Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1985, Page 53

Faxi - 01.12.1985, Page 53
Skúli Magnússon: Sjóslysaannáll Keflavíkur 107 HLUTI höfnina. Tvo báta rak upp, Öðling og Sæþór. Vél Öðlings var I gangi og áhöfn hans aðstoðaði aðra báta. Skyndilega lenti kaðall i skrúfu Öðl- ings og rak hann þá upp. Vél Sæ- þórs var ekki í gangi er hann slitnaði frá. Fjaran fyrir innan höfnina var mjög stórgrýtt og er á daginn leið brotnuðu báðir bátarnir. Um kvöldið var orðið lítið eftir af þeim. Svo óskaplegur var veðurofsinn og hamfarir hafsins. Engan mann sak- aði. Öðlingur GK 294, var 14 smá- lestir að stærð, eign Axels Pálsson- ar í Keflavík. Sæþór NS 339, var 15 lestir að stærð, í eigu Brynjólfs Sig- urðssonar á Seyðisfirði. M/b Anna G.K. 461, Njardvík, fullsmídud í Drdttarbraut Keflavikur. 1941 Færeyskur kútter strandar Miðvikudaginn, 5. febr. 1941, lá færeyski kútterinn King Arthur und- ir Vogastapa. Þennan dag voru nokkrir af áhöfn hans i landi í Kefla- vík. Voru þeiráskipsbátnum. Um 3 leytið, eftir hádegi, er mennirnir hugðust halda aftur út í skipið, hvessti skyndilega á norðan, svo þeir treystu sér ekki til að róa skips- bátnum. Báðu þeir Þórhall Vil- hjálmsson, skipstjóra á v.b. Geir, að flytja sig út í kútterinn. Var það auð- sótt mál. Var skipsbáturinn notaður til að fara á milli skipanna er undir Stapann kom. Nokkru eftir þetta reyndu Færey- ingarnir að létta akkerum, því sjór var orðinn töluverður undir Stapan- um, en þar er skjóllaust í norðanátt. Ekki tókst þeim að ná akkerunum inn. Vélbáturinn Geir hélt sig í nám- unda við kútterinn, og áhöfnin fylgdist með Færeyingunum. Kall- aði nú Þórhallur skipstjóri á Sæ- björgu og bað hana aðstoða kútter- inn. Um svipað leyti fóru allir Fær- eyingarnir yfir í Geir. Var skútan mannlaus þegar Sæbjörg kom. Varð nú samkomulag um að bjarga ekki kútternum, en hann lá aðeins um 200 metra frá stórgrýttri fjör- unni og snarbröttum hömrum. Veð- ur var líka vont og sjór mikill. Þótti því of mikil áhætta að reyna björg- un. Enda fór svo, að um nóttina, þann6.febr., rakKing Arthuráland undir Stapanum og eyðilagðist fljót- lega. Skipið var 93 smálestir að stærð, gert út frá Þórshöfn. (Mbl. 7 febr. 1941: „Færeyski kútterinn fórst“. Sama frétt er og prentuð í Suður- nesjatíðindum 8. ágúst 1975). Þrír vélbátar eyðileggj- ast í Keflavíkurhöfn Að morgni fimmtudagsins, 27. febrúar 1941, gekk mikill norðaust- an stormur yfir suðvesturland. Varð veðurhæð svo mikil að varla var stætt utan húss. Frost varð mest 11 gráður þennan dag. í höfninni í Vatnsnesvik lágu um 30—40 bátar, allir í einum hnapp, vegna þrengsla. Er veðrið skall á losnuðu 16 bátar frá bryggju. Sumir þeirra voru með vélar í gangi, aðrir ekki. Um tíma leit út fyrir, að fjölda báta ræki upp i fjöruna, fyrir innan Sami veðurofsi hélst áfram og að- faranótt föstudagsins 28. febr., rak v.b. Trausta á land innan við hafnar- garðinn. Báturinn brotnaði í spón. Trausti GK 453, var 12 smálestir, í eigu Stefáns Bergmann í Keflavík. Margir bátar skemmdust í höfn- inni vegna veðurs og þrengsla. Tólf til fimmtán bátar leituðu vars í Reykjavík og Hafnarfirði. í Njarðvík rak þrjá báta á land, Önnu, Gylfa og Glað. Sá fjórði var hætt kominn þar sem hann lá við bólfæri. Anna barst á land á Fitjun- um skammt norðan við Steypustöð- ina og lenti inn í stórri lænu, sem nú er verið að fylla upp. Allt fram yfir 1970 sást þar framhluti bátsins ásamt lúkarskappa. Anna hefur því trúlega brotnað í tvennt í veðrinu. Gylfi, sem Magnús Ólafsson átti, náðist á flot og hlaut viðgerð i Reykjavík. Mbl. 28. fcbr. 1941: „TVeir vélbátar brotna í spón í Kefla- víkurhöfn“. Mbl. 1. mars 1941: „Mikið bátatjón í Keflavík“. Vitneskja annálshöfundar um strandstað Önnu er frá Friðriki Karlssyni, vélstjóra, í Keflavík. Frið- rik benti mér á hann þegar við urðum einu sinni santferða í bfl inn í Innra- Hverfí. Ég var þá sennilega 7 til 8 KEFLAVÍKURHÖFN: Myndin er tekin í kringntn 1945. FAXI 365

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.