Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1985, Page 52

Faxi - 01.12.1985, Page 52
NÝÚTKOMNAR B/EKUR ÞRIGGJA NJARÐVÍKINGA Sjómannsœvi l’riðja og síðasta bindi endurminn- inga Karvels Ogmundssonar er komið út. Frásögn hans hefst við altarisgöngu í Ingjaldshólskirkju og er beint fram- hald frá 2. bindi. Vél er komin í ver- tíðarskipið, en nýr taktur í hreyfing- um vélknúins báts er ekki eins töfr- andi eins og svif undir þöndum segl- um. I-'ljótur er Karvel að aðlagast breytt- um aðstæðum og véltæknin er stór- kostlegt afl til nýrra átaka sem gaman er að taka þátt í. I-'ormennska og skip- stjóm var honum í blóð borin og þroskaðist óðfiuga. Athafnamaðurinn er aö brjóta sér leið — fyrst á heima- slóð, síðar á Isafirði, við Húnafióa og loks er hann búinn að finna Gósen- landið — Njarðvík. Hann hefur lent í ótrúlegustu ævintýmm á sjónum og margt fjarska spennandi komið fyrir hann í landi, en í Njarðvík eiga fjöl- þættir hæfileikar hans eftir að blómstra. Hann hefur ekki lengur tíma til að snúa fleyi sínu til fiskjar, hann sendir aðra með það. Hann verð- ur stór atvinnurekandi og stjómmála- maður. En hann er líka mikill hug- sjónamaður og vill stuðla að bættum hag samborgaranna og þeirra er standa með honum í slagnum. Hann stendur því að stofnun hagsmunafé- laga. Félagsmál og stórathafnir kalla á langan vinnudag. Það er því athyglis- vert að hann gefur sér tíma til að ger- ast gæslumaður bamastúku í Njarð- vík, en það var hann í 15 ár. Hann segir: „Það er dásamlegt að eiga þess kost að reyna að sá hinu góða sæði í barnssálir, sjá hinn brenn- andi áhuga uppvaxandi æsku og vera þátttakandi í áhugamálum þeirra." Þessi tilvitnun staðfestir þá mann- gæsku er allar frásagnir Karvels spegla. Frásagnargleðin er mikil og lipur það verður bjart yfir allri frásögn því að hann snýr erfiðleikunum að sól, þar sem þeir vermast og vekja far- sæld. í bak og fyrir Guðmundur A. Finnbogason, fræöimaöur, frá Hvoli í Innri-Njarðvík hefur nú gefið út 3. bók sína. Þar er margt forvitnilegt að finna. Tilkynning um ÁRAMÓTABRENNUR Þeim sem hafa œtlaö sér aö hafa áramótabrennu, á svœöi Brunavarna Suöurnesja, ber aö sœkja um leyfi til Slökkviliös B.S. í Keflavík. Skilyröi fyrir leyfisveitingar er, aö ábyrgöarmaöur sé fyrir brennunni. Brennur sem veröa hlaönar upp og ekki hefur veriö veitf leyfi fyrir, veröa fjarlœgöar. Umsóknir berist fyrir 20. desember 1985. LÖGREGLAN í KEFLAVÍK, NJARÐVÍK OG GULLBRINGUSÝSLU BRUNAVARNIR SUDURNESJA Guömundur A. Finnbogason IBAK FYRIR FRÁSAGNIR AF SUÐURNESJUM Guðmundur hefur grafið upp mikið ljóðasafn Eyjólfs Þorgeirssonar í Króki í Garði. Það var vitað að Eyjólf- ur var vel hagyrtur og nokkrar vísur eftir hann em enn á vöram ljóðelskra manna, en Guðmundur vissi betur og fiytur okkur lausavísur og kvæða- bálka (íréttabréí), nær 200 vísur eftir Eyjólf. Eyjólfur í Króki og kona hans Guðný Jóhannsdóttir eiga sæg af- komenda á Suöurnesjum og víðar — og gerir Guðmundur ættinni góð skil. Annars era allar byggðir skagans sögusvið Guðmundar og víðar komið við er atburðir og ættir era raktar. Þá hefur Guðmundur skráð fjölda margvíslegra sagna eftir fólki sem var í blóma lífs fyrir og um síðustu alda- mót. í rökkri síðustu aldar var ljósfæl- ið huldufólk oft á vegi mennskra manna. Jafnan var um vinsamleg samskipti að ræða, nema ef álaga- blettir urðu fyrir hnjaski. Einnig bregður fyrir dulsýnum og sagt er frá dulheyrn Klemenzar Þórðarsonar í sambandi við skiptap. Að sjálfsögðu eru foreldrar Guðmundar og nánasta ættfólk oft sögufólk hans en hann leit- ar víða til fróðra manna og kirkjubæk- ur era honum mikil fróðleiks upp- spretta. Guömundur segir með hlýleik frá Rósu Jónsdóttur, síðasta niðursetn- ingi í Njarðvík. Margar skemmtilegar frásagnir eru í bók Guðmundar. Kápa bókarinnar er snilldarvel gerð af Aka Gránz, myndlistarmanni í Njarðvík. • Ljóstu r Út er komin hjá FORLAGINU ljóða- bókin Ljóstur eftir Atla lngólfsson. Atli er ungur tónlistarmaður, ættaður úr Narðvíkunum. Hann hefur stund- að tónlistarnám jafnfamt háskólanámi hér heima en dvelur nú við nám í tón- smíðum á Ítalíu. Fyrir skömmu hlaut hann tónlistarverðlaun Ríkisútvarps- ins til ungra tónlistarmanna. — Ljóst- ur er fyrsta ljóðabók Atla en áður hafa birst eftir hann ljóð í blöðum og tíma- ritum. í bókinni era 30 ljóð og hafa fæst þeirra birst áður. I fréttatilkynningu Forlagsins segir m.a.: „Skáldskapur Atla er lágvær og íhugull, fullur næmleika og þekking- ar á list ljóðsins. Myndvísi hans er öguð og sjóngáfan skörp, hvort heldur hann yrkir um nálægðina eða ein- semdina, efann, óttann eða annað það sem lýstur hinar innri sjónir. Hér yrk- ir þroskað skáld sem tekið verður eft- ir.“ Ljóstur er prentuð hjá Fjölritun sf. Birgir Ingólfsson hannaði kápu. Hér á eftir birtum við ljóðið Aðventa eftir hinn unga höfund, úr hinni nýút- komnu bók. Aðventa Við strœti þessarar borgar standa þúsund stjaksett tungl. Nóttin pírir auga sitt yjir ógöngum girndanna: Við höjum týnt eðalsteini kyrrar löngunar. Enn rökkvar. í gluggum verslana standa uppi lík búin fegursta skarti. 364 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.