Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1985, Page 44

Faxi - 01.12.1985, Page 44
Niðjamót Húsatóftaættar í Festi í Grindavík Niðjamót Húsatóftaættar var haldið í Festi í Grindavík 7. sept- ember sl. Húsatóftaætt er talin frá Jóni Sæmundssyni og konum hans, Margréti Þorláksdóttur og Valgerði Guðmundsdóttur, sem bjuggu á Húsatóftum - Grindavík á fyrri helmingi 19. aldar. Um átta hundruð manns mættu á niðjamótinu og þótti það tak- ast í alla staði mjög vel. Tilefni niðjamótsins var útgáfa niðjatals Húsatóftaættar, sem Þorsteinn Jónsson tók saman. Niðjatalið er fyrsta bindið í ritröð Sögusteins — bókaforlags, Islenskt ætt- fræðisafn — niðjatöl. Niðjamótið hófst með ávarpi Tómasar Þor- valdssonar. Dagbjartur Einarsson kynnti útgáfu niðjatalsins fyrir hönd útgáfunefndar og Þorsteinn Jónsson flutti lit- skyggnuþátt um sögu ættarinnar. Kynnir var Ólafur Gaukur Þórhallsson. I tilefni niðjamótsins var opnuð sýning á áður óbirtum ljósmyndum Einars Einarssonar í Krosshúsum í Grindavík. Meginþungann að undirbúningi niðjamótsins bar Kristín Jónsdóttir. Hér birtist ávarp Tómasar Þorvaldssonar ásamt nokkrum ljós- myndum, sem teknar voru á hinu vel heppnaða niðjamóti Húsa- tóftaættar í Festi í Grindavík. Mikið ffölmenni vina og vandamanna var samankomið í Festi þar sem œtlarmötið fór fram. Ágætu frændur og venslafólk. Fyrir hönd þeirra er önnuðust út- gáfu Húsatóftaættar og undirbún- ing þessa ættarmóts, býð ég ykk- ur öll hjartanlega velkomin. Það er ósk mín að við eignumst góðar minningar um þennan dag. Eg mun ekki fjalla um ættarbókina, það gera aðrir. Öll eigum við það sameiginlegt að vera afkomendur Jóns Sæ- mundssonar og eiginkvenna hans, Margrétar Þorláksdóttur og Valgerðar Guðmundsdóttur, eða tengdafólk. Það má segja að flestum sé í blóð borið hér á landi að vilja vita nokkuð um ættir sínar. Sér í lagi er komið er yfir miðjan aldur. Það er ef til vill vegna þess að við stöndum hér í dag. Fyrir um 4 árum höfðum við Jón Tómasson og fleiri undirbúið ættarmót og ættartölugerð afkom- enda Sæmundar Jónssonar og Sigríðar Bjarnadóttur er bjuggu á Járngerðarstöðum en hann var sonur Jóns og Margrétar á Húsa- tóftum og hafði verið stefnt að ætt- armóti fyrir tveimur árum en það snerist upp í að fara einum ætt- legg lengra aftur eftir að Dagbjart- ur Einarsson og Eiríkur Ketilsson höfðu samband við okkur. Sem sagt frá Jóni, Margréti og Valgerði er bjuggu á Húsatóftum á 19. öld. Það er næstum víst að landslag og sjávarsíða hafa ekki mikið breyst á þeim 1100 árum sem talið er að byggð hafi staðið í Grinda- vík. Að undanteknu því, að hraun hefur runnið á gróið land. Sjórinn sorflð ströndina og eins hefur hugur með hönd mannsins breytt nokkru og ílestu til batnaðar, nefna má hafnargerð, varanleg og góð hús, götur lagðar og annað er fylgir nútíma samfélagi. Vafalaust hefur sjór verið stundaður og 356 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.