ári. Þökkum ánœgjulegt samstarf. KENNARAR OG STARFSLIÐ M YLLU BAK K ASKÓLA En það var meira um að vera hjá 10-11 ára börnum í Keflavík um þetta leyti því hin árlega hlutavelta þeirra í Myllubakkaskóla var laugardaginn 16. nóvember og varð ágóðinn um 51 þúsund krónur, sem börnin hafa afhent Styrktarfélagi aldraðra á Suðumesjum. - Ljósm. Steinar J. Æskan þakkar öldruðum Þessi glæsilegi bamahópur er hluti þeirra 4. og 5.-bekkinga Myllubakkaskóla sem um helgina 8.—10. nóvember seldi 1300 „hvíta penna“ í Keflavík. Þessi pennasala fór fram um land allt. Var hún landsátak á ári æskunnar og skipulögð af Hjálparstofnun kirkjunnar og rennur ágóði til málefna aldraðra á viðkomandi stað. — Ljósm. Axel S. FAXI 347
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.