Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1985, Side 65

Faxi - 01.12.1985, Side 65
AÐALFUNDUR SSS Föstudaginn 8. og laugardaginn 9. nóvember 1985 var aðalfundur S.S.S. haldinn í félagsheimilinu í Höfnum. Helstu mál á dagskrá voru eftirtalin: FÖSTUDAGINN 8. NÓVEMBER: 1. Hitaveita Suðurnesja á tíma- mótum: Frummælendur: Ingólfur Aðal- steinsson forstjóri H.S. og Júlíus Jónsson, framkv.stj. íjármálasviðs H.S. Að umræðum loknum var eftirfar- andi ályktun samþykkt: „Aðalfundur S.S.S. haldinn í Höfn- um 8. og 9. nóvember 1985 fagnar þeim þýðingarmikla áfanga sem náðst hefur í orkumálum með sameiningu rafveitnanna á Suðurnesjum og Hita- veitu Suðurnesja ásamt yfirtöku hita- veitunnar á eignum Rafmagnsveitna ríkisins á orkuveitusvæðinu. Þessi sameining hefur þegar leitt til lækkunar raforkuverðs, sem skapar aukna möguleika á traustari atvinnu- uppbyggingu og betra mannlífi. Aðalfundurinn hvetur eindregið til þess, að sem fyrst verði hafist handa við undirbúning frekari raforkufram- leiðslu með nýtingu afgangsorku til iðnaðar og fiskeldis fyrir augum.“ 2. Drög að frumvarpi um skóla- kostnað framhaldsskóla: Frummælandi Hjálmar Árnason, skólameistari Fjölbrautaskóla Suður- nesja. Að umræðum loknum var eftirfar- andi ályktun samþykkt: Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðumesjum, haldinn í Höfnum 8. og 9. nóvember 1985 tekur heils hugar undir þær hugmyndir er fram koma í „Frumvarpi til laga um skólakostnað í framhaldsskólum". Fundurinn telur að með frumvarp- inu sé leitast við að jafna aðstöðu ein- stakra landsfjórðunga og framhalds- skóla til að halda uppi eðlilegu skóla- starfi. LAUGARDAGINN 9. NÓVEMBER: 1. Hvað er að gerast í atvinnumál- um á Suðurnesjum? Frummælendur voru: a) Guðmundur Gestsson, form. at- vinnumálanefndar Suðumesja b) Jón E. Unndórsson, framkv.stj. Iðnþróunarfélags Suðurnesja. c) Ólafur B. Olafsson, forstjóri Mið- ness h.f„ Sandgerði. d) Jón Þórðarson, framleiðslustjóri Islandslax h.f. í Grindavík. Að umræðum loknum voru sam- þykktar eftirfarandi ályktanir: „Aðalfundur S.S.S. haldinn í Höfn- um 8. og 9. nóvember 1985 fagnar þeirri ákvörðun að áfram skuli haldið tilraunum með sjóefnavinnslu á Reykjanesi meö þvi að ljúka 8000 tonna áfanga Sjóefnavinnslunnar h.f. og með fyrirhugaðri 1560 tonna kol- sýruverksmiðju. Aðalfundurinn hvetur til áframhald- andi rannsókna á hagnýtingu varma- orkunnar á Suðurnesjum." ,,Enn, sem frá upphafi byggðar á ís- landi, er sjávarútvegur meginundir- staða byggðar á Suðurnesjum og í nokkrum byggðum er naumast um aðra atvinnustarlsemi að ræða. Slök afkoma atvinnugreinarinnar ásamt pólitískri stýringu á fjármagni í Áki Gránz tók við formcnnsku af Þórami St. Sigurðssyni. útgerð og fiskvinnslu hefur valdið því, að íbúar á Suðurnesjum mega horfa á flutning fiskiskipaflotans til annarra landshluta í þeim mæli, að afkomu- brestur fjölda heimila blasir nú við. Hvetur fundurinn stjórnvöld til að endurmeta afstöðu sína til sjávarút- vegsmála og verði framhald á póli- tískri íhlutun, að minnast þess þá, að enn bjóða Suðurnes uppá hagstæð rekstrarskilyrði og meiri von um arð- semi í sjávarútvegi, en víða þar sem verið er að byggja upp ný og efla önnur útgerðarsvæði á kostnað heildarafla allra landsmanna. Sjómenn á Suöurnesjum telja full- víst að auka megi rækjualla Suður- nesjamanna með aukinni leit, en til þessa hefur Hafrannsóknarstofnun lítt sinnt óskum þeirra. Úrbætur á þessu og frelsi smábáta og þeirra, sem stunda línuveiðar, til veiða án skömmtunar yrði strax til bóta. Fundurinn varar alvarlega við því ástandi, sem nú blasir við í sjávarút- vegi á Suðurnesjum og hvetur til þess að stjórnvöld endurskoði afstöðu sína tafarlaust." „1 framhaldi af samþykkt ályktunar um sjávarútvegsmál á Suðurnesjum, skorar aðalfundur S.S.S. á þingmenn Reykjaneskjördæmis, að þeir í sam- einingu ásamt hagsmunaaðilum í sjávarútvegi og sveitarstjórnarmönn- um hér á Suðurnesjum beiti sér fyrir því, að hraðað verði svo sem frekast er kostur þeirri úttekt á stöðu þessarar undirstöðuatvinnugreinar á Suður- nesjum, sem þegar hefur verið ákveðið að vinna, með það í huga aö róttæk enduruppbygging geti átt sér stað á allranæstu árum og jafnframt að rekstrargrundvöllur útgerðar og fiskvinnslu verði tryggður. Stjórn S.S.S. verði falið að fylgja þessari áskorun fast eftir.