Faxi - 01.12.1985, Qupperneq 41
hún aðeins hefði þorað að yfirgefa
mig.
Frú Marta segir að þessi draum-
ur sé kærasti fyrirburðurinn sinn,
því hún haíi aldrei lifað eins sæla
og fagra stund á ævi sinni, eins og
á meðan hana var að dreyma
þennan draum, en býst jafnframt
við að hann muni ekki hafa mikið
gildi fyrir aðra.
Draumamir um gömlu
húsin
Hér í Keflavík eru gömul versl-
unarhús ásamt íbúðarhúsi,' sem
er um 200 ára gamalt. Þetta hús
hefur lengi staðið autt, en er samt
vel við haldið og ljómandi
skemmtilegt, stofur í því götu
megin. (Hús þetta var rifið um
1960. Ath.s. Faxa).
Sumarið 1915 gekk ég oft fram
hjá þessu húsi (það er dálítið af-
skekkt) og datt þá oft í hug að
gaman væri að búa í því. Einn dag
vek ég svo máls á því við Björn,
manninn minn, í fullri alvöru,
hvort ekki muni vera hægt að fá
húsið leigt.
Næstu nótt dreymdi mig að ég
þykist stödd í húsinu og hjá mér
stúlka hvítklædd. Ég þykist segja
henni að hérna ætli ég að fá að búa
því hér sé svo indælt. Hún segir að
það geti ég ekki fengið því hér sé
alskipað, hér búi öll fjölskyldan,
sem átt hali húsin. Ég segi við
hana, að slíkt hljóti að vera vit-
leysa, því ég hafi aldrei heyrt að
þar væri reymt, og ég hafði þá
þekkt fólk, sem hafi búið í hús-
inu. Stúlkan svarar að það (fólkið)
hafi nú ekki verið að bera það út,
þótt það hafi eitthvað heyrt eða
séð, og til merkis um að hún segi
satt átti hún að segja mér til
dæmis, að aldrei hafi konan sem
síðast bjó þar þurft að vökva
blómin sín, því það hafi hún alltaf
passað að gjöra. Að síðustu sagði
hún mér, að ég mætti alls ekki
hugsa til að búa þar, því það væri
ekki leyft. Ég lagði samt lítinn
trúnað á drauminn og hafði þessa
ætlun bak við eyrað. Svo líður
tíminn þar til í fyrra vetur, að
okkur er sagt upp húsnæði því er
við höfðum. Þá fór ég fyrir alvöru
að hugsa um gamla húsið og kveld
eitt er svo langt á veg komið, að
við hjónin erum staðráðin í því að
biðja um húsið og skrifa strax
næsta morgun til manns þess sem
umráð hafði með húsinu. Þessa
nótt dreymir mig að ég er enn
komin að húsinu og þykist ég
ganga inn og hitti í eldhúsinu
sömu stúlkuna og áður. Ég heilsa
og segist vera komin til að sjá stof-
urnar því nú ætli ég að búa hér.
Stúlkan varð fremur fá við og
sagði. , ,Ég hefi sagt þér það áður,
að það er ómögulegt". „Hvaðavit-
leysa er nú þetta segi ég“ og held
áfram gegnum eldhúsið og inn í
næstu stofu. Þar verður ekkert
merkilegt fyrir mér og held ég því
áfram inn í næstu stofu. Þar sé ég
rúm í einu horninu og í því liggur
maður sem ég þykist vita að vera
muni sonur gömlu hjónanna. Mér
varð ekkert bilt við þetta og hélt
því enn áfram. Þegar ég lýk svo
upp næstu stofu sé ég fyrst ekkert
fyrir móðu en allt í einu koma
fram úr móðunni tvær hendur
réttar í áttina til mín. Þá greip mig
ótrúleg hræðsla. Ég skellti aftur
hurðinni, hljóp í gegnum allar
stofurnar og fram í eldhúsið.
Stúlkan var þar ennþá og nú segir
hún: „Þetta var þér að kenna ég
var búin að vara þig við þessu.“
Draumurinn var svo ekki lengri,
FRAMHALD Á BLS. 394
Hjónin Marta
Valgerdur Jóns-
dóttir og Björn
Þorgrímsson.
Jólatilboð
Yfir 20% afsláttur af
viðarþiljum fram til áramóta.
Stærðir: Tegund: pr. m2
33x253 Ljós eik ..................... 600
33x253 Bæsuö eik..................... 638
28x253 Beyki ........................ 528
28x253 Fura ......................... 465
28x253 Maghony ...................... 465
Opnunartími sem hér segir:
Mánud.-föstud. kl. 8-12 og 13-18.
Laugardaga kl. 10-14. - Opið í hádeginu.
Byggmgaval
FAXI 353