Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1985, Side 55

Faxi - 01.12.1985, Side 55
ára. Sagði Friðrik mér þá söguna um örlög bátsins og urðu þau mér svo minnisstæð, að ég gleymdi ekki strandstaðnum). Sjómaður drukknar af m.b. Stakk Þann 1. okt. 1941, tók út af m.b. Stakk G.K. 503, frá Keflavík, Ingólf Pálsson, en hann var skipverji á bátnum. Er þetta gerðist var mjög illt í sjó og gekk ólag yfir bátinn með fyrrgreindum afleiðingum. Ingólfur Pálsson var fæddur 8. ágúst 1911. Ókv. Bl. (Árbók SVFÍ 1941, bls. 38). 1942 Tveir bátar sökkva í Keflavík Fimmtudaginn, 15. janúar 1942, gerði mikinn veðurofsa víða um land. í Keflavik sukku tveir bátar. Annar, Erlingur, 11 lestir, sökkáleg- unni, en Hafaldan, 7 lestir, sökk við hafnargarðinn. Tókstfljótlegaað ná Haföldu upp, en Vélbátatrygging Keflavikur auglýsti eftir tilboðum í Erling, þar sem hann lá á marar- botni. í þessu veðri urðu nokkrar skemmdir á bryggjum í Vatnesvik. (Faxi, jan. 1942: Stutt frétt í Flæðarmáli). Árekstur m.b. Græðis við tundurspilli Aðfaranótt 13, febrúar 1942, kl. 15 mínútur genginn í eitt eftir mið- nætti, lagði m.b. Græðir GK 310, af stað úr Reykjavík áleiðis til Keflavfk- ur, þar sem þáturinn ætlaði að stunda veiðar á vetrarvertíðinni. Skiþverjar voru sjö talsins. Austan andvari var, náttmyrkur, en gott skyggni. Sigldi þáturinn út úr innri höfn- inni, út í ,,Vatnsgeymisvita hvítan" eins og kallað var; siðan eftir þeim vita hvítum, þar til komið var f hvítan Ijósgeira Engeyjarvitans. Eftir hon- um hvítum var siglt í hvíta Ijósgeira Gróttuvitans, og síðan tekin stefna eftir áttavitanum V — N. Skiþstjóri var sjálfur við stýrið allan tímann. Er báturinn hafði siglt þannig í á að giska 10 mínútur, sáu skipverjar, að skyndilega var brugðið upp tveimur Ijósum, öðru hvftu, hinu rauðu, en þau síðan slökkt samstundis. Ljós- in birtust í stefnu f ramundan Græði, aðeins til stjórnborða (þ.e. til hægri). Þóttist skipstjóri sjá, að þarna væri skip á ferð og yfirvof- andi hætta á árekstri. Dró hann þá úr olíugjöf vélarinnar til að skiþta á aftur á þak úr fullri ferð, en sam- stundis sá hann að slíkt forðaði ekki árekstri. Sneri hann þá stýrinu hart í bak (þ.e. til vinstri). Lét Græðir þegar að stjórn, en þrátt fyrir það rakst Ijóslausa skipið, sem reyndist vera amerfskur tundurspillir, á Græði, stjórnborðsmegin aftan til. Þegar áreksturinn varð loguðu á Græði hin venjulegu siglingaljós. Ekki leið meira en mínúta frá því að skipverjar urðu varir við Ijósin á tundurspillinum, þar til áreksturinn varð. Sökk báturinn svo að segja strax. Fjórir skipverjar björguðust úr sjónum, en tveir komust upp á akkeri tundurspillisins, og var bjarg- að þaðan. Einn af áhöfninni, Lárus Marísson, frá Reykjavík, drukknaði. Græðir var 31 lest að stærð. Eig- andi hans var Steindór Pétursson og fleiri í Keflavík. Báturinn var tryggður hjá Vélbátatryggingafélagi Keflavíkur fyrir 90.000 kr. Vegna ágreinings um skaðabætur höfðaði Steindór mál gegn tryggingafélag- inu. Stóð ágreiningurinn um það hvort félagið væri bótaskylt af völd- um hernaðar. Sjó- og verslunardómur Reykja- víkur kvað upp þann úrskurð, að tundurspillirinn hefði ekki virt al- þjóða siglingareglur með Ijósleysi sínu. Hins vegar kom ekkert fram um að stjórnendur tundurspillisins hefðu orðið að víkja frá þeim regl- um, vegna hernaðar. Tryggingafé- lagið skaut málinu til Hæstaréttar, en hann staðfesti úrskurð undirrétt- ar, og Steindór Pétursson fékk bæturnar. (Hæstaréttardómar 1943. Útg. í Reykjavík 1944, bls. 268—272). Faxi, febr, 1942: ,,Vélbáturinn Græðir ferst“). Hrakningar m.b. Ægis Þann 28. febr. 1942, fór m.b. Ægir frá Keflavík í róður út á Faxa- flóa. Laust fyrir hádegi sunnudag- inn 1. mars, kom skyndilega mikill leki að bátnum. Reyndist lekinn vera undir gólfinu í lúkarnum. Fimm menn voru á bátnum og hófu þeir þegar að losa fiskinn úr lestinni til að létta bátinn. Einnig rifu þeir upþ kjölfestu undir lúkarnum. Náði sjórinn þá í hné í lestinni. Síð- an stóðu þrír við dekkdæluna en tveir jusu með vatnsfötum. Þannig urðu mennirnir að halda hvíldarlítið áfram til að halda bátnum áfloti. Að- eins var matast, en um hvíld var ekki