“ „Aðalfundur Sambands sveitarfél- aga á Suðurnesjum, haldinn í Höfn- um 8. og 9. nóv. 1985, vekur athygli atvinnurekenda á hinum miklu möguleikum, sem Suöurnes hafa upp á að bjóöa til margháttaðrar atvinnu- starfsemi. Samband sveitarfélaga á Suðurnesj- um, sveitarlélögin á Suðurnesjum og Iðnþróunarfélag Suðumesja bjóða öll- um þeim, sem áhuga hai'a á, að kynna sér þessa margvíslegu möguleika." 2. Málefni aldraðra (á Suðurnesjum) í nútíð og framtíð: Frummælendur voru: a) Páll Axelsson, form. stjórnar dvalarheimila aldraðra, Suður- nesjum. b) Stefán Tómasson, form. öldrun- arráðs í Grindavík. c) Jón A. Jóhannsson, yfirlæknir, form. þjónustuhóps aldaöra á Suður- nesjum. Að loknum umræðum var eftirlar- andi ályktun samþykkt: Á haustfundi Sparisjóðsins í Keflavík 15. nóv. sl. kom fram í ræðum þeirra Jóns H. Jónssonar stjórnarformanns og Tómasar Tómassonar sparisjóðsstjóra, að á þessu ári hafi Sparisjóðurinn í fyrsta sinn farið yfir milljarð í innistæðufé. Innistæðuaukning 15. nóv. var 41% miðað við inn- stæður í árslok 1984 og útlána- aukning var á sama tíma 37%. TYompinnlán sparisjóðanna var heppilegt svar við vaxtastríði bankanna og hefur gefið góða raun. Hlutfall vanskila fer vaxandi. Stóraukning er á notkun Visa- korta en vanskil eru þar einnig nokkur. Greiðsluerfiðleikar eru miklir hjá fólki, þess vegna mikið um uppboð og skuldbreytingar. Vandræði húsbyggjenda og veru- „Aðalfundur Sambands sveitarfél- aga á Suðumesjum haldinn í Höíhum 8. og 9. nóvember bendir á að meö viöbyggingu við Garðvang, dvalar- heimili aldraðra í Garði, sem tekin var í notkun á þessu ári, var aðeins bætt úr brýnustu þörf, en enn er langur biðlisti aldraðs fólks, sem þarfnast vistunar. Sum sveitarfélögin hafa enn- fremur byggt og stuðlað að byggingu leigu- og söluíbúða fyrir aldraða, auk þess sem þau hafa aukið þjónustu við þá aldraða, sem búa í eigin húsnæði, en betur má ef duga skal. A næstu árum er fyrirsjáanleg aukin þörf á vistunarrými fyrir aldraða á Suðurnesjum, sem verður aö l'ull- nægja. Aðalfundurinn telur að þessari auknu þörf verði best og fljótast mætt með því að ljúka sem í'yrst legudeild (D-álmu) við Sjúkrahús Keflavfkur- læknishéraðs. Aðalfundurinn hvetur til þess að nú þegar verði útvegað fjár- magn til þeirrar byggingar.“ 3. Sameining sveitarfélaga á Suðurnesjum: Frummælendur voru Reynir Krist- insson, rekstrarráðgjafi, Hagvangi og Magnús Guðjónsson, framkv.stj. Samb. ísl. sveitarfélaga. Sveitarstjómarmenn skiptast á að veita stjóm S.S.S. formennsku og eru formenn eitt ár í senn. Fráfarandi for- maður er Þórarinn St. Sigurdsson, sveitarstjóri í Hölnum en Áki Gránz, forseti bæjarstjórnar Njarövíkur, tók við formennskunni. Eiríkur Alexandersson, frkv.stjóri legir rekstrarerfiöleikttr llestra fyrirtækja leiða til þess að gjald- þrotum íjölgar, einnig fjölgar upp- boðum á fasteignum. Nánast engin fjáríesting hefur verið hjá Sparisjóðnum á þessu ári. I nýjum lögum um sparisjóði, sem taka gildi 1. janúar 1986, eru þau nýmæli athyglisverðust að gert er ráð fyrir að sparisjóðirnir geti stofnað eigin lánastofnun — eða banka, sem nokkurskonar miðstöð i'yrir viðskipti sparisjóð- anna, og unnið verður að því á næstu mánuðum. Sparisjóðirnir eru nú með rúnt 15% af öllu innlánsfé lands- rnanna. Þeir eru skoðaðir sem heimabyggðastofnanir og njóta góðs af þeirri skoðun fólks, eink- um úti á landsbyggðinni. J.T. HAUSTFUNDUR SPARISJÓÐSINS f ki:fuavík FAXI 377

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.