Faxi - 01.12.1985, Qupperneq 53
Skúli Magnússon:
Sjóslysaannáll
Keflavíkur
107 HLUTI
höfnina. Tvo báta rak upp, Öðling og
Sæþór. Vél Öðlings var I gangi og
áhöfn hans aðstoðaði aðra báta.
Skyndilega lenti kaðall i skrúfu Öðl-
ings og rak hann þá upp. Vél Sæ-
þórs var ekki í gangi er hann slitnaði
frá. Fjaran fyrir innan höfnina var
mjög stórgrýtt og er á daginn leið
brotnuðu báðir bátarnir. Um kvöldið
var orðið lítið eftir af þeim. Svo
óskaplegur var veðurofsinn og
hamfarir hafsins. Engan mann sak-
aði.
Öðlingur GK 294, var 14 smá-
lestir að stærð, eign Axels Pálsson-
ar í Keflavík. Sæþór NS 339, var 15
lestir að stærð, í eigu Brynjólfs Sig-
urðssonar á Seyðisfirði.
M/b Anna G.K. 461, Njardvík, fullsmídud í Drdttarbraut Keflavikur.
1941
Færeyskur kútter
strandar
Miðvikudaginn, 5. febr. 1941, lá
færeyski kútterinn King Arthur und-
ir Vogastapa. Þennan dag voru
nokkrir af áhöfn hans i landi í Kefla-
vík. Voru þeiráskipsbátnum. Um 3
leytið, eftir hádegi, er mennirnir
hugðust halda aftur út í skipið,
hvessti skyndilega á norðan, svo
þeir treystu sér ekki til að róa skips-
bátnum. Báðu þeir Þórhall Vil-
hjálmsson, skipstjóra á v.b. Geir, að
flytja sig út í kútterinn. Var það auð-
sótt mál. Var skipsbáturinn notaður
til að fara á milli skipanna er undir
Stapann kom.
Nokkru eftir þetta reyndu Færey-
ingarnir að létta akkerum, því sjór
var orðinn töluverður undir Stapan-
um, en þar er skjóllaust í norðanátt.
Ekki tókst þeim að ná akkerunum
inn. Vélbáturinn Geir hélt sig í nám-
unda við kútterinn, og áhöfnin
fylgdist með Færeyingunum. Kall-
aði nú Þórhallur skipstjóri á Sæ-
björgu og bað hana aðstoða kútter-
inn. Um svipað leyti fóru allir Fær-
eyingarnir yfir í Geir. Var skútan
mannlaus þegar Sæbjörg kom.
Varð nú samkomulag um að bjarga
ekki kútternum, en hann lá aðeins
um 200 metra frá stórgrýttri fjör-
unni og snarbröttum hömrum. Veð-
ur var líka vont og sjór mikill. Þótti
því of mikil áhætta að reyna björg-
un. Enda fór svo, að um nóttina,
þann6.febr., rakKing Arthuráland
undir Stapanum og eyðilagðist fljót-
lega. Skipið var 93 smálestir að
stærð, gert út frá Þórshöfn.
(Mbl. 7 febr. 1941:
„Færeyski kútterinn fórst“.
Sama frétt er og prentuð í Suður-
nesjatíðindum 8. ágúst 1975).
Þrír vélbátar eyðileggj-
ast í Keflavíkurhöfn
Að morgni fimmtudagsins, 27.
febrúar 1941, gekk mikill norðaust-
an stormur yfir suðvesturland. Varð
veðurhæð svo mikil að varla var
stætt utan húss. Frost varð mest 11
gráður þennan dag.
í höfninni í Vatnsnesvik lágu um
30—40 bátar, allir í einum hnapp,
vegna þrengsla. Er veðrið skall á
losnuðu 16 bátar frá bryggju. Sumir
þeirra voru með vélar í gangi, aðrir
ekki. Um tíma leit út fyrir, að fjölda
báta ræki upp i fjöruna, fyrir innan
Sami veðurofsi hélst áfram og að-
faranótt föstudagsins 28. febr., rak
v.b. Trausta á land innan við hafnar-
garðinn. Báturinn brotnaði í spón.
Trausti GK 453, var 12 smálestir, í
eigu Stefáns Bergmann í Keflavík.
Margir bátar skemmdust í höfn-
inni vegna veðurs og þrengsla. Tólf
til fimmtán bátar leituðu vars í
Reykjavík og Hafnarfirði.
í Njarðvík rak þrjá báta á land,
Önnu, Gylfa og Glað. Sá fjórði var
hætt kominn þar sem hann lá við
bólfæri. Anna barst á land á Fitjun-
um skammt norðan við Steypustöð-
ina og lenti inn í stórri lænu, sem nú
er verið að fylla upp. Allt fram yfir
1970 sást þar framhluti bátsins
ásamt lúkarskappa. Anna hefur því
trúlega brotnað í tvennt í veðrinu.
Gylfi, sem Magnús Ólafsson átti,
náðist á flot og hlaut viðgerð i
Reykjavík.
Mbl. 28. fcbr. 1941:
„TVeir vélbátar brotna í spón í Kefla-
víkurhöfn“.
Mbl. 1. mars 1941:
„Mikið bátatjón í Keflavík“.
Vitneskja annálshöfundar um
strandstað Önnu er frá Friðriki
Karlssyni, vélstjóra, í Keflavík. Frið-
rik benti mér á hann þegar við urðum
einu sinni santferða í bfl inn í Innra-
Hverfí. Ég var þá sennilega 7 til 8
KEFLAVÍKURHÖFN: Myndin er tekin í kringntn 1945.
FAXI 365