Faxi - 01.12.1985, Síða 44
Niðjamót Húsatóftaættar
í Festi í Grindavík
Niðjamót Húsatóftaættar var haldið í Festi í Grindavík 7. sept-
ember sl. Húsatóftaætt er talin frá Jóni Sæmundssyni og konum
hans, Margréti Þorláksdóttur og Valgerði Guðmundsdóttur,
sem bjuggu á Húsatóftum - Grindavík á fyrri helmingi 19. aldar.
Um átta hundruð manns mættu á niðjamótinu og þótti það tak-
ast í alla staði mjög vel. Tilefni niðjamótsins var útgáfa niðjatals
Húsatóftaættar, sem Þorsteinn Jónsson tók saman. Niðjatalið er
fyrsta bindið í ritröð Sögusteins — bókaforlags, Islenskt ætt-
fræðisafn — niðjatöl. Niðjamótið hófst með ávarpi Tómasar Þor-
valdssonar. Dagbjartur Einarsson kynnti útgáfu niðjatalsins
fyrir hönd útgáfunefndar og Þorsteinn Jónsson flutti lit-
skyggnuþátt um sögu ættarinnar. Kynnir var Ólafur Gaukur
Þórhallsson. I tilefni niðjamótsins var opnuð sýning á áður
óbirtum ljósmyndum Einars Einarssonar í Krosshúsum í
Grindavík. Meginþungann að undirbúningi niðjamótsins bar
Kristín Jónsdóttir.
Hér birtist ávarp Tómasar Þorvaldssonar ásamt nokkrum ljós-
myndum, sem teknar voru á hinu vel heppnaða niðjamóti Húsa-
tóftaættar í Festi í Grindavík.
Mikið ffölmenni vina og vandamanna var samankomið í Festi þar sem œtlarmötið fór fram.
Ágætu frændur og venslafólk.
Fyrir hönd þeirra er önnuðust út-
gáfu Húsatóftaættar og undirbún-
ing þessa ættarmóts, býð ég ykk-
ur öll hjartanlega velkomin. Það
er ósk mín að við eignumst góðar
minningar um þennan dag. Eg
mun ekki fjalla um ættarbókina,
það gera aðrir.
Öll eigum við það sameiginlegt
að vera afkomendur Jóns Sæ-
mundssonar og eiginkvenna
hans, Margrétar Þorláksdóttur og
Valgerðar Guðmundsdóttur, eða
tengdafólk.
Það má segja að flestum sé í blóð
borið hér á landi að vilja vita
nokkuð um ættir sínar. Sér í lagi
er komið er yfir miðjan aldur. Það
er ef til vill vegna þess að við
stöndum hér í dag.
Fyrir um 4 árum höfðum við
Jón Tómasson og fleiri undirbúið
ættarmót og ættartölugerð afkom-
enda Sæmundar Jónssonar og
Sigríðar Bjarnadóttur er bjuggu á
Járngerðarstöðum en hann var
sonur Jóns og Margrétar á Húsa-
tóftum og hafði verið stefnt að ætt-
armóti fyrir tveimur árum en það
snerist upp í að fara einum ætt-
legg lengra aftur eftir að Dagbjart-
ur Einarsson og Eiríkur Ketilsson
höfðu samband við okkur. Sem
sagt frá Jóni, Margréti og Valgerði
er bjuggu á Húsatóftum á 19. öld.
Það er næstum víst að landslag
og sjávarsíða hafa ekki mikið
breyst á þeim 1100 árum sem talið
er að byggð hafi staðið í Grinda-
vík. Að undanteknu því, að hraun
hefur runnið á gróið land. Sjórinn
sorflð ströndina og eins hefur
hugur með hönd mannsins breytt
nokkru og ílestu til batnaðar,
nefna má hafnargerð, varanleg og
góð hús, götur lagðar og annað er
fylgir nútíma samfélagi. Vafalaust
hefur sjór verið stundaður og
356 FAXI