að ræða. Sjór komst í rafhlöður talstöðvar- innar, en aukarafhlöður komu að notum. En skipverjar sinntu talstöð- inni lítið, héldu að ekkki heyrðist til þeirra. Urðu auk þess að ausa bát- inn stöðugt. í tvo daga stóðu þeir í austri, en þriðjudagsmorguninn 3. mars minnkaði lekinn skyndilega og gátu þeir þá tæmt bátinn að mestu. Rifu þeir nú burtu það sem enn var eftir af kjölfestu undir lúkarnum, en við það hækkaði báturinn enn á sjón- um. Þegar báturinn var að mestu orðinn sjólaus fór vélin í gang. En ekki þorðu skipverjar að sigla af ótta við að lekinn yxi á ný. Veður var Friðrik Karlsson vélstjóri. gott allan þriðjudaginn og skyggni ágætt. Áttu bátsverjar því von á, að flugvél yrði send til að leita þeirra. En svo varð þó ekki. Um kl. 10 á þriðjudagskvöldið hófu skipverjar siglingu til lands, en fóru á hægustu ferð, svo lekinn yxi ekki. Þann dag var lekinn svo lítill, að þeir gátu hvílt sig til skiptis. Laust eftir miðnætti aðfaranótt miðvikudags, sáu þeir skipsljós í fjarska, og sendu upp flugelda. Breytti skipið þá um stefnu og kom til þeirra. Reyndist þetta vera togar- inn Óli Garða frá Hafnarfirði. Voru skipin þá stödd um 35 sjóm. norð- vestur af Öndverðarnesi. Kom nú í Ijós að togaramenn heyrðu í talstöð Ægist er hann sendi út hjálpar- beiðni. Óli Garða tók nú Ægi í tog, en menn urðu áfram að standa við dæl- una, þó lekinn yxi ekki, þrátt fyrir að skipin væru á nokkurri ferð. Farið var með Ægi í slipp á Akra- nesi og kom þá í Ijós, að rifa hafði myndast rétt við kjölinn. Báturinn slegið úr sér, sem kallað er. En það undraverða gerðist, að þari komst í gatið og stíflaði það. Stöðvaðist þá lekinn að mestu. Þegar þangið var rifið úr fossaði sjórinn úr bátnum. Mcirteinn Hclgason, skipstjóri. Alls rak Ægi 70 sjómílur til hafs frá því vélin stöðvaðist á sunnu- dagsmorgun og þar til togarinn fann hann. Ægir var um 20 lestir að stærð í eigu Keflavíkur h.f. Seinna var hann gerður út frá Þorlákshöfn, þáieigu Meitilsins h.f. Ægirslitnaði upp af legunni í Þorlákshöfn 1962 eða 1963, rak upp í fjöru og eyði- lagðist þar. í þessari eftirminnilegu ferð sem hér segir frá voru f imm menn á Ægi. Þeir voru: Marteinn Helgason, skip- stjóri, Friðrik Karlsson, vélstjóri, og hásetar: Sverrir Bjarnfinnsson, Þórður Kristinsson og Guðmundur Pálsson. (Mbl. 5. mars 1942: „Merkileg björgun afrcksmanna og vélbátsins Ægis“. Faxi, mars,1942. Stutt frétt í Flæðarmáli). Hafskipabryggjan stór- skemmist Miðvikudaginn, 4. mars 1942, kom útlent flutningaskip til Keflavík- ur. Lagðist það að hafskipabryggj- unni við innanvert Vatnsnes. Þar sem veður var frekar gott var þegar í stað hafin vinna við lestun úr skip- inu. Þannig var unnið fram til mið- nættis. Hvessti þá skyndilega af suðvestri svo hætta varð vinnu. Þar sem skipið slóst mjög við bryggj- una, var reynt að koma því frá, án árangurs. Að morgni fimmtudagsins 5. mars, voru enn gerðar tilraunir til að ná skipinu frá en ekki tókst það. Veður var hið sama. Skipið sneri skut að hafnargarðinum og slóst skipið stöðugt við stórgrýti, sem var meðfram garðinum að utan. Við það sökk skipið að aftanverðu en skipsmenn komust allir upp á bryggju. Skömmu síðar braust út eldur frammi í skipinu í hásetaklefa sem þar var. Talið var að kolaof n eða eldavél hafi farið úr skorðum vegna hallans á skipinu. Á hafskipabryggjunni urðu miklar skemmdir og tók viðgerð langan tíma. Á meðan varð að flytja allt salt til Suðurnesja landleiðis innan úr Reykjavík, þar sem ekki var hægt að skipa því upp við bryggjuna. Kol og ýmsa aðra þungavöru þurfti einnig að flytja á bílum. Bátarnir gátu heldur ekki losað f isk i skiþ, en fisktökuskiþ, innlend og útlend, lágu hér oft á stríðsárunum, til að kaupa fisk, sem seldur var í Bret- landi. Við hafskipabryggjuna gátu með sæmilegu móti legið allt að 2000 lesta skip, ef veður var gott. En það atvik sem hér segir frá sýnir betur en flest annað hve aðstaðan þar var erfið. Ekkert mátti vera að veðri svo skiþum og bryggju væri óhætt. (Mbl. 6. mars 1942: ,,llafskipa- bryggjan í Keflavík stórskcmmist“. Faxi, apríl, 1942: Stutt frétt í Flæðarmáli). FAXI 367

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.