Faxi - 01.12.1985, Blaðsíða 52
NÝÚTKOMNAR B/EKUR ÞRIGGJA NJARÐVÍKINGA
Sjómannsœvi
l’riðja og síðasta bindi endurminn-
inga Karvels Ogmundssonar er komið
út.
Frásögn hans hefst við altarisgöngu
í Ingjaldshólskirkju og er beint fram-
hald frá 2. bindi. Vél er komin í ver-
tíðarskipið, en nýr taktur í hreyfing-
um vélknúins báts er ekki eins töfr-
andi eins og svif undir þöndum segl-
um.
I-'ljótur er Karvel að aðlagast breytt-
um aðstæðum og véltæknin er stór-
kostlegt afl til nýrra átaka sem gaman
er að taka þátt í. I-'ormennska og skip-
stjóm var honum í blóð borin og
þroskaðist óðfiuga. Athafnamaðurinn
er aö brjóta sér leið — fyrst á heima-
slóð, síðar á Isafirði, við Húnafióa og
loks er hann búinn að finna Gósen-
landið — Njarðvík. Hann hefur lent í
ótrúlegustu ævintýmm á sjónum og
margt fjarska spennandi komið fyrir
hann í landi, en í Njarðvík eiga fjöl-
þættir hæfileikar hans eftir að
blómstra. Hann hefur ekki lengur
tíma til að snúa fleyi sínu til fiskjar,
hann sendir aðra með það. Hann verð-
ur stór atvinnurekandi og stjómmála-
maður. En hann er líka mikill hug-
sjónamaður og vill stuðla að bættum
hag samborgaranna og þeirra er
standa með honum í slagnum. Hann
stendur því að stofnun hagsmunafé-
laga. Félagsmál og stórathafnir kalla á
langan vinnudag. Það er því athyglis-
vert að hann gefur sér tíma til að ger-
ast gæslumaður bamastúku í Njarð-
vík, en það var hann í 15 ár.
Hann segir: „Það er dásamlegt að
eiga þess kost að reyna að sá hinu
góða sæði í barnssálir, sjá hinn brenn-
andi áhuga uppvaxandi æsku og vera
þátttakandi í áhugamálum þeirra."
Þessi tilvitnun staðfestir þá mann-
gæsku er allar frásagnir Karvels
spegla. Frásagnargleðin er mikil og
lipur það verður bjart yfir allri frásögn
því að hann snýr erfiðleikunum að
sól, þar sem þeir vermast og vekja far-
sæld.
í bak og fyrir
Guðmundur A. Finnbogason,
fræöimaöur, frá Hvoli í Innri-Njarðvík
hefur nú gefið út 3. bók sína. Þar er
margt forvitnilegt að finna.
Tilkynning um
ÁRAMÓTABRENNUR
Þeim sem hafa œtlaö sér aö hafa
áramótabrennu, á svœöi Brunavarna
Suöurnesja, ber aö sœkja um leyfi til
Slökkviliös B.S. í Keflavík.
Skilyröi fyrir leyfisveitingar er, aö
ábyrgöarmaöur sé fyrir brennunni.
Brennur sem veröa hlaönar upp og
ekki hefur veriö veitf leyfi fyrir, veröa
fjarlœgöar.
Umsóknir berist fyrir 20. desember
1985.
LÖGREGLAN í KEFLAVÍK,
NJARÐVÍK OG
GULLBRINGUSÝSLU
BRUNAVARNIR SUDURNESJA
Guömundur A. Finnbogason
IBAK
FYRIR
FRÁSAGNIR
AF SUÐURNESJUM
Guðmundur hefur grafið upp mikið
ljóðasafn Eyjólfs Þorgeirssonar í
Króki í Garði. Það var vitað að Eyjólf-
ur var vel hagyrtur og nokkrar vísur
eftir hann em enn á vöram ljóðelskra
manna, en Guðmundur vissi betur og
fiytur okkur lausavísur og kvæða-
bálka (íréttabréí), nær 200 vísur eftir
Eyjólf. Eyjólfur í Króki og kona hans
Guðný Jóhannsdóttir eiga sæg af-
komenda á Suöurnesjum og víðar —
og gerir Guðmundur ættinni góð skil.
Annars era allar byggðir skagans
sögusvið Guðmundar og víðar komið
við er atburðir og ættir era raktar.
Þá hefur Guðmundur skráð fjölda
margvíslegra sagna eftir fólki sem var
í blóma lífs fyrir og um síðustu alda-
mót. í rökkri síðustu aldar var ljósfæl-
ið huldufólk oft á vegi mennskra
manna. Jafnan var um vinsamleg
samskipti að ræða, nema ef álaga-
blettir urðu fyrir hnjaski. Einnig
bregður fyrir dulsýnum og sagt er frá
dulheyrn Klemenzar Þórðarsonar í
sambandi við skiptap. Að sjálfsögðu
eru foreldrar Guðmundar og nánasta
ættfólk oft sögufólk hans en hann leit-
ar víða til fróðra manna og kirkjubæk-
ur era honum mikil fróðleiks upp-
spretta.
Guömundur segir með hlýleik frá
Rósu Jónsdóttur, síðasta niðursetn-
ingi í Njarðvík.
Margar skemmtilegar frásagnir eru í
bók Guðmundar.
Kápa bókarinnar er snilldarvel gerð
af Aka Gránz, myndlistarmanni í
Njarðvík.
•
Ljóstu r
Út er komin hjá FORLAGINU ljóða-
bókin Ljóstur eftir Atla lngólfsson.
Atli er ungur tónlistarmaður, ættaður
úr Narðvíkunum. Hann hefur stund-
að tónlistarnám jafnfamt háskólanámi
hér heima en dvelur nú við nám í tón-
smíðum á Ítalíu. Fyrir skömmu hlaut
hann tónlistarverðlaun Ríkisútvarps-
ins til ungra tónlistarmanna. — Ljóst-
ur er fyrsta ljóðabók Atla en áður hafa
birst eftir hann ljóð í blöðum og tíma-
ritum. í bókinni era 30 ljóð og hafa
fæst þeirra birst áður.
I fréttatilkynningu Forlagsins segir
m.a.: „Skáldskapur Atla er lágvær og
íhugull, fullur næmleika og þekking-
ar á list ljóðsins. Myndvísi hans er
öguð og sjóngáfan skörp, hvort heldur
hann yrkir um nálægðina eða ein-
semdina, efann, óttann eða annað það
sem lýstur hinar innri sjónir. Hér yrk-
ir þroskað skáld sem tekið verður eft-
ir.“
Ljóstur er prentuð hjá Fjölritun sf.
Birgir Ingólfsson hannaði kápu.
Hér á eftir birtum við ljóðið Aðventa
eftir hinn unga höfund, úr hinni nýút-
komnu bók.
Aðventa
Við strœti þessarar borgar standa þúsund
stjaksett tungl.
Nóttin pírir auga sitt yjir ógöngum
girndanna: Við höjum týnt eðalsteini
kyrrar löngunar. Enn rökkvar.
í gluggum verslana standa uppi lík
búin fegursta skarti.
364 FAXI