Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1985, Síða 41

Faxi - 01.12.1985, Síða 41
hún aðeins hefði þorað að yfirgefa mig. Frú Marta segir að þessi draum- ur sé kærasti fyrirburðurinn sinn, því hún haíi aldrei lifað eins sæla og fagra stund á ævi sinni, eins og á meðan hana var að dreyma þennan draum, en býst jafnframt við að hann muni ekki hafa mikið gildi fyrir aðra. Draumamir um gömlu húsin Hér í Keflavík eru gömul versl- unarhús ásamt íbúðarhúsi,' sem er um 200 ára gamalt. Þetta hús hefur lengi staðið autt, en er samt vel við haldið og ljómandi skemmtilegt, stofur í því götu megin. (Hús þetta var rifið um 1960. Ath.s. Faxa). Sumarið 1915 gekk ég oft fram hjá þessu húsi (það er dálítið af- skekkt) og datt þá oft í hug að gaman væri að búa í því. Einn dag vek ég svo máls á því við Björn, manninn minn, í fullri alvöru, hvort ekki muni vera hægt að fá húsið leigt. Næstu nótt dreymdi mig að ég þykist stödd í húsinu og hjá mér stúlka hvítklædd. Ég þykist segja henni að hérna ætli ég að fá að búa því hér sé svo indælt. Hún segir að það geti ég ekki fengið því hér sé alskipað, hér búi öll fjölskyldan, sem átt hali húsin. Ég segi við hana, að slíkt hljóti að vera vit- leysa, því ég hafi aldrei heyrt að þar væri reymt, og ég hafði þá þekkt fólk, sem hafi búið í hús- inu. Stúlkan svarar að það (fólkið) hafi nú ekki verið að bera það út, þótt það hafi eitthvað heyrt eða séð, og til merkis um að hún segi satt átti hún að segja mér til dæmis, að aldrei hafi konan sem síðast bjó þar þurft að vökva blómin sín, því það hafi hún alltaf passað að gjöra. Að síðustu sagði hún mér, að ég mætti alls ekki hugsa til að búa þar, því það væri ekki leyft. Ég lagði samt lítinn trúnað á drauminn og hafði þessa ætlun bak við eyrað. Svo líður tíminn þar til í fyrra vetur, að okkur er sagt upp húsnæði því er við höfðum. Þá fór ég fyrir alvöru að hugsa um gamla húsið og kveld eitt er svo langt á veg komið, að við hjónin erum staðráðin í því að biðja um húsið og skrifa strax næsta morgun til manns þess sem umráð hafði með húsinu. Þessa nótt dreymir mig að ég er enn komin að húsinu og þykist ég ganga inn og hitti í eldhúsinu sömu stúlkuna og áður. Ég heilsa og segist vera komin til að sjá stof- urnar því nú ætli ég að búa hér. Stúlkan varð fremur fá við og sagði. , ,Ég hefi sagt þér það áður, að það er ómögulegt". „Hvaðavit- leysa er nú þetta segi ég“ og held áfram gegnum eldhúsið og inn í næstu stofu. Þar verður ekkert merkilegt fyrir mér og held ég því áfram inn í næstu stofu. Þar sé ég rúm í einu horninu og í því liggur maður sem ég þykist vita að vera muni sonur gömlu hjónanna. Mér varð ekkert bilt við þetta og hélt því enn áfram. Þegar ég lýk svo upp næstu stofu sé ég fyrst ekkert fyrir móðu en allt í einu koma fram úr móðunni tvær hendur réttar í áttina til mín. Þá greip mig ótrúleg hræðsla. Ég skellti aftur hurðinni, hljóp í gegnum allar stofurnar og fram í eldhúsið. Stúlkan var þar ennþá og nú segir hún: „Þetta var þér að kenna ég var búin að vara þig við þessu.“ Draumurinn var svo ekki lengri, FRAMHALD Á BLS. 394 Hjónin Marta Valgerdur Jóns- dóttir og Björn Þorgrímsson. Jólatilboð Yfir 20% afsláttur af viðarþiljum fram til áramóta. Stærðir: Tegund: pr. m2 33x253 Ljós eik ..................... 600 33x253 Bæsuö eik..................... 638 28x253 Beyki ........................ 528 28x253 Fura ......................... 465 28x253 Maghony ...................... 465 Opnunartími sem hér segir: Mánud.-föstud. kl. 8-12 og 13-18. Laugardaga kl. 10-14. - Opið í hádeginu. Byggmgaval FAXI 353
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.